Unga Ísland - 01.10.1927, Side 8

Unga Ísland - 01.10.1927, Side 8
80 UNGA ÍSLAND göngustafirnir þeirra væru holir inn- an, og silkifiðrildisegg geymd þar innan i. Þessi egg urðu að lirfum (tólffótungum) og þær aftur að fiðr- ildum, sem urðu forfeður allra vest- rænna silkifiðrilda. Frá Miklagarði (Konstantinopel) barst silkiræktin lil Sikileyjar árið 1146. Var það að ráð- um Rogers II. Stofnaði hann verk- smiðju í Palermó. Þaðan barst það til ítaliu og Spánar á 13. öld. Til Frakk- lands og Niðurlanda kom það fyrst árið 1521. Strokumenn fluttu það frá Antverpen til Englands. Það voru mót- mælendur ofsóttir af kaþólskri kirkju Allar tilraunir til að rækta silki á Eng- landi hafa þó mishepnast. Einna mest reyndi James I. og síðar bresk-írska silkifjelagið 1828. Á síðari tímum hefir kynið verið hætt með eggjum frá Kina. Kínverjar unga út eggjunum við ofn- hita. Því minni sem hitinn er, Því seinni er ungunin, en því stærri verða líka lirfurnar, þegar þær fara að spinna. Þeim eru gefin lauf af hvítu mórber- trje, en þau eta einnig lauf af höf- uðsalati. Þegar lirfan er fullvaxin, spinnur hún þráðinn og vefur um sig, svo að hún lítur út eins og þráðar- leggur. Hún er þá á stærð við litlafing- ur á fullorðnum karlmanni. Þráður- inn verður til úr seigum vökva, sem myndast í kyrtli á afturenda lifrunnar. Nokkrar lirfur eru valdar úr og geymdar, til þess að fá ný fiðrildi. Hinar eru settar i heitt vatn og þvegn- ar. Þá er undið af þeim og tvinnað og margfaldað, uns það verður nógu sterkt, til þess að vefa úr því. Þá er silkið ljósgult að lit og nefnist hrá- silki. Þannig er það flutt í verksmiðj- urnar, þar sem það er litað og unnið í dýrindis dúka. Lyon á Frakklandi er frægust horg fyrir þann iðnaði. Frh. 0 Fiðrildið. Einu sinni voru þrjú fiðrildi, hvítt, rautt og blátt. Einn dag voru þau að Jeika sjer i sólskininu. Alt í einu fór að rigna. Þau flýttu sjer heim. En dyrnar voru lokaðar og þau fundu hvergi lykilinn. Þau fóru þá til rósar- innár, og háðu hana að opna blóinið fyrir sjer og lofa sjer inn. „Jeg skal Iofa því rauða inn, það er eins á litinn og jeg, en hin l'á ekki að koma inn“. Þá sagði rauða fiðrildið: „Ef hræður mínir fá ekki að koma inn, þá vil jeg ekki koma inn heldur“. Þau flugu nú til liljunnar og háðu hana að Ijúka sundur hlóminu, en hún sagði: „Jég skal lofa því hvíta að koma inn, það er eins á litinn og jeg, en hin fá ekki að koma inn“. Hvíta fiðrildið sagði: „Fyrst hræður inínir fá ekki að korna inn, vil jeg ekki heldur koma“. — Og svo flugu þau hurt. Sólin sá hve góð fiðrilin voru hvort við annað. Hún fór að skína og þurk- aði vængina á þeim öllum, svo að þau komust heim. Dyrnar voru opnar og þau flugu inn. Síðasti geislinn hafði opnað þær fyrir þau.

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.