Foreldrablaðið - 01.01.1960, Blaðsíða 22

Foreldrablaðið - 01.01.1960, Blaðsíða 22
verið æfðir í að beita þeirri lestrarað- ferð, sem kennd er hér við skólann, en þeim hefur verið sagt frá öðrum lestraraðferðum, t. d. stöfunaraðferð- inni og orðaaðferðinni. Kennaraskólinn hefur alltaf verið aðþrengdur um tíma og allar húsrýmisaðstæður. Við slík skilyrði er óhugsandi að kennaranemar geti reynt margar kennsluaðferðir í lestri samtímis. Reynt hefur verið að taka það bezta úr lestraraðferðunum og fella það í æfingakerfi það, sem Kennaraskólanemar þjálfa sig í við lestrarkennsluæfingarnar. Við þetta er svo því að bæta, að þetta er í samræmi við námsskrá barnaskólanna. Þar stend- ur: „Lestur: Hljóð og tákn þeirra. Auð- veld orð og setningar“. — Getur þú sagt í fáum or'Surn, huaS þú telur hl/'ÓSa<5ferSinni einkum til gildis? Lestrarnám er mjög erfitt og flókið fyrirbæri. Námsskammtar þurfa að vera viðráðanlegir, fara þarf hægt yfir og byggja traust. Barnið þarf að geta skilið lögmál þrautarinnar og fundið hjá sér getu til sjálfsbjargar. Talmálið er tjáningarkerfi. Frumpartar þess eru málhljóðin. Þau eru ekki nema nokkrir tugir, en stofnorð málsins skipta þús- undum, að ekki sé minnst á beygingar- afbrigði og atkvæði málsins. Lestrar- aðferð, sem hefur málhljóðin að grund- velli, getur tengt framburðaræfingar við lestrarnámið. Það æfir hljóðheymina, fegrar framburðinn og kennir bömun- um að greina hljóð málsins, bæði ein sér og í samböndum. Mælt mál er sam- eiginlegur grundvöllur þess barnahóps, sem kenna á að lesa. Og góð tök á mæltu máli er mjög þýðingarmikill grundvöll- ur fyrir lestrarnámið, svo að erfitt er að hugsa sér, að hægt sé að kenna illa talandi bami að lesa svo að gagni verði. 20 FORELDRABLAÐIÐ Frá hljóðum málsins liggur bein braut til ritmálsins. Stafróf vort er merkja- kerfi, letureiningar eða letursamstæður, þar sem hvert merki er í flestum til- fellum hljóðtákn ákveðins málhljóðs, a. m. k. í íslenzku. Aðferð, sem hefur hljóð málsins að grundvelli, getur því byggt haldgóða brú milli talmáls og ritmáls og glætt skilning á því, að mælt mál er undir- staða ritmáls. Ritmálið höfðar til aug- ans, en það kallar á hljóðræn andsvör. Hljóðgrundvallaraðferð í lestri gefur barninu lykilhjálp. Ef það þekkir ekki orð, sem það á að lesa, getur það þrætt sig gegnum orðið eftir stafanna hljóðan þ. e. með hljóðtengingu, lesið er með hljóðum stafanna, en ekki nöfnum þeirra. Þetta eykur öryggi, veitir sjálfs- bjargargrundvöll. Annað mál er svo það, að hljóðteng- ing í lestrinum er stundarfyrirbæri. — Lestramáminu ber að haga þannig, að barnið geti greint og þekkt í einum svip heil orð, setningarhluta og jafnvel setn- ingar. Hljóðgmndvallaraðferð í lestri gengur beint og krókalaust til verks. Hún tekur tillit til þroska barnsins og getu til að leysa þrautina, bæði hvað við kemur hæfileikum og líffærum þeim, sem virk em við lesturinn. Það er t. d. mjög veigamikið atriði, að hljóð- grundvallaraðferðin stuðlar að heppi- legri beitingu augnanna við lesturinn, en það er atriði, sem ekki má vanmeta við lestrarkennslu og lestramám. Loks er svo þess að geta, að þær venju- myndanir, sem áherzla er lögð á við hljóðgrundvallaraðferðina, er þess eðlis, að þær verða barninu aldrei hamlandi fjötur við lestrarnámið, heldur sjálfs- bjargarmöguleiki, hvenær sem á þarf að halda. Þarna liggur að vísu nokkur hætta í vegi, sem auðvelt er þó að

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.