Verktækni - 25.01.1988, Qupperneq 18
HASKÓLI tækniskóli bandalag hioislenska verkfræðingafel tæknifræoingafel
ISLANDS (SLANDS HASKÓLAMANNA KENNARAFÉLAG ISLANDS ISLANDS
Endurmenntunarnefnd og Reiknistofnun
Unix kynning
(notuð er HP 9000/840 tölva, nýtist í öllum Unix kerfum)
Þessi kynning er ætluð þeim sem hafa nokkra re ynslu af tölvuvinnu og
forritun (í eihverju stýrikerfi).
TlMI: 15., 16. og 17. febr. kl. 13.15-17.00.
ÞÁTTTÖKUGJALD: Kr. 8.000.-.
LEIÐBEINENDUR: Magnús Gfslason reiknifræðingur og Maríus
Ólafsson reiknifræðingur.
Tölvusamskipti
EFNI: Það er fátt sem ekki er kennt um tölvusamskipti á þessu nám-
skeiði um áhugaverðasta svið tölvutækninnar á okkar timum. Þátttak-
endur öðlast reynslu í samskiptum við erlenda og innlenda upplýsinga-
banka. — Modem, gagnabitar, start- og stoppbitar, gagnanet, leigulín-
ur, staðlar, kostnaðarútreikningar. — Gagnabankar, upplýsingaveitur,
SKÝRR, Mercury Link, Prestel, BIX, Delphi, Source, o.m. fl. — (slensk
handbók með upplýsingum um fjölda kerfa.
TÍMl: 1. og 2. febrúar kl. 9-12 og 13:15-16.
ÞÁTTTÖKUGJALD: Kr. 8.000,-
LEIÐBEINANDI: Halldór Kristjánsson verkfræðingur.
Notkun tölvu við tölfræðilega
gagnavinnslu (fyrir pc-töivur)
Farið er yfir helstu atriði tölfræðiforritsins spsspc+ og rifjuð upp undir-
stöðuatriði úr tölfræði.
TÍMI: Námskeiðiö hefst 8. febrúar kl. 13:15 og verðuráttasinnum hálfur
dagur. Tímar verða eftir hádegi á mánudögum.
ÞÁTTTÖKUGJALD: Kr. 9.500,-
LEIÐEINENDUR: Elías Héðinsson félagsfræðingur og Helgi Þórisson
tölfræðingur.
Tölvunotkun
60 stunda námskeið sem hefst 26. janúar og lýkur í maí. Kennt verður
tvö kvöld í viku, 2 tíma í senn. Kennd verða helstu atriði í notkun IBM-pc
og sambærilegra tölva: Ritvinnsla (Ritstoð), töflureiknir (Multiplan),
skýrslumyndasmíð (Charl) og dBase 111+ auk stýrikerfisins MS-DOS.
ÞÁTTTÖKUGJALD: Kr. 19.500,-
LEIÐBEINANDI: Helgi Þórisson tölfræðingur
Gervigreind, Þekkingakerfi og
Rökforritun
ÞÁTTTAKENDUR: Námskeiðið er ætlað forriturum, kerfis- og tölvunar-
fræðingum.
MARKMIÐ: Að þátttakendur veriö aö námskeiöi loknu færir um aö taka
þátt í hönnun þekkingarkerfa og velja til þess verkfæri.
EFNI: Gerfigreind, þekkingarkerfi, ályktunaraðferðir, framsetning þekk-
ingar, rökforritun og Brolog, óvissuþættir, verkfæri til að hanna þekk-
ingarkerfi, „INSIGHT" þekkingarkerfið og forritun með því, verkefni.
LEIÐBEINANDI: Oddur Benediktsson prófessor og Páll Jensson for-
stöðumaður Reiknistofnunar.
TÍMI OG STAÐUR: Námskeiðið verður dagana 15.-19. feþrúar, alls 20
klst.
VERÐ: Þátttökugjald er kr. 14.000,- auk kennslubókar.
Suðugæði
Gæðastýring við suðu stálvirkja
ÞÁTTTAKENDUR: Námskeiðið er sniðið fyrir verk- og tæknifræðinga
sem fást við hönnun stálvirkja og þá sem annast á einhvern hátt gæöa-
eftirlit með suðu stálvirkja.
EFNI: Á námskeiðinu veðrur m.a. fjallað um: Flokkun stáls og suöu-
hæfni —suðugalla og orsakir þeirra — gæðastýringu, gæðastaðla —
gæðaprófanir.
Á hvern hátt er hægt að tryggja ákveðin stöðluö gæði suðu? Hvað eru
vetnissprungur, martensisk myndun, kolefnisjafngildi? Hvernig er for-
hitunarstig ákveðið? Hvað eru suðuferlar (weldingprocedure) o.fl.
LEIÐBEINANDI: Aðalsteinn Arnbjörnsson verkfræðingur, Iðntækni-
stofnun (slands
TÍMI, STAÐUR OG VERÐ: Námskeiðið verður haldið á AKUREYRI, 21.
janúar n.k. kl. 10.00-16.00 og í Iðntæknistofnun Islands, REYKJAVÍK
25. febrúar, kl. 10.00-16.00.
ÞÁTTTÖKUGJALD: 5.800 Kr.
Brunamál fyrir arkitekta
EFNI: Teknir verða fyrir þættir er varða skipulag bygginga með tilliti til
brunavarna s. s. bil milli húsa, rýmingarleiðir, brunahólfun, efnisval o. fl.
UMSJÓN: Guðmundur Gunnarsson verkfræðingur, Brunamálastofnun
TÍMI, STAÐUR OG VERÐ: Námskeiðið verður haldið 24. febrúar
kl. 9.00-17.00. Þátttökugjald er kr. 4.000.
Hljóðeinangrun í byggingum
(Hönnun, gallar, úrbætur)
TÍMI: 22.-24. febr. kl. 13.00-18.00.
LEIÐBEINANDI: Steindór Guðmundsson, verkfræðingur hjá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins.
ÞÁTTTAKENDUR: Námskeiðið er einkum ætlað verkfræðingum,
tæknifræðingum, arkitektum og öðrum þeim, sem vinna við hönnunar-
störf, framleiðslu eða eftirlit með byggingum eöa byggingarhlutum, þar
sem gerðar eru kröfur um hljóðeinangrun.
EFNI: Meðal efnis má nefna: Hljóðeinangrunarkröfur, staðlar og bygg-
ingarreglugerðir. Lofthljóðeinangrun veggja og gólfa, einfaldir og sam-
settir byggingarhlutar. Högghljóðeinangrun veggja og gólfa, áhrif mis-
munandi gólfgerða. Hljóðeinangrun f byggingum, hjáleiðni, randskil-
yrði. Hljóðeinangrun í byggingum, hjáleiðni, randskilyrði. Hljóðeinangr-
un útveggja. Val á byggingarhlutum m.t.t. hljóðeinangrunar. Úrbætur
í hljóðeinangrun eldri húsa. Byggingaraðferðir, gallar I hljóðeinangrun.
VERÐ: kr. 7.500 + gögn.
(„Operations research")
Notkun aðgerðargreiningar
við skipulagningu og stjórnun með dæmum um
reiknilíkön m.a. við framleiðslustjórnun
Námskeiðið er ætlað stjórnendum fyrirtækja, einkum verk- og tækni-
fræðingum og viðskiptafræðingum. Ekki er krafist meiri stærðfræði-
þekkingar en almennt er kennd í framhaldsskólum, en æskilegt að þátt-
takendur hafi einhverja þekkingu á (einka) tölvum og hugbúnaði s.s.
töflureiknum. Markmið námskeiðsins er að veita innsýn I aðgerðar-
greiningu, þ.á.m. þá hætti hennar sem að gagni koma við stjórn á fram-
leiðslu og birgðahaldi. Sýnd verður notkun einkatölvu við slík verkefni
og kynntur hugbúnaður á þessu sviði.
TÍMI: 1.-5. feb. um 20 klst.
VERÐ: Kr. 10.000,-
LEIÐBEINANDI: Páll Jensson forstöðumaður Reiknistofnunar Há-
skólans.
Skráning fer fram á skrifstofu Háskóla íslands, sími 694306.
Allar nánari upplýsingar veitir Margrét S. Björnsdóttir
endurmenntunarstjóri, Nóatúni 17, sími 23712 og 687664.
14
VERKTÆKNI — 25. JANÚAR 1988