Unga Ísland - 01.03.1933, Page 12

Unga Ísland - 01.03.1933, Page 12
40 UNGA ÍSLAND Hann gekk út, án þess að borða kvöldverð, og fram hjá húsunum, þar sem óvinir hans b'juggu, sem reyndu nú að ná sér niðri á sak- lausu baminu, og gera því lífið óbærilegt. Osjálfrátt komu honum þessi orð í hug: „Syndir feðranna koma niður á börnunum“. Honum fannst það ranglátt lögmál. Hann kom að auðum húsum, þar sem öll starfsemi hafði hætt, vegna bankahrunsins. „Það voru börn þessara manna, sem höfðu farið svona með litla nafna lians og rænt úr hjarta hans ástinni til afa síns. Niðurlag næst. Víðar eru börn en á íslandi, sem eru frædd um aukna hollustuháttu og aukið heilbrigði. Rauði Kross Noregs hefir nýlega gef- ið út bók, sem heitir á norsku ,,Pas vaa hrlsen“. Þessi bók var gefin öllum skóla- börnum í Noregi. Bókarinnar verður nánar getið í Unga íslandi við tækifæri. í Svíþjóð kom út á síðasta ári stór- merkileg bók. sem heitir á sænsku „Hur vi blivit starJca, och friska“. Á íslensku: Hverngi við verðum hraust og sterk. Það er heilsufræði-lesbók, skrifuð af sænsk- um börnum og bókin er prýdd fjölda mynda og teikninga, sem börnin hafa einnig teiknað og málað siálf. Fræðslu- málastjórinn sænski, B. J. Bergquist, rit- ar formála fyrir bókinni, en starf barn- anna er unnið undir leiðsögu skólalækn- is, dr. med. C. Aug. Ljunggren. Næsta hefti flytur kafla og myndir úr bessari bók. Verður það efni flutt í blað- inu til þess að kynna þetta merkilega starf sænsku barnanna fyrir lesendum Unga íslands. Þá verður um leið athug- að. hvernig íslensk börn og unglingar geta notað þessa bók til leiðbeiningar og uppörvunar í starfi sínu við að vinna að aukinni hreysti íslensku þjóðarinnar. r r i glonnnDDaaDDaDDaDaaDanDDaDnnnnDc HORNSILAVEIÐIN. BERNSKUMINNING. "1 T 111 Eg var 10 ára, þegar þessi saga gerð- ist, og átti heima á sveitabæ norður í Skagafirði. Á sumrin hafði eg þahn starfa, að færa fólkinu matinn á engj- arnar. Mest var heyjað niðri á Héraðs- vatnabökkum, og var þangað langur og heldur slæmur vegur. Á þeirri leið voru margir lækir og síki, og sá eg þar oft silunga skjótast inn undir bakkana. Stundum gleymdi eg alveg, að eg þurfti að flýta mér, og íor að fást við silung- ana og reyna að ná í þá með því að læðast ósköp hægt með hendina ofan í vatnið og grípa utan um þá. En mér gekk þetta illa. Eg hafði lítið upp úr því, annað en snuprur og skammir hjá engjafólkinU, af því að grauturinn var orðinn kaldur, þegar það loksins fékk hann. Einn lækurinn hét Illakelda. Hún var full af hornsílum, sem skutust í allar áttir, þegar eg gekk yfir brúna á lækn- um eða stappaði í bakkana. Mig lang- aði fjarska mikið til að ná í hornsílin og flytja þau heim, og þar ætlaði eg að búa til handa þeim svolítinn poll í lækn- um, sem rann rétt við bæjarvegginn. En það var nú hægar sagt en gert, að ná í hornsílin. Þau voru svo lítil, og vont að handsama þau. Ogþótt eg næði stund- um einu og einu í lófa minn, voru þau vís til þess að smjúga út um greiparnar á mér, áður en eg var kominn með þau upp úr vatninu. Ómögulegt var heldur að ná þeim í net, því að þau smugu í gegnum. svona lítil eins og þau voru. Eg braut nú heilann mikið um þetta vandamál. Einu sinni tók eg með mér

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.