Unga Ísland - 01.03.1933, Page 15

Unga Ísland - 01.03.1933, Page 15
UNGA ÍSLAND 43 ef þau væri svöng, og reyndi eg að gefa þeim ýmiskonar mat. — Ef eg muldi braujðbita og fleygði svo ögnunum á vatnið, renndu þau sér með gapandi gini á brauðmolana, og rifust stundun. um þá með skrítnum látum og tilburðum. Stundum hélt eg, að þau væru að leika sér. Þá eltu þau hvert annað um allan pollinn, með ógnar ærslagangi, hnipp- ingum og sporðaköstum. Þá hélt eg, að .þau væru í síðastaleik eða kannske stór- fiskaleik. Það fannst mér nú nokkuð hlægilegt, að hornsíli færu í stórfiska- leik! Eklcert þótti hornsílunum eins góður matur og mýflugur. Ef einhver mýfluga var svo heimsk að setjast á pollinn, fékk hún fljótlega fyrir ferðina. Þá kom allt i einu' gapandi gin upp úr vatnsskorp- unni, og gleypti hana með húð og hári. — Eg fór stundum og veiddi heiln'.ikið af mýflugum á mykjuskánum og hesthús- haugum. Urðu þá heldur en ekki áflog og læti, þegar eg kom með góðgætið. Eg var orðinn svo kunnugur sílunum, uð eg þekkti sum þeirra og kallaði þau ýmsum nöfnum. Eitt kallaði eg.Vamba, uf því að það var svo digurt. Vambi var fjarska spakur og duglegur að éta. Ef eí?fór með hendina ofan í vatnið og hafði eitthvað ætilegt í lófanum, þá kom Vambi syndandi í hægðum sínum inn í lófa minn, að ná sér í bita. Svona. leið nú fram eftir sumrinu. Hornsílin sýndust kunna vel við s g í Pollinum sínum. I3á bar svo við eitt kvöld, um sláttar- lokin, að eg náði silungi í síki fyrir neð- an túnið. Eg gat ekki fengið af mér að órepa silunginn, en tímdi heldur ekki að sleppa honum aftur. Þá datt mér í hug, að það mundi vera snjallræði að láta hann í pollinn hjá sílunum. Eg flutti SVo silunginn lifandi heim og sleppti honum í pollinn um kvöldið. Eg var lú- inn og þaö var orðið dimmt, svo að eg flýtti mér inn og háttaði. Um morguninn fór eg svo að vitja um kunningja mína í pollinum. • En þá brá mér heldur í brún. í miðj- um pollinum lá silungurinn og tifaði uggunum f jarska makindalega. En horn- sílin mín! Hvar voru þau? Auðvitað í maganum á óhræsis silunginum. Eg sá bara þrjú eða fjögur síli, sem höfðu fal- ið sig inni undir steinum, til þess að lenda ekki í gininu á ræningjanum. En hin sáust hvergi. Og aumingja Vambi minn var einn af þeim. Það má nærri geta, hve þungt mér féll þetta. Eg var bæði hryggur og reið- ur. Reiðastur var eg við sjálfan mig, fyr- ir að vera þessi dæmalausi asni, að láta silunginn í pollinn, Og eg var líka reið- ur við silunginn, átvaglið að tarna! „Sneypstu burt, óhræsis vargurinn þinn, sem átst hann Vamba minn og öll hin sílin!“ sagði eg bálvondur um leið og eg þreif silunginn og henti honum langar leiðir frá mér, út í bæjarlækinn. Silungurinn varð auðvitað dauðfeginn, að vera laus úr fangelsinu. Annars hef- ir honum líklega þótt þetta skrítið fang- elsi, þar sem svona var mikið og gott að borða. En eg stóð eftir, yfir tómum sílapoll- inum mínum. Frímann Jónasson. Móðgaður lesandi kemur inn til ritstjóra og segir: Þú prentaðir látið mitt í blaðinu í gær. Eg beimta, að þetta sé leiðrétt. Ritstjóri: Yið tökum aldrei aftur neitt, sem staðið hefir í blaðinu. En ég skal segja þér, hvað við getum gert fyrir þig. Við prentum nafnið þitt á morgun í fæðingarlistann. Og þá getur þú byrjað nýtt líf.

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.