Unga Ísland - 01.05.1918, Blaðsíða 3

Unga Ísland - 01.05.1918, Blaðsíða 3
UNGA ÍSLAND 35 ríki hans óx tré, sem bar þá ávöxtu er nefndir eru ódáinseplin. Væri ein- hver sjúkur, jafnvel í dauðans kverk- um, þá þurfti hann ekki annað en borða einn einasla munnbita af þess- um ódáins eplum, til þess að verða alheill aftur. En í seinustu tultugu árin hafði tréð hvorki borið blóm né ávöxlu. Dauðinn var kominn lil þjóð- arinnar og liafði skilið ættmenn og vini, hriflð börn frá foreldrum og for- eldra frá börnum. Viltu nú ekki spyrja manninn sem alt sér og veil hver sé orsök þessa þjóðarböls?« »Pví lofa eg«, sagði Flóðrekkur. Því næst kom hann í stóra borg og fagra. Þar virtist lionum þögnin ríkja. Hér mætti hann gömlum manni. Sluddist hann við slaf og virtist eiga mjög erfitt um gang. »Guð blessi þig, gamli maður!« »Þakka þér fyrir kveðjuna, æsku- maður. Hvert heldur þú?« »Til hallar Drífanda, til þess að ná þremur gullhárum af höfði hans«. »Ætlarðu þangað? Þá ert þú sá bjargvættur okkar í neyðinni, er við lengi höfum þráð. Iværi æskumaður komdu með mér til hallar kóngs míns og drotnara og hlustaðu á mál hans«. Kongurinn mælti þannig við Flóð- rekk: »Þú ætlar til Drífanda, manns- ins, sem veit alt og sér alt. Ef þú vilt erinda dálítið fyrir mig um leið, þá skal eg gjalda þér það stórmann- lega og um leið veilir þú ógæfusamri þjóð liamingju aftur. Hlustaðu nú á mál mitt«. Og kóngurinn sagði hon- um frá, að þar í landi hefði verið lind ein og kölluð y>hreysíilindin((. Sjúkir menn hefðu læknast, er þeir drukku úr henni. En væru þeir of örmagna, til þess að geta drukkið, þá þurfli ekki annað en stökkva dropa á enni þeim og jafnskjólt urðu þeir heilbrigðir. Þarna hafði verið óaf- látanleg hreysli með þjóðinni, en fyrir tólf árum hafði lindin þornað og eng- in sköpuð ráð voru til að ná úr henni einum einasta dropa upp frá þvi. »Því biðjum vér þig í nafni allrar þjóðar- innar að spyrja manninn sem veit alt og sér alt, hverju gegnir þessi ógæfa vor«. Flóðrekkur tók því vel og kóngur kvaddi hann með fyrirbænum og blessun sinni. Fá hélt ungi maðurinn áfram ferð sinni og kom að skógi einum mikl- um. í honum miðjum var stórt gras- lendi þar sem úði og grúði af liinum dj'rlegustu skrautjurtum og á miðju graslendinu gnæfði höll ein við him- in, gerð af skíru gulli. Þarna slóð hinn veglegi búslaður Drífanda liins aldna, glæsilegur og stórfenglegur og allur líkt og á eld sæi. Eigi var Flóð- rekki bannaður aðgangur. Hann fór í gegnum fjölda herbergja án þess að verða var við nokkra lifandi veru. Loks fann liann í horni einu gamla konu, sem var að spinna. »Vertu vel- kominn Flóðrekkur«, mælli hún. »Eg verð fegin að sjá þig«. Þarna var liún komin hún guð- móðir hans, sú hin sama, er veilt hafði honum húsaskjól, þá er hann var að villast í skóginum með liið örlagaþrungna konungsbréf. »Hvert er erindi þitl hingað svona langa leið?« »Kóngurinn vill ekki gera mig að tengdasyni sínum endurgjaldslaust. Nú hefir hann heimlað að eg vinni það til að færa honum þrjú gullhár af höfði Drífanda«. Hin aldurhnigna kona brosti. »Drífanda hins aldna?« mælti hún. »Veit kóngurinn hver hann er?« »Veist þúhver hann er?« »Eg veit um það, því að eg er móðir hans. Drífandi er sólin sjál/, hin heiða sól í manns mynd. Á hverjum morgni er hann

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.