Unga Ísland - 01.03.1933, Síða 4
32
UNGA ÍSLAND
Utilegumenn á Snæfellsnesi.
III.
Langt er nú síðan Bárður Snæfellsás
hafði bólfestu á Snæfellsjökli og ekki
er þess getið, að þar hafi verið manna-
byggð síðan, en lengi var það trú raanna,
að þar byggju tröll.
Nú í vetur hafast þó tveir mennskir
menn við á Snæfellsjökli. í fyrra sumar
inu hafa þeir sett upp ýms áhöld til mæl-
inga. Þar er rimlákassi, sem hitamælar
hanga í, svo að þeir geti mælt hitann. Þar
er líka mælit, til þess að mæla úrkomu
og vindmælir, til að mæla veðurhæðina
eða vindhraðann. Þarna er mjög storma-
samt og oft blindhríð, þótt veður sé all-
gott í sveitunum í kring. Svo hafa þeir
reistu þeir sér lítið timburhús á snjó-
lausum hrygg austan í jöklinum. Mun
það vera í 750 m. hæð frá sjávarmáli.
Þeir ætluðu að reisa húsið uppi á há-
jöklinum, en vegna illviðra var það ekki
hægt. — Annnar þessara manna heitir
Zingg (frb. tsing) oger sunnanúr Sviss-
landi. Hanner veðurfræðingur og jökla-
fræðingur. Hinn heitir Jensen og er frá
Danmörku. Hann er loftskeytamaður.
Auk þess hefir íslenskur piltur, er Matti
heitir, oft verið hjá þeim. Hann er frá
Ólafsvík.
Hvað eru nú þessir menn að gera þarna
uppi í jökli um hávetur? Þeir hafa ver-
ið sendir þangað, til þess að athuga veðr-
ið og eiga að dvelja þar, þangað til næsta
haust, eða í heilt ár. — Úti fyrir hús-
dáiitla loftskeytastöð, svo þeir geta sent
veðurskeyti og komið orðsendingum til
mannabyggða. Á annari myndinni sést
kofinn þeirra. Hann er allur hrímaður
að utan. A hinni myndinni sjást þeir fé-
lagar hjá annari loftskeytastönginni.
Þeir eru sýnilega að koma ofan af
jökli, og hafa bundið um sig kaðli, til
þess að geta bjargað hvor öðrum, ef
annar væri svo óheppinn að detta í jök-
ulsprungu.
Þó að kollurinn, sem húsið stendur á,
verði snjólaus að sumrinu, safnast þar
mikill snjór að vetrinum. I illviðrakafla,
sem gerði fyrra hluta janúarmánaðar þ.
á., fennti húsið í kaf og áttu þeir félag-
ar þá erfitt með að komast út úr því.
Þeir kalla kofann sinn Jökulhús. Það-