Unga Ísland - 01.06.1942, Blaðsíða 13

Unga Ísland - 01.06.1942, Blaðsíða 13
Uppdráttur af Filipseyjum gerð- ur af U. R. K. félaga þar, og sendur til U. R. K. í Bandaríkj- unum. — Á uppdrœttinum sjást s\rá<5 nokkjur atriði úr sögu eyj- anna. að eyjarnar séu nokkurt keppikefli í augum stórveldanna. Sandvíkureyjar — Hawaii — hafa einnig oft veriS nefndar í fréttum ekki sízt eftir árás Japana á Pearl Harbor í vetur. Eyjarnar liggja í Kyrrahafinu 4000 km. í vestur frá San Francico og næstum helmingi lengra frá austurströnd Asíu. Það eru 8 stórar eyjar og nokkrar smærri. Stærst er Hawaii og er hún að flat- armáli jafnstór hinum öllum. Eyj- amar eru hálendar og eldfjöll eru þar mörg. Merkust eru Mauna Loa og Mauna Kea á Hawaii. Höfuðborg eyjanna er Honolulu. Eftirfarandi grein er kalfi úr bréfi, sem sent var til ungliða í Banda- ríkjunum af félaga í ungliðadeild eins skólans í Honolulu. Kaflinn er talsvert styttur í íslenzku þýðing- unni. „Hawaii liggur í miðjc! Kyrrahafi. Þar mætast skipin á leið til noröurs og suðurs, austurs og vesturs. Þar eru krossgötur hins mikla úthafs. Þegar Cook kom til Hawaii árið 1778 áleit hann, aö íbúatala eyjanna væri alls um 100 000, en sennilega var það of hátt áætlað. Á þeim tíma ríkti konungur yfir hverri eyju og á Hawaii voru þeir tveir. Kamehameha I. var hirni fyrsti konungur allra eyjanna og ríkti þar fram undir lok átjándu aldar. Ibúarnir skiptust í þrjár stéttir, höfðingja, lærða menn, þ. e. lækna og presta og svo alþýöu. Höfðingjar voru álitnir, guðlegrar ættar og því óhugsandi aö maður úr alþýðustétt gæti komizt í tölu höfðingja. Allar stéttir lutu kommginum. Á þeim tímum voru eyjaskeggjar mjög hjá- UNGA Í5LAND 87

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.