Unga Ísland - 01.05.1918, Blaðsíða 6

Unga Ísland - 01.05.1918, Blaðsíða 6
38 UNGA ÍSLAND »Það er golt, að þú ber mig ekki eins og þú barst umskiftinginn«, sagði sveinninn. »Hvað átt þú við með því?« spurði bóndi. »Tröllskessan gekk með mig á hinum gjáarbarminum og í hvert skifti, er þér skriðnaði fótur með krógann hennar, linaut hún með mig«. — »Segir þú satt, genguð þið hinum megin gjáarinnar?« spurði bóndi og var hugsi. »Eldrei liefi eg verið eins liræddur«, sagði sveinninn. »Þegar þú kastaðir umskiftingnum í gjána, ætlaði skessan að kasta mér á eftir. Hefði móðir mín eigi verið svo rösk að bjarga umskiftingnum — « Bóndi gekk hægar og liægar upp ásinn og tók nú að spyrja sveininn. »Þú verður að segja mér hvernig þér hefur liðið hjá lröllunum«. — »Það hefir nú verið svo og svo«, sagði drenghnokkinn, »en er móðir. min var góð við umskiftinginn, var tröllskess- an líka góð við mig«. »Barði hún þig ?« spurði bóndi. »Þegar móðir mín gaf umskiftingn- um rottur og mýs, fekk eg brauð og smjör, en þegar þið buðuð honum kökur og kjöt, voru mér boðnir orm- ar og pöddur. Fyrst ætlaði eg að sálast úr hungri. Ef móðir mín hefði eigi verið miskunnsamari en þið liin liefði verið úti um mig«. En er sveinninn mælti svo, sneri bóndi rösklega við og gekk ofan í dalinn beint til bæjar síns. »Eg veit eigi hvað veldur, en mér finst bruna- lykt, er eg hreyfi við þér og hár þitt er eins og sviðið væri eldi«. — »Mér var varpað inn í eldinn í nótt, um leið og þú slöngst umskiftingnum inn i liúsið, sem stóð í björtu báli og hefði móðir mín eigi bjargað umskift- ingnum, myndi eg hafa brunnið inni«. Þá varð bónda svo órólt, að hann nærri hljóp til að komast heim til konu sinnar. En alt í einu nam hann staðar. »Nú verður þú að segja mér, hvernig á því slóð, að skessan slepti þér«, sagði hann. »þegar móðir mín hafði lagt í sölurnar það, sem meira var en lífið, höfðu tröllin ekkert vald yfir mér lengur, en létu mig fara«, sagði sveinninn. »Hafði hún lagt í sölurnar það, sern meira var en lífið ?« sagði bóndi. »Já, því skyldi liún eigi bafa gert það, er hún lét þig fara frá sér, án þess að reyna að halda þér kyrrum«, sagði barnið. Húsfreyja sat kyr á sama stað við brunninn. Hún svaf ekki, en henni fanst hún orðin að steingjörfingi. Hún gat eigi hrært sig og hún veitti því enga eflirlekt lengur, sem franr fór í kringum lrana, fremur en hún væri dauð. t*á heyrði hún lirópað til sín með rödd. bónda síns. Við það lók bjarta lrennar aftur að slá og lífið að vakna með henni. Hún sló upp aug- um og liorfði glaðvakandi í kring. Kominn var bjarlur dagur, sólin skein, fuglar sungu, og henni fanst óhugs- andi, að svona fagran morgun ætli liún enn að bera alla óhamingju sína. En um leið sá hún sviðna raftana, sem lágu eftir, þar sem liúsið hafði staðið, og fjölda manns með svarlar hendur og hrírnug andlit. Og þá mint- ist liún þess, að liún vaknaði upp til verri óhamingju en nokkru sinni áð- ur. Samt hafði hún einhvern grun um, að nú væri hún gengin um garð. Hún leit eftir umskiftingnum. Hann lá nú ekki í knjám hennar og eigi sást hann heldur í grend. Ef hún hefði breylt að vanda, hefði hún æll af stað að leita lians, en nú kendi hún enkis kvíða hans vegna. Hún heyrði mann sinn hrópa úr fjarlægð. Hann kom ofan úr skóginum á leið lil bæjarins og alt þetla ókunna fólk, sem hjálpað liafði að slökkva, hljóp til móts við hann, sló hring um hann, svo hún gat ekki séð hann. Hún heyrði einungis, að bann hrópaði í

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.