Til sjávar - 01.09.1997, Side 5
Vita
hafna- og siglingamál
undir einni stjórn
Siglingastofnun íslands
varð formlega til 1.
október 1996 með samruna
Siglingamálastofnunar
ríkisins og Vita- og
hafnamálastofnunar.
Þjónustustofnun á sviði öryggismála
Hin nýja Siglingastofnun er fyrst og ffemst
þjónustustofnun á sviði öryggismála og
skipulagning hennar er í samræmi við það.
upplýsingastreymi ásamt bættri nýtingu
mannafla og aðstöðu.
Verkefni Siglingastofnunar
Verkefni Siglingastofnunar skv. lögum eru
eftirfarandi:
1. Að annast þátt ríkisins í framkvæmd
hafnalaga.
2. Að hafa umsjón með ríkisstyrktum
framkvæmdum við sjóvarnargarða og
lendingarbætur.
Aösetur Siglingastofnunar viö Vesturvör í Kópavoginum. Stofnunin hefur í tvígang fengið verölaun
umhverfisráös Kópavogsbaejar fyrir frágang á lóö og nánasta umhverfi. Liósm.: Kristján Maack
Höfuðstöðvar Siglingastofnunar eru í
Vesturvör í Kópavogi, þar sem Vita- og
hafnamál voru áður til húsa. Um 65
starfsmenn vinna í höfuðstöðvunum en auk
þeirra eru starfandi 8 fastráðnir vitaverðir og
7 skipaskoðunarmenn á landsbyggðinni:
Vestmannaeyjum, Ólafsvík, ísafirði,
Akureyri og á Fáskrúðsfirði. Starfsemi
stofnunarinnar er skipt niður í fjögur
meginsvið; stjómsýslu-, tækni, rekstrar- og
skipaskoðunarsvið.
Starfsemi Siglingamálastofnunar og
Vita- og hafnamála var nátengd þar sem
báðar stofnanirnar fengust við verkefni
tengd siglingum, skipaflotanum og öryggi
sjófarenda. Með sameiningu þeirra verður
framkvæmd samgöngumála á sjó í umsjón
einnar stofnunar. Ljóst er að sameinuð
stofnun hefur meira bolmagn til að liafa í
þjónustu sinni þá sérhæfðu starfsmenn sem
þörf er á hverju sinni og stuðlar að betra
3. Að annast framkvæmd laga um eftirlit
með skipum, laga um mælingu skipa og laga
um skráningu skipa.
4. Að annast framkvæmd laga um vitamál,
laga um leiðsögu skipa og laga um
kafarastörf.
5. Að annast mál er varða lög og varnir gegn
mengun sjávar og reglugerðir samkvæmt
þeim, að því leyti sem þau varða skip og
búnað þeirra samkvæmt reglum sem
umhverfisráðherra setur.
6. Að annast samstarf við alþjóðastofnanir
og framkvæmd alþjóðasamninga sem Island
er aðili að og varða siglinga-, hafna- og
vitamál.
7. Að vera stjómvöldum til ráðuneytis um
mál sem em í verkahring stofnunarinnar.
Tvær
viöurkenningar
á fimm árum
Umhverfisráð Köpavogs veitti
nýverið Siglingastofnun verðlaun
fyrir „Athyglivert framlag til
umhverfísmála”. Var viðurkenningin
veitt fyrir endurgerð á nausti við
Fossvog, Vesturvör í Kópavogi. Í
umsögn ráðsins segir: „Bátanaustið og
vörin hafa verið vel gerð upp og einnig
er frágangur á umhverfinu til
fyrirmyndar. Svæðið við naustið er
fallegur og áhugaverður áningarstaður
við útivistarsvæði og í framtíðinni
Ijölfama gönguleið.”
Arið 1992 veitti umhverfisráð
Kópavogs Vita- og hafnamálastofnun
verðlaun fyrir frágang á athafnasvæði
sínu við Vesturvör. Stofnunin hefur
því tvívegis fengið verðlaun á síðustu
fimrn árum fyrir frágang á umhverfi
sínu.
Merkileg saga
Árið 1938 fékk Guðni Jónsson
úthlutað iandi til ræktunar við
Fossvog. Hann hóf þegar að gera vör
við fjöruna og byggja bátaskýli -
„naust” - við vörina. Þama stundaði
Guðni trilluútgerð í fjölda ára. í byrjun
seinni heimsstyrjaldar byggði norski
herinn skemmu og aðstöðu fyrir
sjóflugvélar á landi austan við vörina
sem setuliðið tók síðan við. Að
stríðinu loknu yfirtók Vita- og
hafnamálastjóm mannvirki á staðnum
og hafði ýmsa aðstöðu á svæðinu. Það
var síðan fyrir 7 árum sem stofnunin
flutti alfarið á svæðið. Lóðin var
stækkuð til vesturs árið 1990 og síðan
hefur stofnunin séð um viðhald
naustsins.
Á síðustu árum hefur stofnunin
endurbyggt naustið frá grunni. Vörin
hefur verið lagfærð og varnarveggir
endurhlaðnir að hluta.
í framtíðinni mun liggja fjölfarin
gönguleið um þetta svæði sem tengir
saman Garðabæ, Reykjavík og Kópa-
vog.
5