Unga Ísland - 01.11.1919, Blaðsíða 7

Unga Ísland - 01.11.1919, Blaðsíða 7
UNGA ISLAND 87 pósti öllum skilvísum kaupendum, annars sendum við hið fyrsta annan kaupbætir, sem að engu mun standa hinum að baki. * ■> Fiðrildið sem stappaði. Eftir Rudijard Kipling. Fiðrildið var nærri eins hrælt eins og kona hans. Salómon konungur valt um af hlátri. Þegar hann var búinn að ná andanum eftir hláturinn, hvislaði hann að fiðrildinu: »Stappaðu litli bróðir, og gefðu mjer aftur höllina mína, galdrakarlinn þinn. »Jæja, góða mín«, sagði fiðrildið og reyndi að halda jafnvæginu, »þarna getur þú nú sjeð hvað leitt hefir af nöldrinu í þjer. Þetta auðvitað hefir engin áhrif á mig, eg er nú svo vanur við að sjá annað eins. — En til þess að geðjast þjer og Salómoni konungi, þá get eg nú gjarnan fært þetta aftur í lag«. Svo stappaði hann aflur og drek- arnir komu fljúgandi með höllina og tyltu henni niður svo að hvergi sást misfella. Nú kvað við ógurlegur liávaði. Drotningarnar níu hundruð níulíu og níu runnu út úr höllinni og æptu og kölluðu á börnin sín. þær þutu nið- ur marmaralröppurnar undir gos- brunninum. Hundrað í brjósti fylk- ingar. Balkis hin vitra drotning gekk fram tígulega og ávarpaði þær: »Drolningar! hvaða ósköp ganga á?« Þær stóðu á marmaralröppunum hundrað í brjóstfylkingu og æptu: »Hvaða ósköp ganga á?; við sáturn inni í gyltu höllinni í ró og friði eins við erum vanar, þá hverfur höllin alt í einu með þrumum og eldingum og við sitjum eftir í koi- svarta myrkrinu innan um skrímsli og flugdreka sem rótast um i kring- um okkur. Hvað er um að vera? Ó, æðsta drotning. Við erum óskaplega hræddar af þessum ósköpum, því þetta voru óskapleg ósköp og ólík öllum öðrum ósköpum sem við höf- um nokkurn tíma þekt«. Þá tók til máls Balkis hin fagra, sú er Salómon konungur elskaði. Drolningin af Sheba og Sabía og Gullfljótum suðursins — alt frá eyði- mörkinni Zinn og að tindum Zim- balo. Balkis sem var næstum því eins vitur og Salómon konungur sjálfur. »Drotningar«! sagði hún. »Þetta er ekki nema smáræði. Fiðr- ildi eitt hefir kvartað um að konan hans gerði honum súrt lifið með rifrildi. Og Salómoni, konungi vor- um, hefir þóknast að kenna henni að tala með auðmýkt og liæversku, því að það er álitin dygð meðal fiðrilda kvenna«. Pá tók til orða drotningin af Egyptalandi, dóttir Faraós og sagði: »það er ómögulegt að höllin okkar hafi verið rifin upp með rótum eins og gulrófa bara vegna lítils skor- kvikindis. Nei, Salómon konungur hlýtur að vera dauður, og jörðin liefir skolfið svona við tíðindin«. Balkis benti þessari freku drotn- ingu án þess einu sinni að líta á hana. »Komið þið allar með mér«, sagði hún. Þær gengu allar niður marmaraþrep- in, hundrað i fyrir. Þegar þær komu að kamfórutrjenu, þá sat Salómon hinn vitri konungur þar ennþá með silt fiðrildið á hverri hönd og reri fram og aftur. Þær heyrðu greinilega að bann sagði: »Ó, þú kona bróður míns í loftinu. Mundu frá þessari stundu að vera manni þínum geðfeld í öllu svo að þú ekki reitir hann til

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.