Unga Ísland - 01.09.1912, Qupperneq 8

Unga Ísland - 01.09.1912, Qupperneq 8
64 UNGA ÍSLAND Spurningar og svör. i. 1. Hvaöa dæla er bcst, íljótvirkust að tiltölu við allið, og hvernig er hún? 2. Hvernig er farið að fá svo létt loft, að loftslcip geti farið í loft upp með dá- litlum þunga? Fáfrœðingur. S vör: 1. »Centrifugal((-dæ\an (eða miðílótta- aftsdælan) er hraðvirkust, og er hún not- uð t. d. lil að tæma skipakvíar og einnig- sem slökkvidæla í stórborguvn erlendis. Er útbúnaður liennar svipaður og á mið- llóttaafls-blástursáhaldi því, sem notað er í smiðjum, nema hér er það valn, en ekki loft, sem sogast inn og spýtist út með feikna krafti, eítjr því sem snúnings- liraðinn er meiri. Eru dælur þessar knúð- ar með gufuvélum eða öðru afli. (Dælur þessar eru líkastar tvíbotnuðu kringlóttu hylki, sem rís á rönd, og gengur ás gegn um miðja botna, og eru á honum spjöld innan í hylkinu. Liggur pípa inn í liylkið meðfram ásnum öðru megin, en önnur út úr því einhversstaðar á yfirborðinu, (hringnum). Pá er ási þessum er snúið, nægilega hratt, mynda spaðarnir sterkan loftstraum gegn um pípurnar og hylkið. Sýgst þá vatnið inn meðfram ásnum, en spýtist út frá yfirborðinu (röndinni). 2. Fyrstu loftskipin vóru aðeins fylt venjulegu lofti, sem liitað var siðan upp með lömpum, uns það léttist svo mjög, að belgurinn með körfu og nokkrum þunga lyftist í loft upp. — Til eru leik- föng afþessari gerð: Pappírsbelgur opinn að neðan, og vírkross eða »net« í opinu; stingur maður þar bómullarlagði, vættum í vínanda, og kveikir í. Hitnar þá loflið í belgnum, og svífur liann allhátt í loft upp. Brátt komust menn upp á að fylla »loltbelginn« með kolagasi, sem er helm- ingi léttara en loft, og nú á dögum er vetti (vatnsefni eða vatnsgas) venjulega notað, enda er það IP/2 sinnum létlara en loft. (Kolagas má að gamni sínu búa til á þann hátt að fylla krílarpípuhaus með smákolamolum, þétta svo hausinn vel t. d. með 2gjaeyringi og kítti — cða brauðdeigi — hita liann svo yfir liægum eldi — kerli t. d. — gufar þá kolagas út um munnstj'kkið, og má sjá það á því, aö sé logandi eldspíta borin að þvi, kviknar á því, (gasljós), en gas þetta er ó- hreint, og því eigi eins lélt sem skyldi. H. 1. Hvernig á að haga sér lil þess að koma sér vel við alla? 2. Ilvað þarf maður að gera til þess að verða góður og nýtur maður fyrir land og lýð? 3. Hafa orðin greindur og gáfaður sömu mcrkingu? J. M. Á, (kaupandi Ú. í.) S vö r: 1. Vcrtu glaðlyndur, greiðvikinn, orð- var og áreiðanlegur! (ótal margt íleira mætti tina til, en í þessu fernu felst meira en margur hyggur í fljótu bragði.) 2. Vinna vel og dyggilega að liverju sem er, vera trúr i smáu sem stóru og gleyma eigi, að alt vort starf á að sluðla að þroska og hamingju sjálfs vor og þjóðarinnar. 3. Greindur er sá venjulega talinn, sem cr skýr og vel viti borinn yfirleitt, vel gefinn. Gáfaður er aftur á móli sá talinn, sem hlotið hefir einhverja sérstaka hæfileika, fleiri eða færri, í ríkara mæli en venjulegt er. Þó er þessu tvennu oft ruglað saman. III. 1. Hvaða menn vóru Birkibeinar? 2. Ilvar vex álmur (bogatré foriþ- manna ?) 3. Ilvar er Norðýmbraland? Forfeðravinur. S v ö r: 1. Birkibeinar vóru hermenn þeir kallaðir, er fylgdu Eysteini Haraldssyni (1174) og síðar Sverri konungi. Natn sitt fengu þeir af þvi, að þeir vöfðu birki- næfri urn fætur sér, er þeir urðu klæð- fáir. (Sjá Heimskringlu Snorra Sturfu- sonar). 2. Álrnur vex á Norðurlö»dum og í norðurliluta Mið-Evrópu. Fremur sjald- gæfur þó t. d. í Noregi, vex þar lielst í urðum og klutrum. 3. Norðymbraland (»Northumberland«) er liérað norðarlega á Englandi. Til kaupendanna Sökum því nær mánaðar veikinda á heimili mínu gat eigi ágúst-blaðið komið út á réttum tíma, og koma því 2 blöð í einu núna. Ritstj. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.