Landneminn - 01.12.1949, Side 8
Nokkvar ályktaniv fvá 8. þingi Æ. F.
Sjdllstœðis- og utcmríkismál.
Jslenzk alþýðu-
æska, sem og allir ís-
lendingar, stendur í
dag augliti til aug-
]itis við eftirfarandi
staðreyndir:
Keflavíkurflugvöll-
urinn er dulbúin her-
stöð erlends ríkis á
Islandi. Samningur-
inn um hann er af
hálfu íslenzkra yfir-
valda framkvæmdur
á þann hátt, að til
stórrar hneisu er full-
valda þjóð, auk þess
sem þjóðlífinu, inn á
við, er mikill háski
búinn af framferði herraþjóðarinnar á vellinum.
Skuldafjötri Marshall-„hjál]>arinnar“ hefur verið
smeygt á þjóðina að henni fornspurðri, milljóna-„gjaf-
ir“ Bandaríkjamanna til þeirrar þjóðar, sem fyrir
nokkrum árum átti hundruð milljóna innstæður í út-
löndum, eru henni til stórkostlegrar vanvirðu, bæði
inn á við og út á við. Ennfremur veitir samningurinn
um Marshall-,,hjál|)ina‘ erlendum mönnum og fyrir-
tækjum rétt til stórfelldrar fjárfestingar í landinu, og
til íhlutunar uni innlenda fjármálahætti, svo að fjár-
hagslegu sjálfstæði þjóðarinnar er stefnt í beinan voða.
Cegn vilja alls þorra þjóðarinnar eru íslendingar
orðnir aðilar hernaðarhandalags, sem skuldbindur þá
til hernaðarþátttöku, ef eitthvert sambandsrikjanna
kynni að Ienda í ófriði, auk þess sem heimilt er að
stofna hér til hvers konar aðgerða til undirbúnings
styrjöld, samkv. 3. og 5. gr. A-sáttmálans, en þær að-
gerðir hlytu hin erlendu sambandsríki okkar í stríó's-
félaginu að sjá um franikvæmd á, þar eð við erutn
ófærir um það, m. a. sökum kunnáttuleysis í ölltmi
störfum er að hernaði lúta.
Fyrir því ályktar
þingið að í sjálfstæð-
ismálum þjóðarinnar
séu þessi brýnustu
verkefni næstu stjórn-
ar, hver sem hún
verður, vilji hún
vinna að hagsmuna-
málum þjóðarinnar
af fullkomnum
drengskap og trún-
aði:
Eramkvæma Kefla-
víkursamninginn af
fullri einurð og með
lilliti til íslenzkra
hagsmuna einna. —
Ji fnframt ályktar
þingið að hverri stjórn, sem að völdum situr, þegar
límabil samningsins er útrunnið, beri að segja hon-
um upp, einhliða og skilyrðislaust, og Jslendingar taki
í sínar hendur alla starfrækslu á vellinum.
Frekari Marshall-„hjál])“ sé afþökkuð og „gjöfum“
hennar hafnað, þar eð hið fyrra sé í ósamræmi við
hagsmuni hennar, en hið síðara ekki sæmandi okkur
sem fullvalda þjóð. Um leið sé allur samningurinn úr
gildi felldur af íslands hálfu.
ísland gangi úr Atlanzhafsbandalaginu, samningur-
inn sé lýstur ómerkt ])lagg að því er ísland varðar,
þar eð þjóðin sé ekki hæfur aðili að neins konar hern-
aðarbandalagi. Hlutleysisyfirlýsingin frá 1918 sé ít-
rekuð svo, að enginn geti vaðið í villu um afstöðu
okkar til stríðs og friðar.
Menntamdl.
1. Þingið telur að iryggja verði, að ljárskortur
hindri engan í að leggja stund á það nám, sem hunn
hefur áhuga og hæfileika til að stunda.
/ fundarsal 8. þings Æ. F.
8 LANDNEMINN