Unga Ísland - 01.06.1942, Side 16

Unga Ísland - 01.06.1942, Side 16
Sigurður Helgason: Kári fer í verið Framh. — 7 — Þeir Pétur og Kári eru vaktir um miðnættiö. Jósep stendur við rekkju þeirra og hristir þá óþyrmilega. — Getið þið ekki vaknað? segir hann stuttur í spuna og hristir þá enn bet- ur, þangað til þeir skilja, hvaö um er að vera, og að enga náð eða misk- unn er aö fá. Þeir staulast hálfsof- andi fram úr, hnjóta um sjálfa sig á gólfinu og liggur við að missa jafn- vægið, þegar báturinn veltur á öld- unum, fálma eftir vaðstigvélunum sínum og allar hreyfingar þeirra eru venju fremur klaufalegar. — Það er kaffi á könnunni, segir Jósep fálega og horfir á þá sneyddur allri meðaumkvun, meðan þeir eru að klæða sig. Þeir hafa ekki lyst á kaffi. Þeim flökrar við að hugsa um það. Kristó- fer kemur niður og skipar þeim að klæða sig betur. — Það er kalt uppi, segir hann. hleypti út kindunum, en Einar var þá búinn að sækja hestana, og svo fóru þeir heim. Stein'i var oröinn þreyttur og fór því að hátta, þegar hann var búinn aö borða og sofnaði vært. Kristinn Finnsson, 13 ára. Síöan staulast þeir upp, stirðir í limum og liðamótum eftir svefninn og hálfsofandi enn. — Gáið að ykkur á þilfarinu að detta ekki út, kallar Kristófer á eft- ir þeim. Svona er þá að vakna eftir hálfan svefn úti á sjó og svona er nóttin. Þaö er myrkur og hráslaga kuldi, nöpur. rök gola af hafi og öld- urnar koma líðandi að bátnum utan úr dimmunni eins og skugg- ar og leggja hann á hliðina svo að sjórinn ólgar um öldustokkana. Það grillir í freyöandi ylgju við glætuna frá ljósum bátsins og smá- gusur skvettast inn yfir þilfarið. Grænu og rauðu siglingarljósin uppi á stýrishúsþakinu glóra draugalega, það ymur í reiðanum og undarleg, ókennileg hljóð heyrast utan úr myrkrinu gegnum ganghljóö vélar- innar. Það er bárugjálfrið við báts- hliðarnar og ölduniðurinn, en fyrir Kára er þetta óvenjulegt. Hann þekk- ir þaö ekki og í eyrum hans verður þaö að ókunnum röddum, sem muldra óskiljanlegt mál. Himinninn er dimmur og skýjaður og í landi mótar fyrir háum og miklum fjöll- um. Þeir halda áfram aftur eftir þii" farinu og styðja sig við það, sem 90 UNGAÍSLAND

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.