Verktækni - 25.01.1988, Qupperneq 15

Verktækni - 25.01.1988, Qupperneq 15
FRETTIR DAGSKRÁ NORRÆNS TÆKNIÁRS Á ÍSLANDI í niunda tölublaði VERKTÆKNI var sagt frá „Norrænu tækniári" og að- draganda þess. Hér verður í stórum dráttum sagt frá fyrirhugaðri dagskrá ársins, eins og hún liggur fyrir við byrjun Tækniárs. Norrænt tækniár var formlega opn- að hér á landi 11. janúar. Til að marka þau tímamót var haldin sam- koma þann dag í Norræna húsinu, þar sem boðið var fyrst og fremst þeim sem hafa lagt hönd á plóginn við undirbúning ársins, auk fjölmiðla- manna. Flutt voru ávörp og dagskrá ársins kynnt. Eitt af markmiðum Tækniársins er að kynna almenningi tækni og auka skilning hans á tæknivæðingu. Eitt af því sem við bindum hvað mestar vonir við í þessu tilliti er hugmyndin um ,,Opið hús“. Helstu rannsókna- stofnanir, ýmis stærri fyrirtæki og margar aðrar stofnanir hafa verið fengin til að hafa opið hús einn sunnudagseftirmiðdag hvert. Þannig er stefnt að því að opið hús verði ein- hversstaðar flesta sunnudaga ársins á Reykjavíkursvæðinu og eins oft og við verður komið úti á landi. Með þessu Opna húsi gefst almenningi tækifæri til að kynnast starfsemi og tækni viðkomandi stofnana og fyrir- tækja. Fyrsta stofnunin sem verður með opið hús, verður reyndar Ríkis- útvarpið þann 17. janúar, því næst kemur Sjónvarpiö þann 24. janúar, Alverið þann 31. og þannig hver stofnunin og fyrirtækið af öðru. Enn geta fyrirtæki bæst í hópinn. Til að vekja athygli almennings á Opnu húsi og öðru sem á dagskrá er á Norræna tækniárinu, þá veröur Fyrir allmörgum mánuðum kom á markaðinn forrit frá Borland fyrirtæk- inu, sem nefndist „TURBO LIGHTN- 'NG" og var það ætlað til þess að finna ritvillur fyrir notandann. Slíkt var að vísu ekki nýtt af nálinni, en það sem var einna merkilegast við þetta forrit var að það fylgdist með notand- anum meðan verið var að slá inn text- ann og „skrækti" ef slegið var inn orð sem það kannaðist ekki við. Helsti gallinn við þetta forrit var aft- or á móti sá aö það réð eingöngu við enskan texta — gott og blessað ef menn þurfa ekki á öðru að halda, en næsta gagnslítið hérlendis. En — viti menn — nú er komið forrit fyrir ís- 'ensku sem vinnur á svipaðan hátt. kappkostað að kynna allt slíkt sem best í fjölmiðlum. Sem dæmi má nefna, að eitt dagblaðið hefur fengið Tækniárinu hálfa til eina síðu viku- lega. Þar er m.a. ætlunin að kynna sérstaklega þau fyrirtæki og stofnanir sem opin eru næsta sunnudag. Þann 18. janúar opnar í Kringl- unni í Reykjavík sýning u.þ.b. 50 veggspjalda, sem gerð voru í tilefni 50 ára afmælis Rannsóknastofnana atvinnuveganna. Þar kynna 9 stofn- anir starfsemi sína. Sýningin verður opin í hálfan mánuð og fer síðar ef til vill út á land. SAMKEPPNI í GRUNNSKÓLUM Ákveðið hefur verið, í samvinnu við Menntamálaráðuneytið, að efna til samkeppni í grunnskólanum meðal 10 ára barna um að búa til myndir er tengjast tækni framtíðarinna. Verð- laun verða veitt og fyrirhuguð er sýn- ing á bestu myndunum í apríl. Sam- hliða verður efnt til ritgerðarsam- keppni meðal 12 ára barna um hvað myndi gerast á „tæknilausum degi“. Verðlaun verða veitt og bestu ritgerðirnar birtar. Hugmyndir eru jafnvel um að gefa bestu myndir og ritgerðir út í bók. í samvinnu við Félag raungreina- kennara er stefnt að því að koma á samkeppni meðal framhaldsskóla- nema. Samkeppnin mun sennilega vera í því formi að nemendur eigi að leysa eitthvert eftirtalinna verkefna, eftir eigin vali: 1. Að búa til stutta sjón- varþsmynd um tækni. 2. Að hanna sýningarbás þar sem einhver tækni er kynnt. 3. Uppfinningasamkeppni Nefnist það PÚKI og er sala að hefj- ast á því þessa dagana. Forritið er keyrt á undan ritvinnslu- forritinu og kemur það sér þá fyrir í minni tölvunnar. Þegar ritvinnslufor- ritið er sfðan keyrt, er fylgst með öllu því sem notandinn slær inn. Sérhvert orð er síðan athugað og sé það ekki talið rétt stafsett heyrist „skrækur" í tölvunni. Notandinn getur þá beðið um tillögur að réttri stafsetningu (og látið tölvuna síðan skipta út gamla orðinu og þvi nýja). Einnig má bæta orðinu f orðalista, þannig að það þekkist framvegis. Þetta forrit vinnur með flestum rit- vinnslukerfum sem eru á markað- inum, þar á meðal: um tækni til að létta Iff fatlaðra. 4. Tölvutækni til stýringar á einhverju ferli, (bæði tæki og stýriforrit). 5. For- ritun á sviði gervigreindar. Árangri samkeppninnar verður komið á framfæri opinberlega, verð- laun veitt og sennilega verður vinn- ingshöfum boðið í ferð til Stokkhólms á Nóbelsverðlaunahátíðina. Biskupsembættið hefur tekið vel i þá hugmynd að beina því til presta, að einhvern sunnudag f febrúar eða mars, taki þeir efnið „Maðurinn, tæknin og trúin" fyrir f stólræðu. Svo vel vill til að Ríkisúvarpiö Sjón- varp hefur ákveðið að auka verulega hlutdeild íslensks efnis í þættinum Nýjasta tækni og vísindi á árinu 1988, og er stefn að því að vera með myndir um íslenskar rannsóknir mánaðarlega í þættinum það árið. Einnig eru áætlanir um aö auka norrænt efni í þættinum. RÁÐSTEFNUR OG FUNDIR Ýmsar ráðstefnur eru á döfinni i til- efni af Norrænu tækniári. Meðal þeirra sem þegar hafa verið ákveðn- ar má nefna: Konur i Tæknifræð- ingafélagi íslands og Verkfræöinga- félagi islands munu þann 4. mars halda ráðstefnu um „Konur og tækni". Háskóli islands verður með ráð- stefnu i vor um ,,Áhrif tækni á sam- félag manna í nútíö og framtíð". Rannsóknaráð rikisins, Iðntækni- stofnun o. fl. munu gangast fyrir ráð- stefnu f maf um efnið „Tækniþróun og sjálfvirkni í atvinnulífi". (tengsl- um við ráðstefnuna verður sýning á sjálfvirknitækni. Verkfræöingafélag íslands verður næsta haust með ráðstefnu um „Tækni og umferðaröryggi'1. Fleiri ráðstefnur eru í bigerð. Hópur fyrirtækja í Skýrslutækni- félagi íslands mun standa fyrir svo- nefndum „Upplýsingatæknidegi", Orðsnilld Ritstoð Word Hugsýn Ritari PC-Write Einnig getur það unnið með SIDE- KICK og öðrum „memory-resident" kerfum. Það vinnur á öllum IBM-PC eða sambærilegum vélum, með DOS 2.00 eða hærra og nægjanlegu minni (512K æskileg). Höfundur þessa forrits er Friðrik Skúlason, starfsmaður Reiknistofn- unar H.f. og verður forritið til sölu þar og hjá ýmsum tölvusölum. Verði þess er stillt mjög í hóf, en það er kr. 3000 (+ 10% söluskattur). □ Friðrik Skúlason þann 25. september, þar sem þau munu leggja áherslu á að kynna þátt upplýsingatækni í starfsemi sinni. Af öðru sem fyrirhugað er má nefna skoðanakönnun á viðhorfi fólks til tækni og tæknivæðingar, útgáfu tæknispils, og svo verður að sjálfsögðu lokahóf um miðjan des- ember, þegar Norrænu tækniári verður formlega slitið. Auk þess sem hér hefur verið nefnt, er margt fleira í bígerð. Verður frá þvi greint jafnóðum og ákvarðanir um framkvæmd liggja fyrir. □ Sigurður H. Richter, framkvæmdastj. Norræns tækniárs 1988 STOFNAÐ BYGGINGAR- STAÐLARÁÐ 29. janúar næstkomandi veröur stofnað Byggingarstaðlaráö sem verður vettvangur stöölunar í bygg- ingariðnaði. Ráðið starfar sam- kvæmt nýsettum reglum um Staöla- ráð íslands. Að undanförnu hefur staðið yfir endurskipulagning staðlamála hér- lendis. Iðntæknistofnun íslands fer samkvæmt lögum með staðlamál á íslandi. Fram til þessa hefur stjórn Iðntæknistofnunar formlega sam- þykkt staðla og numið þá úr gildi. Sú breyting er orðin að stofnað hefur verið Staðlaráð íslands, sem hefur tekið viö hlutverki stjórnar Iðn- tæknistofnunar á sviði stöðlunar. Staðlaráðið starfar samkvæmt regl- um, sem samþykktar voru af stjórn Iðntæknistofnunar. Staðlaráið hefur samþykkt ramma- reglur fyrir stöðlun á stærri fagsvið- um. Byggingarstaðlaráð verður stofnað fyrst og á það að starfa sam- kvæmt áðurnefndum reglum. Auk áðurnefndrar skipulagsbreyt- ingar hefur ríkisstjórnin ákveöið að ísland gerist aðili að CEN og CENELEC, sem er samstarfsvett- vangur V-Evrópuríkja um stöðlun. Þetta hefur í för með sér mjög mikla aukningu í útgáfu staðla vegna þeirra kvaða sem aðildinni fylgja, en jafn- framt fáum við islendingar tækifæri til að fylgjast með og hafa áhrif á gerð staðlanna. Undirbúningsfundur að stofnun Byggingarstaðlaráðs var haldinn 17. desember sl„ og stofnfundur þess verður haldinn hinn 29. janúar nk. Þeir sem áhuga hafa á að gerast aðilar að Byggingarstaðlaráðinu og ekki hefur áður verið haft samband viö, eru beðnir um að hafa samband við Jóhannes Þorsteinsson, deildar- stjóra Staðladeildar, Iðntæknistofn- unar íslands I síma 687000. □ J.Þ. NÝTT FORRIT TIL STAFSETNINGARLEIORÉTTINGAR VERKTÆKNI — 25. JANÚAR 1988 11

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.