Foreldrablaðið - 01.01.1960, Blaðsíða 25

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Blaðsíða 25
ÁSGEIR GUÐMUNDSSGN: SKDLAÞRDSKAPRDF Síðustu þrjú árin hefur verið unnið að gerð og staðsetningu skólaþroska- prófa fyrir íslenzk börn á vegum fræðsluskrifstofu Reykiavíkurbæjar. Á þessum þremur árum hafa próf þessi verið lögð fyrir allmörg börn hér í Reykjavík og Kópavogi, og unnið hef- ur verið úr þeim gögnum, sem fyrir liggja. Samkvæmt þeim niðurstöðum og árangri, sem fyrir hendi er, má vænta þess, að prófin verði almennt tekin í notkun við barnaskóla Reykja- víkur á næstu árum. Skólaþroskapróf hafa verið notuð í fjölmörgum löndum um árabil, og fer notkun þeirra vaxandi ár frá ári í ná- grannalöndum okkar, og verður því ekki annað séð en notkun prófanna sé aðeins einn liður í stöðugri framþróun í skólamálum. En hvað eru þá skóla- þroskapróf og til hverra nota eru þau? Því mætti e. t. v. svara í stuttri setn- ingu. Prófin eru gerð með það fyrir augum að greina skólaþroskahörn frá hinum. Allir vita, að börn þroskast ekki jafn- fljótt. Sum börn eru skólaþroska við 7 ára aldurinn, önnur síðar og enn önnur fyrr. En einmitt vegna þessá mismunar á hörnunum við byrjun skólagöngu, hefur það verið stöðugt háværari krafa kennara, að fram færi athugun á barn- inu í þann mund, er skólaganga þess hefst. Skólaþroski miðast við það, að barnið hafi náð þeim þroska, er það get- ur tileinkað sér þá kennslu, sem fram fer við byrjun skólagöngu. Svo sem vænta má, er langur vegur frá, að öll börn hafi náð þessum þroska við byrj- un fyrsta skólaárs, og er margt, sem er þessu valdandi. Má þar til nefna greindarskort, slæm uppeldisskilyrði og uppeldi, veikindi og líkamlegan þroska, sem e. t. v. hefur ekki minnsta þýðingu. Af þessu má ráða, að slæmur aðbún- aður ungbarna getur haft mjög varan- legar afleiðingar hvað þroska þeirra við kemur. En auk þeirrar skiptingar í skóla- þroska og óskólaþroska börn, sem að framan getur, gefa prófin einnig aðrar miksverðar uplpýsingar um þau, og má nærri geta, hve nauðsynlegt það er hverjum kennara, sem tekur við börn- um á fyrsta skólaári, að hafa slíkt vega- nesti við höndina. Fullorðnir gera sér oft ekki ljósa þá miklu hreytingu í lífi barna, er þau hefja skólagöngu. Á fyrsta ári er börn- unum gert að læra að þekkja stafina, hljóð þeirra, mynda orð, lesa texta, reikna, draga til stafs að ónefndu því að samlagast öllu því, sem fram fer í skólanum, en það er oftast andstæða þess, er þau hafa vanizt á heimili sínu. Getum við ætlazt til þess, að öll börn séu jafnmóttækileg fyrir öllu þessu? Nei, að sjálfsögðu ekki, en til þess að FORELDRABLAÐIÐ 23

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.