Unga Ísland - 01.11.1919, Síða 6

Unga Ísland - 01.11.1919, Síða 6
86 UNGA ISLAND Skemtigarðurinn á Friðriksbergi, Skamt frá Kaupmannahöfn lá fyrr- um fagurt sveitaþorp, er hjet Frið- riksberg. Þar reistu konungar Dana sjer höll, sem þeir bjuggu í á sumr- um, og umgirtu hana fögruin garði. Þar skemtu þeir sjer yfir sumartím- ann við allskyns leiki og gleðskap. Seinna, er Kaupmannahöfn óx svo mjög, teygði hún angana út á Frið- riksberg, og nú sjást ekki lengur nein greinileg takmörk þar á milli. Frið- riksberg er nú orðið einn hluti hinn- ar stóru borgar. Konungarnir eru hættir að búa í höllinni gömlu. En garðurinn fagri á Friðriksbergi er enn við líði. Nú mega allir koma þar og skeinta sjer, lifa og láta eins og þeir vilia. Einna mest þykir Dönum í það varið að fara út á Friðriksberg til »að velta sjer í grasinu«, sem þeir kalla, því það er annars bannað í ílestum skemtigörðum að leggjast í grasið, en eins og myndin ber með sjer, veigra þeir sjer ekki við því í Friðriksbergsgarðinum. Á myndinni sjáum við gömlu konungshöllina gægj- ast fram milli trjánna. Fyrir framan hana er gosbrunnur og alstaðar sjá- um við fólkið vera að skemta sjer. Það fer þangað í frístundunum til þess að hrista af sjer borgarrykið, velta sjer í grasinu og teyga ylm- þrungið kvöldloftið úti á Friðriksbergi. En allir verða þeir að fara þegar lilukkan slær ellefu. Þá er garðinum lokað. og kyrð og friður næturinnar ríkir í þessum gamla, fagra garði þar til sólin rís að morgni. Danskir þingmenn. (Með mynd). Á myndinni sjáum við nokkra þingmenn danska ríkisins. Fremstur er Zahle fosætisráðherra, með skjala- tösku undir hendinni; er hann auð- sjáanlega í samræðu við Iíláus Bernt- sen fyrv. forsætisráðherra. Við borðið, fremstur hægra megin, situr Borg- bjerg', jafnaðarmaðurinn mikli, og annar maður lengst til vinstri, er J. C. Cristensen, sem báðir voru í dönsku sendinefndinni, er kom hingað í fyrra, og fyrstir skrifuðu undir fullveldissamning íslands. Þingmennirnir eru saman komnir á Amalíuborg, konungshöllinni, til þess að ræða einhver mikilsverð málefni er snerta danska ríkið, ef til vill er eittliver't málefnið okkur íslendingum viðkomandi og eigum við þá mikið undir undirtektum þessara manna. Nú þurfum við ekki lengur að leggja mál okkar í þeirra dóm. Nú ráðum við okkur sjálfir, en að mörgu góðu meigum við minnast þeirra, frænda okkar og sambands- manna. Kaupbætirinn. Eins og minst var á í 8. tbl. U. ísl. þ. á., hafa samgönguvandræðin hamlað því að kaupbætirinn hefir ekki getað komið. Það var ákveðið, að kaupbætirinn í ár, yrði myndir af þeim Marteini Lúther og Þorsteini skáld Erlingssyni. Nú er svo langt um liðið síðan myndamótin voru send frá Danmörku, að við teljum víst að þau sjeu algerlega glötuð. Fari svo að mótin komi á næstunni, sendum við kaupbætirinn með fyrsta

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.