Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 16
14 ÁrbókVFÍ 1990/91
Félagi ráðgjafarverkfræðinga
Stéttarfélagi verkfræðinga
Verktakasambandi Islands
Rannsóknaráði ríkisins
Þann 26. júní 1990 var eftirtöldum falið í umboði VFÍ að leita leiða til verndunar starfs-
heitisins og leiða málið í höfn.
Þorvaldur K. Ámason, formaður Guðleifur M. Kristmundsson
Þóra R. Ásgeirsdóttir
Samkvæmt áliti lögfræðings félagsins er óheimilt að reka fyrirtæki undir nafninu verkfræði-
stofa eða hliðstæðu nafni, sem gefur til kynna að verkfræðiþjónusta sé veitt, nema fyrirtækið
láti í té þjónustu verkfræðings eða verkfræðinga, sem leyfi hafa skv. lögum nr. 62/1986.
6.2 Atvinnumál
Eins og fram kom í ársskýrslu formanns í fyrra voru atvinnumál verkfræðinga í brennidepli þá
sem nú. Stjórnin hefur löngum rætt atvinnumál verkfræðinga, bæði hvað varðar ástandið nú og
einnig í framtíðinni. Til þess að vinna þetta skipulega var ákveðið að setja á laggirnar atvinnu-
málanefnd til að skoða atvinnumál verkfræðinga nú og ekki síður að spá um hvernig þróunin
verður í atvinnumöguleikum verkfræðinga, þ.e. að reyna að sjá fyrir á hvaða sviði verður mest
þörf fyrir verkfræðinga í framtíðinni.
Atvinnumálanefndina skipa eftirtaldir:
Jón Ingimarsson, formaður
Ólafur Erlingsson
Eymundur Sigurðsson
Pálmi Kristinsson
Vilhjálmur Lúðvíksson
Atvinnumálanefndin gekkst fyrir könnun á atvinnuástandi hjá aðilum sem hafa verkfræðinga
og tæknifræðinga í þjónustu sinni. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á sameiginlegum
fundi verkfræðinga og tæknifræðinga í Verkfræðingahúsinu 21. febrúar 1990. Síðan þá hefur
lítið sem ekkert verið aðhafst og er það miður. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru þær, að
atvinnurekendur halda að sér höndum og bíða átekta eftir því hvað gerist, t.d. í stóriðjumálum,
og hafa því ekki sagt upp verkfræðingum nema í litlum mæli, þó verkefni hafi dregist saman.
Yfirvinna er minni en áður, en enn sem komið er mun atvinnuleysi ekki vera útbreitt. Fyrir-
hugaður var fundur um framtíðarhorfur í atvinnumálum en eins og fyrr segir hefur enn ekkert
orðið af þeim fundi.
6.3 Fjáröflunarnefnd
Skipuð var sérstök fjáröflunamefnd til að gera tillögur um hvernig afla megi tekna fyrir
félagið. Magnúsi Bjarnasyni var falin formennska og valdi hann meðnefndarmenn sína. Fjár-
öflunarnefnd er með ýmsar hugmyndir í farvatninu og vinnur áfram að útfærslu þeirra.
6.4 Handbók Verkfræöingafélags íslands
Eitt af þeim verkefnum sem stjórnin hafði á stefnuskrá sinni var útgáfa Handbókar VFÍ, með
félagaskrá, félagslögum og öðrum handhægum upplýsingum fyrir verkfræðinga. Það kom í ljós
að félagslögin þarf að samlesa og samræma vegna misræmis sem þar er að finna. Handbók
verður að geyma réttar upplýsingar og því var ákveðið að bíða með útgáfu hennar þar til heild-
arlagfæringar hafa verið gerðar á félagslögunum.
6.5 Kynningarbæklingur
Oft hefur sú spurning heyrst „Hvað gagn hef ég að því að vera í Verkfræðingafélaginu?“
Framkvæmdastjórn ákvað því að semja kynningarbækling til að svara þessari spurningu og