Verktækni - 25.01.1988, Qupperneq 10

Verktækni - 25.01.1988, Qupperneq 10
ÁRSHÁTÍÐ VERKFRÆÐINGA Árshátíð VFÍ verður haldin í veitingahúsinu Broadway föstudaginn 4. mars nk. Dagskráin veröur í aöalatriðum: I. Formaður VFI býður gesti velkomna. II. bríréttuð máltíð. III. Heiðursgestur kvöldsins flytur ræðu. IV. Skemmtidagskrá meö óvæntum uppákomum. V. Dans fram á nótt. Miöaverð er ekki enn ákveðið en veröur á bilinu 2.500 til 3.000 kr/mann. Húsiö verður lokað öðrum en árshátíðargestum VFÍ. Á síðustu árshátíð voru pantaöir 460 miðar en þar sem Súlnasalur á Hótel Sögu rúmar aöeins 360 matargesti þurftu 40 manns að fara í hliðarsal en aðrir hættu við. Til að forða því að slíkt endurtaki sig var ákveðið að fara í stærra húsnæði í ár og varð Broadway fyrir valinu, sem rúmar allt að 600 matargesti. Á mynd 1 er til gamans sýndur fjöldi gesta á árshátíð VFÍ udanfarin tvö ár ásamt spá fyrir árshátíöirnar 1988 og 1989. Á mynd 2 er sýnt hvernig pöntun miða þróaðist í fyrra. Fyrst hratt hjá hinum ungu og bráðu, þá nokkur ládeyða og loks rispa í restina þegar hinir eldri tóku við sér. Enda urðu fleyg orö eldri verkfræðings, sem alltaf hefur mætt á árshátíðir VFÍ: ,,Ég skil þetta ekki, þaö hefur alltaf nægt að kaupa miða samdægurs, en nú kemst maður alls ekki.“ Eins og í fyrra stendur verkfræðistofum til boða að sameina sína eigin árshátíð árshátíð VFÍ. Varðandi miða og borðapantanir gildir sama fyrirkomulag og í fyrra, það er: i) Frá og með kl. 9.00 1. feþrúar n.k. til 19. feþrúar verður hægt að panta miða í Verkfræöingahúsinu í síma 68 85 11. Ekki verður þó hægt að velja borö á þessu stigi málsins. ii) Frá og með kl. 9.00 22. febrúar hefst sala á miðum á árshátíðina og verður fyrstu tvo dagana eingöngu pöntunum sinnt. Nú veröur hægt að velja sér sæti/borð og verður það gert í þeirri röö, sem komið er að greiða miðana. Uppdráttur af fyrir- komulagi borðanna kemur til með að liggja frammi, sjá einnig mynd 3. Fjölmennum á árshátíöina! Árshátíðarnefnd VFÍ: Bjarni Bessason Ellert M. Jónsson Þorbergur Karlsson Dagskrá verður auglýst nánar siðar 5£ ARSHATIÐIR VFI Fjöldi gesta 1986 og 87, og spá fyrir 88 og 89 Spá V////X

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.