Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 139
ÍMÚR 137
menn að huga að íslensku múr-
einangrunarkerfi. Fyrsta utan-
húss múrkerfið með steinull og
Semkísmúr var mótað af Árna
Kjartanssyni arkitekt. Verkið
var framkvæmt árið 1986 af
Sveini Sighvatssyni byggingar-
meistara á Höfn í Homafirði í
samstarfi við Björn Marteinsson
á Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins, Sérsteypuna sf. og
Steinullarverksmiðjuna hf. Á
næstu árum var kerfið í stöðugri
þróun og mörg hús bættust í hóp-
inn, aðallega á Höfn í Horna-
firði, Akranesi og í Reykjavík
og nágrenni.
Árið 1990 gerði verkfræði-
stofan Línuhönnun hf. viða-
mikla úttekt á húsum, sem klædd
hafa verið með íslenska múr-
kerfinu og rannsóknir voru fram-
kvæmdar á Rb. Niðurstöður
sýndu að kerfið hentar mjög vel
við íslenskar aðstæður. í fram-
haldi af þessum niðurstöðum
var Línuhönnun hf. falið að gera
nákvæma verklýsingu og vinnu-
teikningar fyrir múrkerfið, sam-
fara rannsóknum, sem Björn
Marteinsson framkvæmdi á
Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins.
Markmiðið var að framleiða
Yfirmúr Semkls M240
Undlrmúr Semkis M140
Heltslnkhúöað iMÚRnot
iMÚRplatn
iMÚRtappi, sjó nónar
töflu I kafla 3.3
FjariœgÖarklossl
Heltsínkhúöuð festlspenna
öll ónefnd mól eru l mllllmetrum.
Bordýpt skal vera a.m.k. 20mm
lengrl en leggur múrtappa gengur
inn I steypuna.
Þvermól bors skal vera 1 mm
mlnna en þvermól múrtappa.
Mynd 4 ímúr klteðning, þversnið.
-Bakfytllng
Polyurethan þéttlefnl
6-10 mm
Semkls vatnsbrettl
Múrblanda Semkls M140
Polyurethan þéttlefnl, dýpt 6-8 mm
breidd 4-5 mm
Múrblanda Semkls M140
20—30mm
Heitslnkhúðað iMÚRnet
Undlrmúr, Semkfa M140, þykkt 10-15 mm
Yfirmúr, Semkfa M240, þykkt 5-10 mm
ÍMÚRplato
Lóðrétt snið.
-H
Mynd 5 Imúr klœðning frágangur við glugga.
klæðningu, sem hentar vel við
erfiðar aðstæður á Islandi, sem er sterk og með gott veðrunarþol gegn grotnunarskemmdum og
hefur einkennandi útlit þeirra aðferða, sem áður hafa verið notaðar hérlendis.
Uppbygging kerfisins er þannig, að fyrst er einangrun fest upp með múrtöppum. Þá er heit-
sinkhúðað bendinet úr stáli fest upp á þar tilgerðar skinnur á múrtöppunum. Eftir uppsetningu
er trefjabundnum undirmúr SEMKÍS M-140 sem burðarlag sprautað eða dregið í netið. Þegar
undirmúrinn hefur harðnað er trefjabundnum yfirmúr SEMKÍS M-240 sprautað eða dregið yfir
undirmúrinn. í kerfinu er gert ráð fyrir að notuð séu forsteypt vatnsbretti, sem Sérsteypan sf.
framleiðir. Hægt er að velja mismunandi yfirborð, t.d. slétta og pússaða fleti, með hraunáferð