Landneminn - 01.12.1949, Side 10
cyy'./?
<_/(í t'e/r/jtjs*,
ery>
<//,
'//or/ee//r J-
IV.
9
Vandamál
anm ör/z:
lílsins gegnumlýst
Eftir S I G II R Ð B L Ö N D AI,
Gömu) hefð endurvakin.
Sú var tíð, að hin litla danska þjóð réð stórnm
ríkjum. Einnig var sú líð, að danskar kvikmyndir
ríktu yfir stórum mörkuðum. Það vita kannski fáir, að
Danir voru eitt sinn fremsta kvikmyndaþjóð heims.
Og á þeim tíma var það danskur maður, sem var dáð-
ur og tilbeðinn af kvenþjóðinni, eins og það er Clark
Gable eða Gary Cooper í dag. Hann hét Valdemai
Psilander og hefur verið kallaður fyrsta kvikmynda-
stjarna heimsins. lfevndar var hann meira en stjarna,
því að hann var, að sögn, mikill listamaður. En dönsk
kvikmyndalist hafði mörgum fleiri góðum leikurum á
að skipa: Asla Nielsen, Helge Nissen, Clara V'iedt o.fl.
POUL REICHARDT er einn af 'vinsælustu leikurura Dana
og meðal þeirra allrabeztu, jafnvígur á gaman og alvöru.
Hann sést hér í myndinni „De róde heste“, eftir skáldsögu
Mogens Korch, ásamt TOVE MAES , sem brosir til okkar sínu
sérkennilega brosi.
Það var einn maður öðrum fremur. sem skapaði
gengi danskrar kvikmyndagerðar: Ole Olsen, fyrrver-
atidi landbúnaðarverkant., og stofnandi Nordisk Film.
Þetta var á árunum 1910 til 1920.
Á stríðsárunum höfðu Bandaríkjamenn lagt grund-
völl að risavöxnum kvikmyndaiðnaði. Árin 1915 og
1916 komu hinar miklu myndir D. W. Griffiths,
..Birth of a Nation“ og „Intolerance“, og ollu tírna-
mótum í kvikmyndagerðinni. í lok heimsstyrjaldar-
innar tóku Bandaríkjamenn þá forystu í kvikmynda-
framleiðslu, sem þeir liafa aldrei sleppt síðan. Eftir
stríðið lóku einnig ýmsar aðrar Evrójtuþjóðir að
byggja upp kvikmyndaiðnað. Allt þetta olli Dönum
crfiðleikum, og framleiðsla þeirra gekk niðurávið.
Árið 1927 kom svo hljómmyndin lil sögunnar. Til-
koma hennar reyndist þungt áfall í svipinu fyrir
kvikmyndagerð allra smáþjóða. Aðeins skal hér skot-
ið inní, að Lau Lauritsen eldri (faðir Lau yngta, sem
nú er forstjóri A S A og í hópi beztu leikstjóra Dana
nú) hafði komið fram á sjónarsviðið með „Litla og
Stóra“, og nulu þeir lengi mikilla vinsælda víða urn
heim.
Annars ganga nú litlar sögur af dönskum kvik-
myndum alll fram að síðustu heimsstyrjöld. Á styrj-
aldarárunum var framleiðsla lílil af venjulegum
leiknum kvikrayndum. Hins vegar var allan límann
unnið í dönskum upptökusölum við framleiðslu stutt-
mynda eða „menningarmynda“, og árangurinn af því
starfi átti eftir að koma í ljós síðar, beint og óbeint.
En styrjaldarárin böfðu fært Dönum — einsog
reyndar öðrum þjóðum — mikla reynslu, og um leið
mikið efni til þess að vinna úr i kvikmvndagerð. Ár-
angurinn kom líka í ljós að stríði loknu. Danskir
kvikmyndamenn sýndu, að þeir kunnu að vinna úr
10 LANDNEMINN