Unga Ísland - 01.10.1919, Page 8
80
UNGA ÍSLAND
»Jeg mana þig að stappa ef nokkur
ærlegur blóðdropi er í þjer. Stappaðu!
Stappaðu!« Balkis sá flugdrekana
taka sinn undir hvert horn á höll-
inni. Hún klappaði saman höndun-
um hljóðlega og sagði: »Loksins ætlar
þá Salomon konungur að gera það
fyrir fiðrildið sem hann hefði átt að
gera fyrir löngu, til þess að hafa
hemil á drottingunum sínum«.
Nú stappaði fiðrildið og flugdrek-
arnir flugu með höllina þúsund mílur
upp i loftið. Þrumurnar kváðu við
og myrkið varð svo svart að ekki
sást handaskil. Kvenfiðrildið flögraði
um í dimmunni og bar sig aumlega.
»Jeg skal vera góð«, sagði hún; »ó
hvað jeg sje eftir að hafa sagt þetta.
Góði, láttu höllina koma aftur. Elsku
besti maðurinn minn, jeg skal aldrei
rífast framar«. Frh.
Skritlur,
Presturinn: Skilur þú, Nonni,
hvernig Jesús gat mettað 5000 manns
með fimm brauðum og tveim fiskum?
Nonni: Þeir hljóta að hafa borðað
feiknin öll af kartöflum með.
Kaupstaðarbúinn: Hvað er þessi
kýr gömul?
Bóndinn: Tveggja vetra.
Kaupstaðarhúinn: En hvernig
getið þið sjeð það?
Bóndinn: Jeg sje það á hornunum.
Kaupstaðarbúinn: Já, auðvitað!
Jeg sje það nú að hún hefir tvö
horn.
Pilturinn: Jeg skal ábyrgjast að
þú giftist fyrsta asnanum sem biður
þin.
Stúlkan: Æ, góði, þelta bónorð
kemur svo óvænt að jeg verð að
biðja um umhugsunarfrest.
Jón (við Sigga, sem er með sokk-
ana niðrum sig): Hver er nú dáinn?
Siggi: Jeg veit ekki til að neinn
sje dáinn.
Jón: Af hverju gengurðu þá með
sokkana í hálfa stöng.
Læknirinn: Hvað hefirðu nú á
samviskunni, kona góð?
Konan: Útbrot.
Júlli: Er hann Doddi heima.
Mamma Dodda: Hann liggur nú
í rúminu í dag, því hann borðaði
yfir sig af rúsinugraut í gær.
Júlli: Er nokkuð eftir af grautn-
um?
Afgreiðsla Unga íslands
fyrir þá, sem staddir eru í Reykjavík
er flutt á Laugaveg 17 (bakhúsið).
Ung-a ísland,
barnablað með myndum. Kemur út einu
sinni í mánuði í 4 blaða broti, og auk
þess tvöfalt jólablað. Verð árg. er 2 kr.,
er borgist fyrir júnilok ár hvert. Skilvisir
kaupendur fá kaupbæti. — Afgreiðslan er
á Laugavegi 17 (bakhúsið).
DúríU/prnHarínn ræðir dfraverndunarmálið °S
uyi dvei IIUUI lllll flytur dýrasögur. Sex arkir á
ári, verð 1 kr. Mynd í hverju blaði, þegar kostur
er. — Útgefandi: Dýraverndunarfjelag íslands. —
Afgreiðsla: Laugavegi C3, Reykjavik. — Útsölumenn
fá fimta livert eintak i sölulaun. :: :: :: ::
Útgefendur: Steingr. Arason og »Skóla-
fjelag Kennaraskólans«. Ritstj.: Steingr.
Arason.
Utanáskrift blaðsins (ritstjóra og af-
greiðslumanns) er: Unga ísland, Box 327,
Reykjavik.
Prentsmiðjan Gutenberg.