Til sjávar - 01.09.1997, Qupperneq 3
Alþingi samþykkir
hafnaáætlun í fyrsta sinn
Þau tímamót urðu í vor á
Alþingi að þingsályktun
um hafnaáætlun hlaut í
fyrsta skipti formlega
afgreiðslu. Vita- og
hafnamálastofnun hefur
lögum skv. samið hafnaáætlun á tveggja
■> ára fresti en hún hefur ekki hlotið
afgreiðslu hjá Alþingi fyrr en nú.
, Ríkisframlag í lágmarki í ár
Samkvæmt upplýsingum Jóns Levís
Hilmarssonar, forstöðumanns tæknisviðs
Siglingastofnunar, hefur verið framkvæmt
fyrir 1.000 til 1.200 m.kr. í ríkisstyrktum
hafnarframkvæmdum síðastliðin ár. Þar af
hefur hlutur ríkissjóðs numið um 70% eða í
kringum 700-800 m.kr. Fjárveitingar hafa
þó ekki náð þeirri fjárhæð, þ.e. skuld
ríkissjóðs við hafnarsjóði hefur aukist. í
hafnaáætlun fyrir 1997-2000 er framlag til
nýrra verkefna nokkru minna en verið
hefur þar sem hluti fjármagnsins fer í að
greiða niður skuldir við sveitarfélögin.
Framlagið i ár er í lágmarki eða 567 m.kr.
Árið 1998 hækkar það í 667 m.kr. og
áætlun næstu tveggja ára þar á eftir gerir
ráð fyrir 693 m.kr. fyrir hvort ár.
Að sögn Jóns Levís er stærsta verkefnið
í ár, sem nýtur ríkisstyrkjar, dýpkun
innsiglingarinnar til Grindavíkur. Önnur
stór verkefni á næstu árum eru í Sundahöfn
á ísafirði og bygging brimvarnargarða á
Þórshöfn og Húsavík. „Áherslan er að
færast yfir á hafnir þar sem
uppsjávarfiskur, síld og loðna, er unninn,
t.d. víða á Austfjörðum og á Suðurlandi.
Þar er t.d. um að ræða endurnýjun á
stálþiljum í Vestmannaeyjum, Eskifirði og
Homafirði”, sagði Jón.
Hafnaáætlun fær aukið vægi
Samþykkt Alþingis á hafnaáætlun nú er
mjög mikilvæg að mati Jóns. Það gefur
henni aukið vægi og gerir vinnuna
markvissari. Ekki er við því að búast að
hafnaáætlun taki miklum breytingum á
þessu timabili. ,,Ef bæta á nýjum
verkefnum inn á hafnaáætlun þarf
samþykki Alþingis. ”, sagði Jón Leví.
Endurskoðun hafnaáætlunar hefst strax
næsta vetur og verða þá gerð drög að
hafnaáætlun fyrir árin 1999-2002.
Verðlaun á
sjómannadaginn
Sérstök viðurkenning til eigenda og
áhafna skipa var veitt í níunda sinn á
sjómannadaginn, 1. júní sl. Siglinga-
stofnun Islands veitir þessa viður-
kenningu nú í fyrsta sinn en áður hafði
Siglingamálastofnun ríkisins sinnt því
hlutverki. Viðurkenningin er fyrir
framkvæmd á öryggisreglum og góða
umhirðu skips á undanfömum ámm. Hún
á að vera hvatning fyrir áhöfn og
eigendur skipa að halda þessum málum í
sem bestu horfi.
Eftirfarandi skip hlutu viðurkenningu
árið 1997 (skipaskrárnúnter, nafn og
einkennisstafir):
1509 Ásbjöm RE 050
2044 Baldur -
1143 Gestur SU 159
1610 ísleifur VE 63
0363 Ósk KE 005
1019 Sigurborg HU 100
1291 Sæþór EA 101
Upplýsingakerfi um veður og sjólag
Hjá Siglingastofnun er hægt að nálgast
upplýsingar um veður og sjólag á
öllum tímum sólarhringsins. í síma 902-
1000 geta sjófarendur og aðrir fengið
upplýsingar frá veðurstöðvum í vitum og
höfnum og frá úthafsölduduflum. Þessi
þjónusta hefur verið mikið notuð frá því
hún komst í gagnið á síðasta ári, ekki síst
af sjómönnum en þessar upplýsingar auka
öryggi sjófarenda og auðvelda sjósókn.
Markmiðið er að veita sambærilega
þjónustu fyrir sjófarendur og stjórnendur
flugvéla geta fengið um veður og aðstæður
til flugs.
Upplýsingar á öllum tímum
. Veðurathugunarstöðvar hafa verið settar
upp á 19 stöðum á landinu í samvinnu við
Veðurstofu Islands og mælar til að fylgjast
með sjávarföllum. Upplýsingar berast á
klukkustundarfresti og birtast á tölvuskjá
sem auðvelt er að lesa af. Símsvari er síðan
tengdur við tölvurnar sem geyma gögnin
og þegar hringt er í 902-1000 fást
upplýsingar urn veður og sjólag allt í
kringum landið. Eins og myndin hér til
hliðar sýnir geta notendur valið á milli
fjögurra landsvæða og innan hvers
landsvæðis eru nokkrar veðurstöðvar.
Alls eru 19 veðurstöðvar tengdar
símsvara stofnunarinnar og munu fimm til
viðbótar bætast við á næstunni. Úti fyrir
ströndum landsins eru 7 öldudufl, við
Garðskaga, Straumnes, Grímseyjarsund,
Homafjörð, Vestmannaeyjar, Grindavík og
Kögur. Frekari upplýsingar um þessa
þjónustu er m.a. að finna á heimasíðu
Siglingastofnunar.
12 3 4
Dyrhólaey aó Öndverðarnes Siglunes
Öndverðarnesi að Siglunesi að Seley
Seley að
Dyrhólaey
3