Unga Ísland - 01.04.1937, Page 5
47
UNGA ÍSLAND
Allt fram á þennan dag er þekking
alls fjölda manna og kröfur til suncl-
kunnáttu mjög litlar og ófullnægjandi,
blandaðar ótrú eða öfgum. Með mynd-
un ungmennafélaganna verður í land-
inu áhrifamikil vakning, og voru það
einkum heitstrengingar nokkurra
ungra manna á ársafmæli Ungmenna-
félags Akureyrar, 6. jan. 1907, sem
mestu róti kom á hugina. Þá var það,
er Lárus J. Rist hét að synda yfir
Eyjafjörð alklæddur og í sjófötum.
Þetta allt var svo óvenjulegt, og þótti
svo djarft, að æskan fylltist eldmóði.
Þetta öfluga átak varð til þess, að
almennt var farið að gefa líkarns-
menningunni meir gaum en áður var.
Ungmennafélög og íþróttafélög rr.ynci-
uðust nú víða um landið og þau, sem
til voru fyrir, færðust mjög í aukana.
Menn tóku að æfa af kappi og fengu
mikinn áhu(ga fyrir því að byggja
sundlaugar, og brátt kom krafan um
sundhöll í Reykjavík. Fyrsta yfir-
byggða laugin var byggð við alþýðu-
skólann á Laugum í Reykjadal og síð-
ar við fleiri skóla og í þéttbyggðum
sveitum.
F.engu menn nú áhuga fyrir því að
mæla dugnað sinn og kunnáttu, með
því að bera sig saman við aðra menn
bæði hér á landi og erlendis að foi’nu
og nýju.
Slíkt er nauðsynlegt, en getur þó
verið mjög varhugavert, því keppnin
getur hæglega leitt áhugasama ung-
iinga út í öfgar. Er þá illa farið, éf á-
huginn verður aðeins brjálæðiskenni
ofurkapp eftir heiðri, en því aðalat-
riði sleppt, að göfga og þroska menn-
ina alhliða. Eru þess mörg dæmi úr
sögu ýmsra menningarþjóða, að ofur-
kappið í íþróttum og leikjum hefir
orðið menningu þeirra að miklu tjóni.
Það er eftirtektarvert, þá er Lárus
Rist heitir því að synda yfir Eyjafjörð,
að hann velur að leggja til sunds eins
og sjómenn eru venjulega klæddir, en
ekki í sundfötum smurður feiti, og
valdi ekki stærri raun en þá, er hann
taldi að hver og einn fullfrískur mað-
ur gæti leikið eftir. Er í þessu einung-
is fólgin krafa til almennrar menn-
ingar, en ekki áhuginn fyrir því að
skara fram úr.
Með íþróttavakningunni fara menn
Frá sundlaugunum i
Reykjavik.