Unga Ísland - 01.06.1942, Blaðsíða 14
Plœging á Filipseyjwn.
Sþólateiþning.
trúarfullir og lifðu í stöðugum ótta
við margskonar anda.
En eftir dauöa Kamehamehas I.
reis upp sterk alda gegn hjátrúnni.
Árið 1820 komu nokkrir kristnir trú-
boðar frá Nýja Englandi til eyjanna
ásamt konum sínum og settust þar
aö. Þeir höfðu oft heyrt hvalveiða-
menn tala um eyjarnar og íbúa
þeirra. En hvalveiðarar þessir höfðu
oft komiö til eyjanna til aö afla sér
eldsneytis. Á komandi árum varð
sambandið milli Bandaríkjanna ög
eyjanna stöðugt nánara. Innflytjend-
ur tóku að streyma til Hawaii og
orsakaöist það einnig af því, að trú-
boöana vantaði verkafólk til að
vinna að sykurframleiðslunni, sem
þeir stofnsettu. Hinum innfæddu
mönnum fór hratt fækkandi, svo aö
nauðsyn var aö fá aðfluttan vinnu-
kraft. Fyrstu innflytjendurnir komu
frá Kína og Japan. Ætt. Kameha-
meha dó út meö Kamehameha V.
Þá tók viö ríki maður, sem fékk
konungsnafnið Kalakaua. Hann ferð-
aöist til Bandaríkjanna og gekk frá
samningum við stjórnina þar, um að
tollur á framleiösluvörum eyjanna
yröi afnuminn í Bandaríkjunum
gegn samskonar friðindum og afnot-
um af Pearl Harbor.
Þjóðaríþrótt á Hawaii. Maðurinn stendur
á litlum'-planlia eða jjöl og heldur í snúru,
sem jest er ajtan í mótorbát. Maðurinn,
sem myndin er aj, heitir Kahanamoþu,
hann tóh þátt í Olympiulei\unum árið
1920 og VarS sigurvegari í sundi.
88
UNGA ÍSLAND