Unga Ísland - 01.04.1937, Blaðsíða 17

Unga Ísland - 01.04.1937, Blaðsíða 17
59 UNGA ÍSLAND LESKAFLAR FYRIR LITLU BÖRNIN Töframaðurinn. „Húrra!“ kallaði Siggi um leið og hann leit út um gluggann. „Sveinn frændi er að koma“. Dísa stóð upp úr sæti sínu og flýtti sér út að glugganum. Rétt á eftir var hringt og bæði börnin þutu fram, til að opna fyrir frænda sínum. „Viltu gera svo vel að segja okkur sögu“, sagði Dísa, þegar hann hafði lieilsað fólkinu. „Já, gerðu það“, sagði Siggi, „því að nú er sunnudagur og þú þarft ekki að fara í vinnu“. „Lofið þið manninum að vera í friði“, sagði mamma barnanna. „Honum leiðast þessi læti“. „Við verðum afar-stillt, ef hann segir okkur sögu“, sögðu börnin. En Sveinn kunni enga nýja sögu. „Það gerir ekkert til“, sagði Siggi. „Við viljum aftur heyra söguna um töfraklæðið“. „Já“, sagði Dísa. „Mömmu og Öllum þótti svo gaman að þeirri sögu“. „Henni þykir ekkert gaman að beyra söguna aftur“, sagði Sveinn, „en til þess að gera ykkur ofur- litla úrlausn, ætla eg að sýna ykkur nokkuð“. Hann tók lítinn klút úr vasa sínum og breiddi hann á borðið. „Þetta er ekkert gaman“, sagði Siggi. „Þetta er bara vasaklútur“, sagði Dísa, „Ykkur sýnist það“, sagði frændi þeirra, „en þetta er samt í raun- inni töfraklæði“. „Töfraklæði“, átu börnin eftir honum og giáptu á hann stórum augum. vGet eg þá svifið á því upp í tunglið?“ spurði Siggi. „Get eg flogið á því heini til hennar ömmu minnar?“ spurði Dísa. „Nei, það getið þið ekki“, sagði Sveinn, „en eg ætla að gera lítinn galdur með klútnum. Komdu með eina eldspýtu, Siggi, og merktu hana, svo að þú þekkir hana aft- ur“. Siggi gerði það. Frændi hans hrissti klútinn, breiddi hann aftur á borðið og sagði: „Þið sjáið, að ekkert er á klútnum. Leggðu nú endspýtuna á hann miðjan“. Þegar Siggi hafði gert það, braut Sveinn klútinn saman og hélt á honum í hendinni, þannig að nokkuð stóð út úr hnefanum.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.