Árbók VFÍ - 01.01.1989, Síða 18
16 Árbók VFÍ 1988
munafélögin, (FRV, LVFÍ og SV). Rætt var um að bókin yrði með nokkuð öðru sniði og í því
sambandi m.a. gert ráð fyrir köflum um ýmis hagsmunamál verkfræðinga. Því miður hefur
þetta verk orðið að sitja á hakanum vegna fjárþrenginga félagsins.
6.7 Fundaröð meö ýmsum hópum innan félagsins:
Uppbygging Verkfræðingafélagsins, deilda þess og hagsmunafélaga, er ekki fullnægjandi til
að uppfylla markmið félagsins. Jafnframt er ljóst að ýmsir félagsmenn telja sig verulega
afskipta og þeir spyrja oft: „Flvað fæ ég fyrir félagsgjaldið?“ Þetta eru gjaman félagsmenn sem
ekki starfa við hefðbundin verkfræðistörf eða falla ekki inn í fagdeildaskiptingu félagsins.
Stjórnin ákvað í byrjun vetrar að efna til funda með nokkrum slíkum hópum. Því miður varð
minna úr verki. Framkvæmdastjóraskipti og síðan úthringingar til skuldugra félagsmanna urðu
að hafa forgang. Eg vona að næsta stjórn fái tóm til að gangast fyrir þessum fundum.
6.8 Tengiliðir á vinnustöðum:
Til að efla upplýsingastreymi til félagsmanna um fundi og fleira hefur félagið komið sér upp
tengiliðum á um 39 vinnustöðum verkfræðinga. Tengiliðirnir hafa sett upp sérstakt spjald með
merki félagsins og á það hafa þeir hengt tilkynningarnar. Vonandi verður þetta stjórnum
félagsins hvatning til að halda blómlegu lífi í starfinu um leið og það sýnir félögunum að
eitthvað sé að gerast í félagsstarfinu.
6.9 Ungfélagar - verkfræðinemar:
I lok mars á sl. ári var haldinn fundur með nemendum á 3. og 4. ári í verkfræði, þar sem þeim
var kynnt starfsemi félagsins, Lífeyrissjóðsins og Stéttarfélagsins. Á fundinum og í framhaldi
af honum hefur stór hópur þeirra gerst ungfélagar. Alls gerðust 36 ungfélagar á starfsárinu.
6.10 Siöareglur - stéttarreglur:
4. nóvember 1988 var haldið námskeið, á vegum Endurmenntunar Háskólans, í samvinnu við
Tæknifræðingafélag Islands og Verkfræðingafélag íslands, undir heitinu: „Siðfræði og störf
tæknimanna." I framhaldi af námskeiðinu hefur verið rætt um hvort þörf sé á að endurskoða
stéttarreglur félagsins, engin ákvörðun hefur þó verið tekin um að það verði gert.
6.11 Atvinnumál tæknimanna:
Nokkrar umræður hafa verið í stjórnum félagsins um atvinnumál tæknimanna. Umræðurnar
hafa annars vegar snúist um atvinnuhorfur á næstu misserum og hins vegar um að félagið þurfi
að meta hvernig störf verkfræðinga og starfsvið koma til með að breytast á næstu áratugum. Á
aðalstjórnarfundi sl. haust var ákveðið að skipa nefndir til að fjalla um þessi mál. Með bréfi í
nóvember var óskað eftir tilnefningum frá Félagi ráðgjafarverkfræðinga og Stéttarfélagi verk-
fræðinga í nefnd til að undirbúa fund um atvinnuástand á næstu misserum. Jafnframt var fag-
deildum sent bréf þar sem óskað var eftir tilnefningum í nefnd til að meta hvernig störf verk-
fræðinga og starfsvið breytast í framtíðinni. Deildir og hagsmunafélög hafa enn ekki tilnefnt í
þessar nefndir, en beiðni um það hefur verið ítrekuð á aðalstjórnarfundi nú í mars og vonast er
til að þær taki til starfa á næstunni.
6.12 Árshátíö:
I árshátíðamefnd sátu:
Ellert Már Jónsson, formaður Einar Úlfsson
Guðrún S. Hilmisdóttir Karólína Guðmundsdóttir
Árshátíðarnefnd hafði veg og vanda að undirbúningi hátíðarinnar, sem haldin var í Súlnasal
Hótel Sögu 17. mars 1989. Hátíðin fór í alla staði mjög vel fram og var ekki annað séð en jafnt
eldri sem yngri gestir skemmtu sér vel undir frábærri stjórn Davíðs Á. Gunnarssonar veislu-
stjóra. Þriggja manna tækniband spilaði undir fjöldasöng við geysimiklar undirtektir veislu-