Unga Ísland - 01.04.1937, Qupperneq 18

Unga Ísland - 01.04.1937, Qupperneq 18
UNGA ÍSLAND 60 Siggi fékk að þreifa á klútnum og eldspýtunni, sem var innan í honum. „Brjóttu nú eldspýtuna, ef þú getur“, sagði Sveinn. „Það get eg vel“, sagði Siggi, „eg er búinn“. „Nú skulum við sjá, hvort töfra- klæðið getur grætt spýtuna sam- an“, sagði Sveinn og breiddi úr klútnum á borðinu. Eldsþýtan var heil! | Siggi sá að spýtan var merkt. Hann hlaut að hafa brotið aðra spýtu í klútnum. En hvar var hún? Sveinn lyfti klútnum upp og hrissti hann yfir borðinu. Brotna spýtan sást hvergi. „Þú hefir enga spýtu brotið“', sagði Dísa, „en nú skal eg brjóta spýtu í klútnum, og hún skal ekki verða heil, þegar frændi breiðir úr töfraklæðinu sínu“. Svo fékk Dísa að brjóta spýtu í klútnum, og sagðist vera viss um, að hún væri komin í tvennt. En það fór eins og í fyrra skiptið, þeg- ar frændi sýndi þeim í klútinn: Eldspýtan var heil. „Hvar er spýtan, sem eg braut?“ spurði Dísa. „Er þetta ekki sama spýtan?“ ansaði frændi hennar. En Dísa sá, að brotin eldspýta gat ekki orðið heil aftur, og bað frænda sinn að kenna sér gald- urinn. „Já, kenndu okkur þetta!“ sagði UNGA ÍSLAND Eign RauíSa Kross íslands. Kemur út í 16 síöu heftum, 12 sinnum á ári. 12. heftiö er vandaö jólahefti. VerÖ blaösins er aöeins kr. 2,50 árg\ Gjalddagi blaösins er 1. apríl. Ritstjórn annast: Arngrímur Ivristjánsson, Bjarni Bjarnason, Kristín Thoroddsen. Afgreiðslu og’ innheimtu blaðsins annast skrifstofa Rauða Ivrossins, Hafnarstræti 5, herbergi 16—17 (Mjólkurfélagshúsið). Skrif- stofutími kl. 10—12 og 2—4. Póstbox 927. Prentað í ísafoldarprentsmiðju. Siggi. „Eg þarf að sýna strákun- um í skólanum þennan galdur“. „Þið getið nú hugsað um þetta“, sagði frændi þeirra, „og reynt aó skilja í hvei'ju galdurinn ei‘ fólg- inn“. „Sýndu mér þá einu sinni enn, hvernig þú ferð að, og nota'u vasaklútinn minn“, sagði Dísa. „Eg get ekki notað hann, því að hann er ekkert töfraklæði“, sagði frændi hennar og hló. „En nú þýð- ir ekki að minnast á þetta fyrst um sinn, en segið þið mér heldur, hvernig ykkur gengur í skólan- um“. „Þau eru nokkuð löt að læra ma.rgföldunartöfluna“, sagði mamma þeirra, því að þau voru sein til svars. „Þá skulum við gera samning“, sagði frændi þeirra. „Eg skal kenna ykkur galdurinn næsta sunnudag, ef þið kunnið þá vel alla margföldunartöfluna“. Frh-

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.