Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 194
4-6
Jónas Frímannsson
Alverktaka og byggingarstjórnun
Breyttar aöstæöur í byggingariðnaði og ný samningsform
1 Inngangur
Vaxandi fjölbreytni í tækni og kröfum til bygginga, jafnframt auknum tjölda hönnuða og ann-
arra sérfræðinga, kallar á endurnýjun samningsforma og gerir það að verkum að tilhögun sem
áður þótti góð og gild er ekki lengur fullnægjandi.
Til þess að mæta þörf á endumýjun samningsforma, hefur á síðustu árum rutt sér til rúms
breytt verklag við rekstur og stjórnun byggingarframkvæmda. Er þar um að ræða svonefnda
„alverktöku", en einkennandi fyrir hana er að sami aðilinn, alverktakinn, annast bæði hönnun
og smíði mannvirkis. Þá hefur í vaxandi mæli verið tekin upp „byggingarstjórnun“, en svo er
nefnt það fyrirkomulag, þegar sérstökum ráðgjafa, byggingarstjóranum, er falið að stjóma
verkefni og hafa umsjón með öllum þáttum þess frá upphafi til enda.
Hér á eftir er fjallað um þessi samningsform og notkun þeirra. Áður en að þeim verður vik-
ið, er þó rétt að rifja upp í stuttu máli þær aðferðir, sem einkum hafa tíðkast.
2 Heföbundiö form
Verklegar framkvæmdir eru fjölbreyttar og aðdragandi þeirra verður með ýmsum hætti. Við
stærri nýbyggingar er algengt að bjóða verk út. Á þann hátt verður samkeppni milli verktaka
og verkkaupinn getur tekið hagstæðasta boði. Misjafnt er hversu stór hluti verks er boðinn út í
einu. Oft er verkið hlutað niður þannig að jarðvinna er sérstakt útboð, uppsteypa annað, en
einstakar iðngreinar, raflögn, pípulögn o.s.frv., er hver um sig sjálfstætt útboð. Einnig þekkist
að bjóða heildarverk út í einum „pakka". Oftast hefur verið boðið út á grundvelli fullnaðar-
hönnunar, en hönnuðir starfa þá sem ráðgjafar verkkaupa og eftir beinum samningunt við
verkkaupana.
Jónas Frímannsson lauk
verkfræöiprófi frá DTH í
Kaupmannahöfn 1960.
Hann starfaði í 5 ár á
hönnunarstofu þar í borg
en eftir þaö hjá verktaka-
félögum í Reykjavík.
Síöan 1970 hjá ístaki hf.
3 Ný form
Samspil er milli verkkaupa og verktaka.
Hinir fyrrnefndu haga útboðum þannig að
vænta megi a.m.k. lágmarksþátttöku verk-
taka, en jafnframt leitast verktakar við að
Iaga fyrirtæki sín að þeim verkefnum sem
bjóðast. Ör þróun hefur orðið á þessum
markaði samtímis breytingum í verktækni
og efnahagsmálum.
Á síðustu árum hefur orðið nokkur
hreyfing frá hinu „hefðbundna" fyrir-