Unga Ísland - 01.05.1918, Page 8
40
UNGA lSLAND
SmáYegÍ8.
Prestur nokkur hafði um langan
aldur átt hund einn og ekkert ann-
að húsdýra. Hann var mesta eftir-
lætisgoð á lieimilinu. Loks fékk prest-
ur sér nokkra alifugla og þjónarnir
hirtu þá. það lejmdi sér ekki, að
seppa var mjög illa við þetta. Var
hann mjög afbrýðissamur og í þungu
skapi út af þessu. Næsta sunnudag
var seppi einn heima, nolaði hann
sér þá tækifærið og drap tvær hæn-
ur og gróf þær. En ein klóin stóð
upp úr moldinni, og varð það til
þess að koma upp um seppa. Hús-
bóndi hans barði hann ekki, heldur
hélt yfir honum stranga ræðu. Hann
greip í hálskragann hans og sagði:
sÞú hefir syndgað. IJú hefir orðið
sekur um morð, og það á sjálfan
sunnudaginn. Þú, hundurinn prests-
ins, að haga þér svona svivirðilega og
nola þér að eg var ekki heima«.
Prestur talaði lengi og var hinn harð-
orðasti.
Snemma næsta morgun varð prest-
ur að fara að heiman. Fór hann án
þess að tala nokkurl hlýlegt orð við
hundinn. Sagðist hann gera það með
vilja, til þess að láta hann skammast
sín rækilega. Eftir tvo daga kom
prestur heim. Það fyrsta s'em honum
var sagt, var að hundurinn hans væri
dauður. Hann hafði ekki bragðað
þurl né volt, eftir að prestur talaði
yfir honum. Lá liann eins og dauður
og slundi og dó skömmu áður en
prestur kom heim.
Siggi var nýkominn i vinnuna á
skipinu. Eilt sinn klifraði hann upp
í reiðann, en kom ekki ofan aftur.
»Hvað gengur að þér Siggi?« kall-
aði skipstjórinn, »því kemurðu ekki
ofan aftur?«
»Eg kemst ekki ofan«, svaraði Siggi.
»Þú getur þó líklega komist ofan
alveg eins og þú komst upp«, sagði
skipstjórinn.
»Hamingjan hjálpi mér«, sagði Siggi,
»það er mér ómögulegt, því þegar eg
kom upp, þá var höíuðið á undan«.
Maður nokkur stóð á braularstöð
og beið eftir lestinni. Alt í einu tók
hann eftir því, að liann stóð ofan á
pilsfaldi ungrar hefðarkonu. Þá varð
honum þetta að orði: »Þó að eg hafi
ekki vald lil að draga englana ofan
úr himninum, þá hefi eg þó megnað
að negla einn þeirra við jörðina«.
Hefðarkonan fyrirgaf honum.
»Eg vona að þú sért þó ekki í
neinum félagsskap við þennan ná-
unga, sem þú varsl að tala við rétt
núna«.
»Dettur þér í hug að eg sé í fé-
lagsskap við hann? Hvaða hugtnyndir
hefir þú um mig? Nei, því hann er
það fyrirlitlegasta mannhrak, sem
þeksl hefir. Verri bófi hefir aldrei
sloppið óhengdur«.
»Eg veit það, en því erlu að eiga
nokkrar samræður við hann?«
»Eg er — er — málafærslumaður-
inn hans«.
Grjalddag;i Unga íslands er í mai.
Munið að senda andvirði blaðsins.
Gjaldskrá fyrir einstök eint. og út-
sölumenn er í 1. tbl. þessa árgangs.
Útgefendur: Steingr. Arason. Jörnndnr Brynjólfsson.
Frentimiðjan Gutonberg.