Árbók VFÍ - 01.01.1989, Side 198
196 Árbók VFÍ 1988
Vinna við gröft neðanjarðarvirkisins hófst í september 1984 og var að fullu lokið rúmum
þrem árum síðar. Verktaki var Krafttak sf. Framvinda var almennt góð. Oft voru grafnir um
40 m af jarðgöngum á viku. Stæðni bergsins var nokkuð góð. A byggingartíma varð þó um
150 m3 hrun úr lofti stöðvarhúshellisins, og fáein minniháttar hrun í jarðgöngunum, þar sem
höggun berglaga var mikil.
Talsverður vatnsleki, aðallega úr lofti, var oft á vinnusvæðinu við enda ganganna, enda graf-
ið neðan jarðvatnsborðs. Vatnsæðarnar þornuðu oftast fljótt, en rúmlega ári el'tir að greftri
lauk, var dælt út um 1.200 1/mín. (20 1/sek.). Vatnsæðarnar eru nokkuð vel afmarkaðar sprung-
ur, en bergið milli þeirra er all þétt. Mesta vatnsinnrennsli varð við misgengi í frárennslis-
göngunum. Heildar innrennslið mældist þá um 4.000 1/mín. (70 1/sek.). Þetta vatnsflóð orsak-
aði einnar viku stöðvun á greftri ganganna.
Þeirri meginstefnu var fylgt við styrkingar að nýta burðarhæfni bergsins sjálfs eins og kostur
var. Til þess var notað þunnt lag af sprautusteypu til varnar yfirborðslosun og til hjálpar við
myndun samfellds bergboga umhverfis göngin. Einnig voru notaðar berandi styrktareiningar,
innsteyptir bergboltar og venjuleg steinsteypa.
Hér á eftir verður minnst á nokkur helstu atriði er varða gröft neðanjarðarvirkisins við
Blöndu og rannsóknir á byggingarstigi.
2 Stutt lýsing jarðlaga
Neðanjarðarvirkið er grafið í jarðmyndanir frá Tertíer, um6-7milljón ára gamlar. Basaltmynd-
animar eru tvennskonar, þóleiít basalt (eða þóleiít) og feldspatdílótt basalt, s.k. dílabasalt (1).
Þóleiítið er mjög brotið og verður almennt ekki greint á milli höggunar og stuðlasprungna.
Stærð heilla steina í þóleiítinu er oft nærri hnefastærð. Sprungufletirnir eru yfirleitt þaktir silti
og leir.
Dílabasaltið er tiltölulega heillegt berg. Á sprunguflötum eru útfellingar af kísil og geisla-
steinum, en einnig silt og leir.
Á efra og neðra borði hraunlaga er gjall eða kargi. Karginn er víðast vel samlímdur og til-
tölulega þéttur, með setfyllingum og sömu útfellingum og aðlæg berglög. Vegna sérstakra
eiginleika kargans (eða kargbergsins) er oft litið á hann sem sérstakt lag, þótt svo sé í raun ekki.
Höggunarsprungur í aðliggjandi basaltlögum koma aðeins að litlu leyti fram í karganum, en
þar hafa sprungur sýnilega „gróið saman“ með seinni tíma steindum. Þessi skýring virðist
aðeins að litlum hluta eiga við dílabasaltið, sem er mun heillegra en þóleiítið. Ástæðan virðist
fremur liggja í, að innri bygging er önnur. Dílabasaltið, eins og karginn, er ekki eins stökkt og
þóleiítið og virðist því síður molna við höggun. Við brotþolsprófun lýsir þessi eiginleiki sér í
lægri fjaðurstuðli.
Á milli hraunlaganna eru misþykk setbergslög. Þykkt þeirra er allt frá nokkrum cm upp í
nokkra metra. Flest eru þau lagskipt. Setbergið er annars vegar rautt og rauðbrúnt sendið silt,
að uppruna til jarðvegsmyndanir og hins vegar ummynduð gjóskulög rauð, ljósbrún og græn
og eru þykkustu setlögin af þeim uppruna.
Fjöldi misgengja sker jarðlagastaflann. Oft er brotaberg, silt og leir í misgengisflötum og
berggangar á nokkrum stöðum. Jarðlagahalli er 8-10 gráður til vesturs.
3 Gröftur neðanjarðarvirkisins
Gröftur aðkomuganganna hófst í september 1984 og var öllum greftri lokið um miðjan desem-
ber 1987. Samkvæmt kennisniði var graftrarmagn 115.300 m3, en heildarmagn graftrar varð
alls 136.300 m3eða 18%meira. Hluti af umframgreftrinum varð vegnajarðfræðilegra aðstæðna,