Unga Ísland - 01.10.1927, Qupperneq 1
Regína Magnúsdóttir - sunddrotning íslands.
Hjer Jmtist mynd itt'
ol<kar ágætustu sundkonu,
sem alment er kölluð
sunddrotning Islands. —
Hún á þetta heiðursnafn
vel skilið, því hún er
sundkona með afbrigð-
uin. Hún syndir fallega,
er þolin og svo hraðsynd,
að einungis þeir snjöll-
ustu af sundmönnum
vorum eru henni jafn-
fljótir.
Regína á kyensundmet
i 50 st. sundi á 43,0 sek.
og ennfremur í 200 st.
sundi á 3 mín. 57,8 sek.
En það sem meira er
um vert er það, að hún á
islenskt met í 1000 stiku
sundi með frjálsri að-
ferð á 22 mín. 1,2 sek.
og ennfremur í 100 stiku
baksundi á 1 mín. 51,3
sek. Enginn íslenskur
karlinaður hefir orðið
henni jafnsnjall enn sem
komið er i þessu sundi.