Unga Ísland - 01.11.1919, Blaðsíða 8
88
UNGA ÍSLAND
reiði og hann stappi niður fótunum
aftur, því að hann hefir sjálfur sagt
að liann sje alvanur gerningum. Hann
er auðsjáanlega ramgöldróttur, þar
sem hann liefir tekið í burtu sjálfa
kóngshöllina. Lifið nú í friði litlu
vinir. Svo kysti liann þau á vængina,
og þau flugu út í loftið.
Drotningunum brá svo við þelta
að þær fjellu allar fram á ásjónu
sínar, nema Balkis hin ágæta drotn-
ing af Sheba. »Hvað eigum við
skilið?« sögðu þær, »og hvers meg-
um við vænta, ef öll þessi undur
hafa verið gerð vegna þess að lítið
fiðrildi var óánægt við konuna sína?
Við sem höfum ónáðað og ert kon-
ungin með hávaða og rifrildi í marga
daga«.
Pær drógu blæjur fyrir andlitin,
hjeldu báðum höndum fyrir munn-
inn og gengu á tánum inn í höllina,
þögular eins og mjTs.
En Balkis hin fagra og göfuga
drotning gekk gegnum liljurnar og
inn í skugga kamfórutrjesins, lagði
höndina á öxl Salómoni konungi og
sagði:
Frh.
Gátur.
1. Hvaða karlmannsnafn verður að
fiski ef fyrsta slafnum er slept?
2. Hvaða kvenmannsnafn verður að
fata-efni ef fyrsta stafnum er
slept?
3. Sólinn rifin festing frá
fóttroðinn var jörðu á,
fljóta aðgerð þurfti þá;
þessa gátu ráða má.
Hvað er orgel?
Indíáni nokkur hafði einu sinni
á ferðalagi sjeð orgel og heyrt Ieikið
á það. Þegar hann kom heim, lýsli
hann því svona fyrir ættfólki sínu:
»Hvítu mennirnir eiga kynlegt dýr.
Þeir geta látið það syngja ef þeir
berja á tennur þess, sem sumar eru
hvítar en aðrar svartar. það sest
maður, kona eða jafnvel barn, fyrir
framan opið ginið á því, strýkur með
fingrunum eftir tönnum þess, og þá
byrjar það strax að sjmgja. Það
syngur talsvert hærra en fuglarnir,
en það hreyfist aldrei af blettinum
nema maður dragi það til, og það
merkilegasta er, að það bítur aldrei
þó það hafi þessar voðalegu tennur.«
Afgreiðsla Unga íslands
fyrir þá, sem staddir eru í Rejdcjavík
er á Laugaveg 17 (bakhúsið).
Unga ísland,
harnablaö með myndum. Kemur út einu
sinni í mánuði í 4 blaða broti, og auk
pess tvöfalt jólablað. Verð árg. er 2 kr.,
er borgist fyrir júnílok ár hvert. Skilvísir
kaupendur fá kaupbæti. — Afgreiðslan er
á Laugavegi 17 (bakhúsið).
n\/rn\/prnrlqrinn ræöh' dVaverndunarmálið og
L/y I avt/l I lUalM III fly(Ur dýrasögur. Sex arkir á
ári, verð 1 kr. Mynd i hverju blaði, þegar kostur
er. — Dtgefandi: Dýraverndunarljelag íslands. —
Afgreiðsla: Laugavegi C3, Reykjavík. — Dtsölumenn
fá fimta livert einlak i sölulaun. :: :: :: ::
Útgefendur: Steingr. Arason og »Skóla-
fjelag Kennaraskólans«. Ritstj.: Jónas
Guðmundsson.
Utanáskrift blaðsins (ritstjóra og af-
greiðslumanns) er: Unga ísland, Box 327,
Reykjavík.
Prentsmiðjan Gutenberg.