Unga Ísland - 01.08.1918, Síða 7

Unga Ísland - 01.08.1918, Síða 7
UNGA ÍSLAND 63 Ali, svo hann varð að flýja sem fæt- ur toguðu, og yfirgefa höfuðfatið með steininum í. Útataður í blóði og óhreinindum komst hann heim til sín, og kvartaði sáran yfir því, að missa hinn dýr- mæta stein; jafnframt því sem hann var gramur yfir heimsku fólksins, að það skyldi ekki einu sinni vera mót- tækilegt fyrir þau vísindalegu, en þó einföldu sannindi, er hann vildi fræða það um. Hinn bróðirinn, sá næst elsti, gætti sin betur. Eftir að steinninn, sem honum hlotnaðist, var kominn í eigu hans, ihugaði hann vandlega, hverja dýr- gripi hann skyldi óska sér. Hann vildi ekki óska neins þess, sem ekki var fram úr skarandi dýrmætt. Þess vegna gekk hann fyrst út á sölu- torgið, til að spyrjast fyrir um verð og gæði á hlutum, sem þar voru á boðstólum, til þess að hafa þó eitt- hvað sér til leiðbeiningar. Loksins sá hann verulega dýrmæt- an hlut. Það var tyrkneskt sverð. Handfangið var alt greypt með de- möntum og rúbínsteinum. Kaupmað- urinn heimtaði 1500 gullpeninga fyrir það. Fólkið umhverfis hann fór að hlusta og gá að, hver það væri, sem spyrði eftir svona verðmiklum hlut. Um leið og Ali Hassúf reiddi sverðið í hendi sér, var burðarstóll borinn fram hjá. Vindurinn haíði feykt frá stóltjaldinu, svo Hassúf kom þar auga á hina fegurstu mey, sem hann hafði nokkurn tíma séð. Honum var sagt, að það væri Fatmi, dóttir kalíf- ans. Honum datt í hug, að hámark gæfu sinnar yrði það, ef hann gæti fengið sér hana fyrir eiginkonu, og ólíklegt fanst honum það ekki, að kalífinn vildi gefa sér hana, þar sem hann sæi, að hann gæti eignast, þeg- ar hann vildi, fyrirhafnarlaust verð- mætuslu dýrgripi, sem tjl væru í heiminum. Hann afréð því að kaupa sverðið, en bað kaupmanninn að geyma það fyrir sig til næsta dags, af því hann hefði ekki svo mikla peninga á sér, en þyrfti að sækja það sem á vant- aði og kæmi svo aftur. »Eg hafði ekki búist við, að það væri svona dýrt«, sagði hann, »ann- ars hefði eg haft með mér nóga peninga«. Þegar hann kom heim, söðlaði hann asna sinn og lét upp á hann tvær stórar körfur, beið svo þangað til farið var að rökkva. Hann reið nú út á eyðimörkina, þangað til hann þóttist vera kominn nógu langt, svo hann ekki sæist af neinum. Þóttist hann nú hafa verið nógu varkár, en þrátt fyrir það tók hann ekki eftir, að þrír ískyggilegir menn veittu hon- um eftirför, frá því hann fór frá sölu- torginu og læddist út á eyðimörkina. Hann staðnæmdist hjá feysknum pálmaviðartrjám, breiddi stórt klæði ofan á sandinn, neri steininn og sagði: »Andi steinsins færðu mér 20 poka fulla af gullpeningum«. Hassúf þagnaði um stund, því hon- um heyrðist mannamál í grend við sig. Þegar það þagnaði aftur, endurtók hann ósk sína þrisvar sinnum. Hon- um heyrðist eins og eitthvað þungt hlunkast niður á klæðið, og þegar hann gætti betur að fann hann 20 úttroðna poka. Hann opnaði hvern af öðrum og sá að í þeim voru skín- andi gullpeningar. í hendingskasti lét hann pokana í körfurnar á asnanum, og flýtti sér til baka. Hann heyrði nú aftur Iágt hvísl og það nær sér en áður. Hann stans- aði, hélt niður í sér andanum og hlustaði. Alt í einu var þrifið sterklega í hann.

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.