Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 195
Alverktaka 193
komulagi sem getið er um hér að framan og í átt til „nýrra" samningsforma svo sent alverktöku
og byggingarstjórnunar.
Segja má að þessi tvö form, alverktaka og byggingarstjórnun, séu helstu svör markaðarins
við þeim breytingum, sem felast í aukinni tæknivæðingu og vaxandi opinberum afskiptum.
Skoðum þessi tvö fornt.
3.1 Alverktaka
Sem fyrr greinir er það nefnt alverktaka þegar verksamningur er gerður unt alla þætti verks frá
hönnun til lokafrágangs. Þetta fyrirkomulag hentar vel fyrir stöðluð verkefni, til dæmis
skólabyggingu eða iðnaðarhús, þegar verkkaupi hefur fyrirfram vel skilgreindar óskir um
nýtingu mannvirkisins og verktakinn, sem samið er við, býr yfir góðri reynslu frá hliðstæðum
verkurn. Alverktaka skilar að jafnaði bestum árangri þegar um beina santninga rnilli verkkaupa
og verktaka er að ræða. Þá á trúnaðarsamband að geta tekist strax í upphafi á milli verkkaupa
og verktaka og samvinna unt hagkvæmar lausnir.
Opinberar stofnanir á vegum ríkis og sveitarfélaga ásamt félagasamtökum kjósa oftast að
bjóða verk út í samkeppni ntilli verktaka og hefur sú aðferð verið notuð við allmörg verk á
síðustu árum. Vel þarf að vanda til undirbúnings, ef góður árangur á að nást. Samtök
hagsntunaaðila; Arkitektafélagið, Félag ráðgjafarverkfræðinga og Verktakasambandið, hafa
nýlega gefið út reglur um alútboð með leiðbeiningum unt gerð útboðsgagna, mat tilboða og
önnur atriði sem máli skipta varðandi þetta form útboðs.
Kostir alverktöku eru einkum þrír:
- Áhersla á hagkvæmar lausnir og lágt heildarverð.
- Skammur verktími.
- Verkkaupi semur við einn aðila í stað margra.
Alverktaka hefur reynst vel þegar réttar forsendur hafa verið fyrir því að nota hana, en
þessar forsendur eru helstar:
- Þarfir vel skilgreindar.
- Áhersla á hagkvæmni og stöðlun.
- Fjármögnun er tryggð.
Ef einhver af þessum forsendum er ekki fyrir hendi, er ekki rétt að nota alverktöku.
3.2 Byggingarstjórnun
Menntun byggingarmanna hefur um langt skeið beinst að því að útskrifa færa fagmenn í hinum
ýmsu greinum. Iðnaðarmenn eiga að vera góðir handverksmenn og tæknimenn hæfir hönnuðir.
Minni áhersla hefur verið lögð á rekstur og stjórnun.
Þróun sú er orðið hefur í tæknibúnaði og verkaðferðum gefur geysilega mikla möguleika á
að auka framleiðni í byggingariðnaði, ef rétt er á haldið, en þá þarf stjórnunarþátturinn að vera
í lagi.
Svo talað sé líkingamál má segja að vandað og dýrt hljóðfæri gefur því aðeins tryggingu
fyrir góðri hljómlist að einhver kunni að leika á það.
Það liefur færst í vöxt að verkkaupar, sent standa fyrir stærri verkum, ráða byggingarstjóra
til þess að hafa umsjón með verkunum. Stundum er byggingarstjórinn fyrsti ráðgjafinn sent
verkkaupi ræður. Þá er það verkefni byggingarstjórans að aðstoða við forrannsóknir og um-
sóknir til yfirvalda og síðan að ráða aðra ráðgjafa og semja við þá. í þeirra hópi eru hönnuðir
13