Landneminn - 01.10.1948, Page 4
björtum augum á tilveruna. Þeir tóku við lönd-
um sínum í svörtum rústum. Brunnar borgir,
eydd þorp, dauður bústofn — það var arfur þess-
ara bjartsýnu Járntjaldsmanna. í þrjú ár hafa
þeir staðið í ströngu við að byggja upp jarðir
sínar, og það er ekki aðeins von þeirra, heldur
raunsæ vissa, að þeir fái grætt hin gömlu sár á
fáurn árum og búið miklu reisulegra búi en
nokkru sinni fyrr. Og nú er svo komið, að vest-
ræn efahyggja er farin að trúa því að þeim tak-
ist Jietta kraftaverk. En friður er grundvallar-
skilyrði fyrir því, að þessar björtu vonir rætist.
Því lengra sem líður á Jjessa öld verður mönn-
um ljósara, hvert er inntak þeirrar baráttu, sem
háð er. Hið borgaralega þjóðfélag einkaeignar
á auðsuppsprettum og framleiðslutækjum er í
hraðfara upplausn og hnignun. Veldi þess hef-
ur minnkað mikið liinn síðasta mannsaldur, og
þar sem það hefur orðið að sleppa takinu, hafa
risið upp sósíalískir þjóðfélagshættir á grundvelli
áætlunarbúskapar. Á ýmsum þróunarstigum situr
sósíalisminn við völd vestan frá Bæheimi austur
að Kyrrahafi og mikill hluti Austurasíu fer hrað-
förum inn á þróunarbrautir sósíalískra þjóðfélags-
liátta. Baráttan milli auðvalds og sósíalisma er
háð um allan jarðarhnöttinn og með ýrnsu móti.
Hún er háð í hverju einasta auðvaldslandi. þar
sem borgarastéttin fer enn með völd. Hún er háð
í nýlendunum, þar sem ánauðugar Jijóðir berj-
ast fyrir siálfstæði sínu. Og hún birtist í hinutn
miklu átökurn borgaraleara stórvelda annars veg-
ar og hinna austrænu lýðræðisríkja hins vegar.
Vér sem nú lifum erum Jrátttakendur í ægilegasta
hildarleik sögunnar, J?ar sem glímt er um fram-
tíð mannkynsins á þessari jörð.
Að Iiætti allra yfirstétta, berst borgarastéttin
hamslausri baráttu fyrir fé sínu og fjöri. Hún
mun einskis svífast til að halda völdum Hún
mun beita öllum vopnutn tækni sinnar ogvísinda
til að ráða niðurlögum sósíalismans. Hún mun
leggia til atlögu við lífið sjálft á iörðinni fyrr
en hún sleppir gróða sínum og bjóðfélagsvöldum
góðfúslega. Það er engin tilviljun, að fulltrúar
borgarastéttarinnar veifa atómsprengiunni
hverju sinni, er þeir eru komnir í þrot. Það er
aðeins vísbending um J)að, hvers menn mega
vænta, er borgarastéttin hefur lent í Jreim ógöng-
um, Jiar sem morðið og siálfsmorðið er eina
lausnin. Friðurinn er sósíalismanum jafn nauð-
synlegur og súrefnið manninum. í sósíalísku
Jrjóðfélagi getur engin stétt manna grætt á styrj-
öld. Þar verða allir að bera styrjaldartjónið. Sós-
íalismi táknar sívaxandi framleiðslu til að full-
nægja sívaxandi þörfum manna, efnalegum, and-
legum og menningarlegum. Styrjöld er sósíal-
ismanum Jmngbært böl, er dregur úr Jrjóðfélags-
Jrróun hans og gerir leiðina að settu marki tor-
sóttari. Sósíalisminn er að öllu eðli og gerð full-
trúi friðsamlegrar sköpunar mannanna, hins
heilaga strits, sem er aðall mannsins.
En sama máli gegnir ekki um hið borgara-
lega þjóðfélag. Voldugasta auðvaldsríki jarðar-
innar, Bandaríki Norðurameríku, mega t. d.
Jxikka það tveimur heimsstyrjöldum, að iðnað-
armáttur þeirra ber nú ægishjálm yfir heim-
inn. Það lét nærri, að iðnaðarframleiðsla þeirra
Jtrefaldaðist í hinni fyrri heimsstyrjöld, en tvö-
faldaðist í hinni síðari. Án aflgjafa þessara styrj-
alda væri vegur Bandaríkjanna ekki sá, sem
hann nú er. Þegar styrjöldinni slotaði stóð auð-
vald Bandaríkjanna frammi fyrir því vandamáli
að nytja hinn geysilega framleiðslumátt sinn
áfram þótt botninn væri dottinn úr markaði
blóðvallarins. Auðvald Bandaríkjanna fann ekk-
ert annað ráð en að stofna til æðisgengnari víg-
búnaðar en dæmi eru til í sögunni og láta þing-
ið afgreiða vígbúnaðarfjárlög. Það er aðeins um
tvennt að velja fyrir Bandaríkin: sívaxandi víg-
búnað — með styrjöld á næsta leiti — eða
kreppu. Til Jícss að færa sönnur á, að hér sé
ekki um ýkjur að ræða, má vitna í ummæli Ed-
win G. Nournes, sem er formaður nefndar þeirr-
ar, sem er forsetanum til ráðuneytis í efnahags-
málum. Hann komst svo að orði ekki alls fyrir
löngu: „Vegna vígbúnaðaráætlunar Bandaríkj-
anna má vel vera að velgengnistímar atvinnulífs-
ins muni haldast áfram enn um nokkur ár. Ef
þessa hefði ekki gætt, hefði vel getað farið svo,
að innlend framleiðsla hefði dregizt saman þeg-
ar á þessu ári.“
Styrjaldarhættan er J)ví fólgin í sjálfum lífs-
skilyrðum hins borgaralega þjóðfélags. Því fer
fjarri, að hún sé tilviljunarkennd, hún er blátt
áfram eðlisbundin auðvaldsskipulaginu. En
verður af Jressu dregin sú ályktun, að styrjöld
milli sósíalismans og auðvaldsskipulagsins sé
óhjákvæmileg og óafstýranleg? Alls ekki. Um
styrjöld er það að segja, að kóngur vill sigla,
cn byr hlýtur að ráða, og Jrað er á valdi alþýð-
unnar hvort nýrri styrjöld gefst byr. Það er hlut-
verk alþýðunnar um heim allan að skipuleggja
Frnmhald n 18. síðu.
4 LANDNEMINN