Alþýðublaðið - 02.02.1924, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 02.02.1924, Qupperneq 1
CrefEÖ .jöffc ®f 1924 Laugardaglna 2. febrúar. 28. tölublað. Leikfélag Reykjavíkuv. sjónleikur í 4 þáttum eftir Jóhann Sigurjónsson, verður leikinn á snnnodag, B. febrúar, kl. 8 síðdegls í Iðnó. ASgðngumiSar seldir á laugardag frá kl. 4—7 og á sunnudag kl. 10—12 og eftir kl. 2. Erlend símskejtL Khöfn, 1. febr. HneyksHð í Bandaríkjnnnm. Steinolíumáls-hneykslið í B anda- ríkjunum færist nú í aiikana, og er það nú orðið uppvfst, að dómsmálaráðherrann, H. M. Daugherthy, er líka við málið riðinn. Hefir Coolidge forseti til- nefnt tvo þingmenn, annan úr sérveldisflokknum og hinn úr samveldiíiflokknum, til þess að rannsaka málið. Eru menn þessir báðlr lögtræðingar. öidunga- deildin kre st þess, að samning ur Falls ráðherra við olíukóng- aná sé gerður ógildur, og að mál sé höfðað gegn þeim. Menn eru hræddir um, að hneykslismál þetta verði til’þess að veikja tUtrú almennings til samveldisflokksins, og það 'hafi mjög rýrt vonirnar til þess, að Coolidge geti sigrað við næstu forsetakosningar. Snowden og flotinn. Philip Snowden fjármálaráð- herra Breta krefst þess, að út- gjöidin til brezka flotans verði Iækkuð um 5 milljónir sterlings- punda, Her Frakka í Þýzkalandi. Frá Berlín er símað: Þegar sfðast var talinn saman her Frakka í herteknu héruðunum, voru þar 143000 íranskir her- menn eða fímti hlutinn af öilum franska hernum, og 21 þúsund beigiskir hormenn. Allan þennan fjölda verða Þjóðverjar að fæða. Brask-hneyksli í Frakklandi. Frá, París er símað: Nýtt hneykslismál á borð við Panama- málið er að koma upp úr kaf- inu í Frákklandi. Snýst það um 200 milljarða franka, sem full- trúi stjórnarinnar hefir borgað út í skaðabætur fyrir skemdir af völdum ófriðarins í Norður-Frakk- landi og farið þar eftir virðing- um, sem ekki ná nokkurri átt. Sumt af fénu hefir verið greitt féglæframonnum, sem einkum hafa gert það sð starfi sfnu að braska með ávísanlr á skaða- bótafé. Reynt er að láta málið fara eins leynt og hægt er. En þinglð hefir skipað nefnd til að rannsaka og endurskoða yfir 10000 greidda skaðabótareikn- inga, sem hafa hljóðað upp á meira en 500,000 íranka hver. ii ? t va-.i Frá Akureyri er sfmað Þingmáláfundur var haldinn _ hér í gærkvöldi. Stóð hann langt fram á nótt, og var þá hvergi nærri iokið dagskrá. Lengstar urðu umræður um inn- flutningshöft, og var samþykt til- laga í þá átt, að hefta beri inn- flutning á óþörfum várningi. Um landsverzlun hafði Raghar Ólafs- son orðið í heila kiukkustund. Tíndi hann á staugii upp þessar venjuiegu kaupmanna->róksemd- ir« móti landsverzlun, en þagði lengi þess í milli. Var það sjá- anlega með ráðum gert, þvl að þegar heill hópur af meðhalds- mönnum landsverzlunar hafði kvatt sér hljóðs, vo u skornar Hallur Hallssou tannlnkaiv hefir opnaö tannlækningastofu í Kirkjustræti 10 niðri. Síml 1508. Vlðtalstimi kl. 10-4. Síml heima, Thorvaldsensstræti 4, nr. 866. Á nýju rakarastofunni í Lækj- argötu 2 fáiö þiö bezta og fljótasta afgreiðslu Einar og Elías. nfður. Þá hafði ræða Ragnars tafið fnndinn svo lengi, að komið var að þvf, að slökkva skyldi rafmagnsljósin. Þnstl þá megin hlutl fundarmanna burt (sem i byrjun voru um óoo manns), en verzlunarlýðurinn sat sem fastast og marði í gegn einhverja niður- skurðartiiiögu á landsverziunina, en mikill hluti þeirra, sem eftir voru á fundinum, greiddi ekki atkvæði. Er í ráði að halda hér annan fund bráðiega. — Búist er við, að >Esja< munl fara héð- an annáð kvöld með þingmenn- ina. Þlngmálafundur var haldinn á ísafirði í gærkveldi. Varðþing- maðurinn svo kallaði þar í greini- legum minni hluta þegar í byrj- un tundarins. Nánar í næsta blaði.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.