Unga Ísland - 01.09.1919, Side 2

Unga Ísland - 01.09.1919, Side 2
66 UNGA ÍSLAND »Það var fyrir hundrað og átta árum síðun«, sagði Maria. »0, það er ekki svo langt síðan, það eru ekki nema sjö ár síðan«, sagði Doddi. »Hvað áttu við, Doddi«, sagði kennarinn og hvesti á hann augun, »þú ert ókurteis að grípa fram i; en hvað meinarðu með því að það séu ekki nema sjö ár siðan?« »Afmælið mitt«, stamaði Doddi. »Eg er ekki hundrað og neilt, eg er bara sjö ára«. »Komdu hérna, vinur minn«, sagði María kennari blíðlega og rétti fram hendina. »Komdu, litli vinur. Eg óska þér hjartanlega til hamingju! En — en eg var að tala um fæðingu Jóns Sigurðssonar«. Veslings Doddi. María benti hin- um börnunum að hlæja ekki, með því að hrista höfuðið til þeirra yfir öxlina á Dodda, þar sem liann sat í kjöltu hennar. En eg er hræddur um að börnin hafi átt ilt með að stilla sig. Þau hlógu dátt, öll neina Jón; hann var að virða Jörund fyrir sér þar sem hann lagði af sér konungs- skrnðann og fór í skinnstakkinn, og var því í of döprum liugleiðingum til þess að geta hlegið með hinum börnunum. & Strákurinn í gæsaregginu, (Nl.) í þessu bili drapst eldurinn, svo þeir sáu ekki á spilin. »Nú verðum við að kurla i eldinn«, sagði strákur og hjó öxinni í furu- kylfuna. Rak hann síðan lleyginn í rifuna, en kylfan vildi ekki klofna, hvernig sem strákur streittist við. »Það er sagt, að þú sjert sterkur, komdu nú og sýndu það«, sagði Stráksi við Kölska. »Spýttu í lófann og rífðu svo kylfuna sundur með klónum«. Kölski kom og stakk krumlunum í rifuna, en þá sló Stráksi fleyginn úr svo Kölski varð fastur. Ljet Stráksi síðan axarskallann dynja á baki Kölska, en hann baðst vægðar. Stráksi var lengi tregur, en lofaði Kölska þó lausn, ef hann gerði engum framar mein, sem í höllina kæmi. Einnig varð hann að lofa að leggja brú yfir mjóddina, og átti hún að vera full- gjör þegar ísinn leysti af ánni. »Harður er sá, sem á eftir rekur«, sagði Iíölski. En þar sem ekki var annars úrkostur lofaði hann þessu. En endilega vildi hann fá fyrstu sál- ina, sem færi yfir brúna; það átti að vera brúargjald. Stráksi lofaði því. Slefti hann síðan Kölska, sem flýtti sjer heim. En Stráksi sofnaði og svaf fram á bjartan dag. Þegar kongur kom til þess að vita hvort Stráksi væri tættur i smá parta eða stór stykki, þá varð hann að vaða í peningum áður en hann komst að rúminu. Peningar lágu í pokum og hrúgum alstaðar. En í rúminu lá Stráksi og hraut. »Guð hjálpi henni dóttur minni og mjer«, sagði kongur. Alt var vel gjört, sem búið var, en ekki var að nefna brúðkaup, fyr en brúin væri fullgerð. Einn góðan veðurdag var brúin komin á og Kölski stóð á henni miðri og beið eftir brúartollinum, sem hann átti að fá. Strákur vildi fá konginn til að reyna brúna, en það þorði hann ekki fyrir sitt líf. Þá settist Stráksi sjálfur á hestbak, tók selstúlku kongsins, sem var mjög feit og digur. og setti hana á hnakknefið fyrir framan sig. Var þá því likast, sem hann reiddi furukylfu. Reið hann síðan brúna á spretti svo dundi undir.

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.