Unga Ísland - 01.10.1927, Page 4

Unga Ísland - 01.10.1927, Page 4
76 UNGA ÍSLAND „Það geri jeg“, sagði álfkonan. „Ó, er það salt“, sagði Maria. „Hef- irðu gullúr og perlubönd og brúður, sem geta opnað augun og lokað þeim?“ Maríu varð litið í spegilinn og sá sig og álfkonuna. Kinnarnar á henni voru eins og rósir og augun eins og stjörn- ur. En sjálf var María föl og dapur- leit. „Æ, nei, annars", sagði hún. „Jeg vil ekki brúður og perlubönd. Jeg vil bara vera eins og þú, með rjóða vanga og varir. Ó, hvað mamma yrði þá kát“. „Það gleður mig, að þú velur svona viturlega“, sagið álfkonan. „Ef þú sef- ur við opna glugga á nóttunni, og leik- ur þjer úti á daginn, þá skal jeg sjá um að þú fáir ósk þína uppfylta. Viltu koma úl með mjer?“ sagði hún og tólc í hönd Maríu og leit út um gluggann. Þær sigldu út um opinn gluggann. Stjarnan framan á húfu álfkonunnar íýsti þeim leiðina. Það var einni stund eftir miðnætti og stjörnurnar tindruðu í myrkblámanum. Bærinn hennar Mar- íu hvarf þegar. Þær voru komnar langt út í geim. María varð hrædd, en óðara en hún leit framan í álfkonulia varð hún róleg og glöð. María var nú búin að ferðast svo Jangt með álfkonunni, að henni datt í hug að gaman væri að vita hvað hún hjeti. Hún sagði því mjög ísmeygilega: „Hafa álfarnir nöfn?“ „Það hafa þeir“, sagið álfkonan. „Þegar jeg sigli í loftinu, eins og núna, nefnir fólkið mig GoIu“. Þær flugu nú yfir grænt tún og grös- in hneigðu sig, eins og fólk í dansleik. Þær flugu gegnum skóg, og birkilaufin fóru í hvíslingaleik. Uppi á skógarhæðinni var Htið hús. Alt var hljótt og þær settust á glugga- silluna, Iögðu ennið að rúðunni og litu inn. Stjarnan á húfu álfkonunnar gerði glaðabjart í stofunni. Þar svaf lítil stúlka í rúmi sínu. Hún bylti'sjer og’ talaði upp úr svefninum. Andlitið var góðlegt og fallegt, en fölt og veiklulegt. „Ó, þetta er hún Bína, leiksystir mín“, sagði María. „Hún er í skólan- um með mjer. En hvað hún er föl“. „Já“, sagði álfkonan og andvarpaði. „Jeg kem að glugganum hjá henni á hverri nóttu með gjafirnar mínar, en hann er altaf harðlokaður. Á daginn kemur hún sjaldan út til að sjá mig“. „Jeg skal segja henni þetta“, sagði Maria, hún fer þá ef til vill að opna gluggann sinn“. Þær svifu fram hjá reykháfnum. María hóstaði, af því að hún andaði ofurlitlu af reyk að sjer. Hún varð líka dálítið hrædd, af því að hún sá neista- flug í reylcnum, en álfkonan góða sá um, að ekkert grandaði henni . Þær flugu upp, hærra og hærra. Þær stefndu nú að litlu lnisi; það var svo skrítið. Fyrst var það eins og depill, svo langt var það burtu. Þegar þær komu nær, sáu þær að gluggarnir voru opnir, og tjöldin fuku út og inn. „Við skulum fljúga beint inn“, sagði álfkonan. Þær gerðu það lika, og námu staðar á rúminu til fóta. En hvað stof- an var inndæl, alt var svo hreint og snoturt. Þær gáfu sjer nú ekki tíma til að athuga margt þarna inni, því að lít- ill drengur ineð rósrauðar kinnar svaf þar í vöggu. Á öðrum stað stóð fann- hvítt rúm. Þar lá skinandi falleg lítil stúlka. Kinnarnar á henni voru eins rauðar og á brúðunni hennar Maríu. „Ljómandi er hún falleg, en hvað hún sefur vært“, sagði María. Hún leit

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.