Alþýðublaðið - 02.02.1924, Page 1
CrefEÖ .jöffc ®f
1924
Laugardaglna 2. febrúar.
28. tölublað.
Leikfélag Reykjavíkuv.
sjónleikur í 4 þáttum eftir Jóhann Sigurjónsson, verður leikinn á
snnnodag, B. febrúar, kl. 8 síðdegls í Iðnó.
ASgðngumiSar seldir á laugardag frá kl. 4—7
og á sunnudag kl. 10—12 og eftir kl. 2.
Erlend símskejtL
Khöfn, 1. febr.
HneyksHð í Bandaríkjnnnm.
Steinolíumáls-hneykslið í B anda-
ríkjunum færist nú í aiikana, og
er það nú orðið uppvfst, að
dómsmálaráðherrann, H. M.
Daugherthy, er líka við málið
riðinn. Hefir Coolidge forseti til-
nefnt tvo þingmenn, annan úr
sérveldisflokknum og hinn úr
samveldiíiflokknum, til þess að
rannsaka málið. Eru menn þessir
báðlr lögtræðingar. öidunga-
deildin kre st þess, að samning
ur Falls ráðherra við olíukóng-
aná sé gerður ógildur, og að
mál sé höfðað gegn þeim.
Menn eru hræddir um, að
hneykslismál þetta verði til’þess
að veikja tUtrú almennings til
samveldisflokksins, og það 'hafi
mjög rýrt vonirnar til þess, að
Coolidge geti sigrað við næstu
forsetakosningar.
Snowden og flotinn.
Philip Snowden fjármálaráð-
herra Breta krefst þess, að út-
gjöidin til brezka flotans verði
Iækkuð um 5 milljónir sterlings-
punda,
Her Frakka í Þýzkalandi.
Frá Berlín er símað: Þegar
sfðast var talinn saman her
Frakka í herteknu héruðunum,
voru þar 143000 íranskir her-
menn eða fímti hlutinn af öilum
franska hernum, og 21 þúsund
beigiskir hormenn. Allan þennan
fjölda verða Þjóðverjar að fæða.
Brask-hneyksli í Frakklandi.
Frá, París er símað: Nýtt
hneykslismál á borð við Panama-
málið er að koma upp úr kaf-
inu í Frákklandi. Snýst það um
200 milljarða franka, sem full-
trúi stjórnarinnar hefir borgað út
í skaðabætur fyrir skemdir af
völdum ófriðarins í Norður-Frakk-
landi og farið þar eftir virðing-
um, sem ekki ná nokkurri átt.
Sumt af fénu hefir verið greitt
féglæframonnum, sem einkum
hafa gert það sð starfi sfnu að
braska með ávísanlr á skaða-
bótafé. Reynt er að láta málið
fara eins leynt og hægt er. En
þinglð hefir skipað nefnd til að
rannsaka og endurskoða yfir
10000 greidda skaðabótareikn-
inga, sem hafa hljóðað upp á
meira en 500,000 íranka hver.
ii ? t va-.i
Frá Akureyri
er sfmað Þingmáláfundur var
haldinn _ hér í gærkvöldi. Stóð
hann langt fram á nótt, og var
þá hvergi nærri iokið dagskrá.
Lengstar urðu umræður um inn-
flutningshöft, og var samþykt til-
laga í þá átt, að hefta beri inn-
flutning á óþörfum várningi. Um
landsverzlun hafði Raghar Ólafs-
son orðið í heila kiukkustund.
Tíndi hann á staugii upp þessar
venjuiegu kaupmanna->róksemd-
ir« móti landsverzlun, en þagði
lengi þess í milli. Var það sjá-
anlega með ráðum gert, þvl að
þegar heill hópur af meðhalds-
mönnum landsverzlunar hafði
kvatt sér hljóðs, vo u skornar
Hallur Hallssou
tannlnkaiv
hefir opnaö tannlækningastofu í
Kirkjustræti 10 niðri. Síml 1508.
Vlðtalstimi kl. 10-4.
Síml heima, Thorvaldsensstræti 4,
nr. 866.
Á nýju rakarastofunni í Lækj-
argötu 2 fáiö þiö bezta og fljótasta
afgreiðslu Einar og Elías.
nfður. Þá hafði ræða Ragnars
tafið fnndinn svo lengi, að komið
var að þvf, að slökkva skyldi
rafmagnsljósin. Þnstl þá megin
hlutl fundarmanna burt (sem i
byrjun voru um óoo manns), en
verzlunarlýðurinn sat sem fastast
og marði í gegn einhverja niður-
skurðartiiiögu á landsverziunina,
en mikill hluti þeirra, sem eftir
voru á fundinum, greiddi ekki
atkvæði. Er í ráði að halda hér
annan fund bráðiega. — Búist
er við, að >Esja< munl fara héð-
an annáð kvöld með þingmenn-
ina.
Þlngmálafundur var haldinn
á ísafirði í gærkveldi. Varðþing-
maðurinn svo kallaði þar í greini-
legum minni hluta þegar í byrj-
un tundarins. Nánar í næsta blaði.