Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 27
Skýrsla stjórnar 25
yrði gjaldfærður á eðlilegan máta. í samræmi við það var kostnaður við hvert blað áætlaður
30.000, eða alls 540.000 fyrir þessi 18 blöð. Auk þess var áætlaður hluti í stofnkostnaði við t.d.
geislaprentara á skrifstofuna 100.000, eða alls 640.000.
í reynd voru blöðin unnin í samvinnu skrifstofu og nefndarmanna útgáfunefndar. Starf
skrifstofu við umsjón, ritvinnslu og útsendingar mun hins vegar ekki hafa verið gjaldfært á
útgáfunefnd, svo að kostnaður við þessi 16 blöð varð tæplega 300.000 (aðeins prentun og póst-
kostnaður). Þá var framlag til tækjakaupa á skrifstofu notað í annað, þ.e. upp í útgáfukostnað
kynningarbæklings.
Verktækni. Lokauppgjör fyrir Verktækni liggur ekki fyrir, en skv. bráðabirgðauppgjöri
nemur kostnaður VFÍ heldur lægri upphæð en þeim 700.000, sem áætlaðar voru í þessa útgáfu.
Á árinu kornu út 3 blöð, og vinnu við það fjórða var næstum lokið við áramót. Ætlunin var að
það kæmi út strax eftir áramót, en því seinkaði fram í mars.
Árbók 1989/90. Vegna reglugerðar um niðurfellingu virðisaukaskatts var útgáfu Árbók-ar
frestað fram yfir 1. sept. 1990, og síðan aftur fram í nóvember vegna mikilla anna ritstjóra við
stórt verkefni. Þetta verkefni smálengdist um tvo mánuði til viðbótar, og seinkaði útgáfu
Árbókar í samræmi við það. Bókin kom út í byrjun apríl 1991.
Vegna þessara tafa á útgáfunni varð ekki kostnaður við Árbók á árinu 1990, en framlag VFÍ
hafði verið áætlað 530.000 Útgáfan stóð þó nokkum veginn undir sér og þurfi því ekki að nota
fyrrnefnt framlag VFI.
Kynningarherferð. Þessi liður hefur ekki heyrt undir útgál'unefnd að öðru leyti en því að í
síðustu fjárhagsáætlun lagði nefnin til að hætt yrði við að gefa út síðasta tölublað Tímarits
VFÍ, en peningarnir í staðinn lagðir í kynningarherferð. Voru þetta kr. 300.000.
Kostnaður við kynningarbækþng og umslög varð hins vegar um 700.000.
Alls. Sé þetta allt lagt saman, líka kynningarbæklingurinn, virðist stefna í urn 1.700.000 í
útgáfukostnað í stað áætlaðra 2.170.000.
7.3.3 Hugmyndir um útgáfu á árinu 1991
Hér á eftir er gerð grein fyrir áætlun nefndarinnar um útgáfu á árinu 1991, og síðan er gerð
áætlun um útgáfukostnað VFÍ. Eins og í fjárhagsáætlunum útgáfunefndar á liðnum árurn er
aðeins tekinn sá kostnaður sem útgáfunefndin telur að falla muni á félagið á árinu. Ekki er
tekið tillit til rekstrarafgangs (eða -halla) síðasta árs.
Ekki er heldur tekið tillit til þess að tekjur félagsins 1991 verða í raun að duga til útgáfu-
starfsemi á tímabilinu maí 1991 - apríl 1992, enda þótt tjárhagsár félagsins sé almanaksárið.
Fréttabréf VFÍ. Reiknað er með að útgáfan verði áfram í sama farvegi þ.e. að út komi um
16-18 tbl. Eins og í fyrra telur nefndin rétt að raunkostnaður útgáfunnar komi nú fram að ein-
hverju leyti, þar sem blaðið hafi unnið sér fastan sess og spari félaginu útsendingarkostnað til-
kynninga.
Nefndin óskar eftir því að skrifstofan taki áfram þátt í starfinu við útgáfu fréttabréfsins, og
verði það starf gjaldfært á eðlilegan máta. Nefndin annist áfram yfirumsjón og lokayfirlestur.
Ef skrifstofan treystir sér til þess að taka yfir enn stærri hluta þessarar útgáfu, þyrfti einkunt
betri hugbúnað á tölvu (fonta og uppsetningarforrit).
Þá leggur nefndin til að TFÍ verði boðin aðild að Fréttabréfinu, enda taki þeir þátt í kostnaði
við útgáfu þess. Gæti þetta m.a. orðið til þess að fleiri fundir, skoðunarferðir o.fl. á vegum VFÍ
og undirdeilda þess yrðu haldnir í samvinnu við tæknifræðinga.