Verktækni - 25.01.1988, Qupperneq 7

Verktækni - 25.01.1988, Qupperneq 7
FÉLAGSFRÉTTIR því að allt bendir til vaxandi sam- keppni í orkufrekum iðnaði á kom- andi árum, eins og reyndar á öllum sviðum útflutningsframleiðslu." Hvaö kostar orkan? Jóhann Már Maríusson fjallaði um mat á orkulindum landsins. Gróft áætlað mætti fá um 30 TWh/a af raf- orku úr vatnsafli og 20 TWh/a úr jarð- hita, eða 50 TWh/a af rafmagni alls. Nú þegar eru framleiddar 4,2 TWh/a af rafmagni úr vatnsafli og 0,2 TWh/a úr jarðhita, þ. e. búið er að virkja um 14% af vatnsaflinu og 0,6% af jarö- hitatil raforku, eða um 9% af heildinni. Raforkan er nú seld á sama verði til dreifiveitna hvar sem er á landinu. Jóhann sagði siöan: ,,Eitt af skilyrðum þess að hægt sé að byggja upp raforkukerfið á hag- kvæman hátt er, að ávallt séu til nokkrar verkhannaðar virkjanir af mismunandi stærð. Þá er á hverjum tíma hægt að velja þá virkjun er best fellur að þróun orkumarkaðarins." ,,Við útreikninginn á raforkuverði til stóriðju hafa verið notaðar þrjár að- ferðir. Sú aðferð, sem flestir þekkja, er að leggja saman stofnkostnað þeirra virkjana og flutningsvirkja sem þarf að reisa vegna þeirrar stóriðju sem um er að ræða. Þarf þá m. a. aö taka tillit til þess að stóriðjan hefur betri nýtingartíma afls en hinn al- menni markaður og krefst því tiltölu- lega minni fjárfestingar í virkjunum. Þegar stofnkostnaðurinn er fundinn, er árlegur kostnaður reiknaður út og reiknað með að það afl sem tileinkað er stóriðjunni, fullnýtist strax. Með því að deila orkuvinnslugetu í þennan kostnað fæst sfðan orkuverð sem oft er kallað Iramleiöslukostnaður. Þessi útreikningur er þó aðeins ein nálgun á því hvaða verð ætti að setja á ork- una til þess aö uppfylla sett skilyrði. Önnur aðferð til þess að nálgast eðlilega tölu er að reikna út svokall- aðan flýtingarkostnað. En hann finnst með því, að bera saman hagkvæm- ustu virkjanaleiðir til þess að virkja fyrir auknar þarfir hins almenna mark- að eingöngu, og þær hagkvæmustu fyrir hinn almenna markað að við- bættri nýrri stóriðju, og finna mismun- inn á núvirði þeirra fjárfestingarraöa sem við eiga hverju sinni. Þriðja aðferðin, sem notuð er, kall- ast síðan afkomuathugun. í slíkri athugun er settur upp áætlaður rekstrarreikningur Landsvirkjunar frá ári til árs langt fram I tímann með og án stóriðju. Sama orkuverð til al- mennings er látiö gilda, í öllum tilvik- um, en það orkuverð er byggt á hag- kvæmustu uppbyggingu raforku- kerfisins fyrir hinn almenna markað og þeim fjárhagslegu markmiðum sem að er stefnt." Landsvirkjun hefur á undanförnum árum aflað upplýsinga um fram- leiðslukostnað rafmagns frá nýjum virkjunum í ýmsum löndum. Þessi kostnaður virðist einna lægstur hér á íslandi, jafnvel lægri en frá stærstu vatnsaflsvirkjunum heims, sem hafa nýlega verið byggðar eða eru í bygg- ingu. Jóhann ræddi þá um undirboð á raforku og sagði m. a.: „Kanada, Brazilía og Venezuela, búa um þessar mundir við mikla um- framorkugetu í raforkukerfum sínum og bjóða nú tímabundið raforkuverð til nýrra álverksmiðja sem liggur á bil- inu 10-15 mill/kWh. Þar sem vitað er að þetta orkuverð liggur langt undir framleiðslukostnaðarverði, telja þó margir álframleiðendur að viss áhætta sé tekin með því að reisa nýjar ál- verksmiðjur í löndum þessum, m.a. vegna ófyrirséðra hækkana á raf- orkuverði þegar fram í sækir." „Það virðist líklegt að til þess að koma til greina i samkeppninni um ný álver þurfi l’slendingar aö geta boðið rafmagnsverð sem liggur á bilinu 14-19 mill/kWh á núgildandi verð- lagi." Að lokum sagði Jóhann: „Má þá e. t. v. hafa I huga að enda þótt ekki fengist mikill hagnaður frá raforku- sölunni til stóriðjunnar fyrstu árin, fylgir slíkri iönaðaruppbyggingu margvíslegur ágóði annar og má í þvi samhengi benda á að innlendur virð- isauki starfsemi ÍSAL á árunum 1981- 1985 nam um 39%, en þar af var hlutur orkunnar aðeins um 11%." Tengsl við eðlilega iðnþróun Hjörleifur Guttormsson, alþingism. og fyrrverandi iðnaðarráðherra, sagði m. a. i upphafi síns máls: „1982 samþykkti Alþingi stefnumót- andi tillögu um virkjanaröö og orku- nýtingu. Þar var gengið út frá að röð næstu virkjana yrði Blanda — Fljóts- dalur — Sultartangi auk heimilda til ýmissa orkuöflunaraögerða á Þjórs- ár-Tungnaársvæðinu. Vorið 1982 samþykkti Alþingi sam- hljóða þingsályktun um iönaöar- stefnu, þar sem 'eitt af markmiðunum var orðað þannig: „Að nýta sem þest þá möguleika til iðnaðarframleiðslu, sem felast I innlendum orkulindum og efla innlenda aðila til forystu á þvi sviði. Orkufrekur iðnaður verði þáttur í eðlilegri iðnþróun í landinu, og jafn- framt verði lögð áhersla á úrvinnslu- iðnað í tengslum við hann." Á vegum ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens starfaði orkustelnu- nefnd, sem m. a. setti fram stefnu- mörkun varðandi orkufrekan ný- iðnaö. Meðal forsendna sem nefndin setti fram fyrir slíkan iðnað voru eftir- taldar: • Virk islensk yfirráð, sem fela I sér að landsmenn eigi traustan meirihluta ( iðnfyrirtækjunum og hafi vald á tækni, útvegun hráefna og sölu af- urða. • Krafa um arðsemi, þar sem m. a. sé gengið út frá orkuverði sem miöist við framleiðslukostnað í nýjum virkj- unum. • Ríkulegt tillit verði tekið til um- hverfisverndar, félagslegra þátta og byggðasjónarmiða. ‘ ‘ Hjörleifur gagnrýndi ÍSAL samn- ingana og varaði við þeim álviðræð- um sem nú færu fram viö EBE. Hann minnti á að hækkun á raforkuverðinu til ísals, sem samið var um i nóv. 1984 heföi skilað 10,6 milljónum doll- ara minni tekjum en gert var ráð fyrir þegar samningurinn var lagður fyrir Alþingi. Við þetta bætist verðfall doll- arans um 30%. Hjörleifur varaði ein- dregið við hugmyndum um að út- lendingar eignist virkjanir. Hjörleifur lagði áherslu á mikilvægi rannsókna og þróunarstarfs, ekki síst við nýtingu á jarðvarma i tengslum við matvælaframleiðslu, t. d. fiskeldi sem nýtt gæti í stórum stil lægri hita en nýttur hefur verið hingað til á jarð- hitasvæðum. Hann lagði áherslu á að fiskeldi fengi orku á sem hagstæö- ustum kjörum. Varðandi efnaiðnað eða málm- bræðslur taldi Hjörleifur að líkurnar á hagkvæmum og viðráðanlegum fyr- irtækjum á því sviði færu minnkandi vegna samkeppni um ódýra orku og vinnuafl i þróunarríkjum. Þó benti hann á athuganir á vinnslu natríum- klórats og magnesíums sem hefðu lofað góðu. Hjörleifur ítrekaði nauðsynlega forystu Iðnaðarráðuneytisins í orku- málum og eðlilegt væri að fela stofn- unum á vegum ráðuneytisins og verkfræðistofum athuganir og úr- lausnir verkefna i stað þess að treysta á nefndir. Það yrði að gefa meiri gaum minni iðnaðarmöguleikum í öll- um landshlutum sem byggja á orku og hugviti, og eins og á öðrum svið- um mega þar markaðsrannsóknir og vöruþróun sist sitja á hakanum. I lokaorðum sinum sagöi Hjörleifur m. a. „I orkuiðnaði eigum við að beina sjónum okkar meira að gæð- um en magni, að þjóðhagslega arð- bærum fyrirtækjum sem falla að getu og gerð íslensks samfélags, eins og við viljum sjá það þróast." Of hár launakostnaður hér? Geir A. Gunnlaugsson ræddi um samkeppnisaðstöðu islands og sagði m. a.: „Þegar fjallað er um samkeppnis- stöðu eða starfsskilyrði stóriðju á (s- land miðað við önnur lönd er nauð- synlegt að gera sér grein fyrir því hvað við höfum upp á að bjóða um- fram önnur lönd. Sé slíkur saman- burður okkur ekki hagstæöur þá er þess ekki að vænta aö á næstunni verði ráðist í frekari byggingu orku- frekra iðjuvera." „I deilu okkar við Alusuisse í byrjun þesa áratugar var því haldið fram aö framleiðslukostnaður raforku á (s- landi væri 17-18 mill/kWst og að það væri samkeppnishæft orkuverð. Það raforkuverð var síðan kynnt sem það orkuverð sem til boða stæði á (slandi. VERKTÆKNI — 25. JANÚAR 1988 7

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.