Til sjávar - 01.12.1999, Blaðsíða 1
5.-6. tbl. 3. árg. desember 1999
Fréttabréf Siglingastofnunar
1
Öryggi
fiskiskipa
2
Siglingaleiðir
olíuskipa
3
Stöðugleiki
þekktur
5
Irsk
heimsókn
8-9
Óskar í
Stórhöfða
12
Frumvörp á
Alþingi
15
Vitaverðir
kynntir
Smíði og búnaður fiskiskipa
Nýjar alþjóðlegar reglur
í gildi um áramót
Þann 1. janúar nk. ú reglugerð
um öryggi jiskiskipa sem eru 24 m
aö lengd eóa lengri að taka gildi.
I reglugerðinni eru ákvœði um
hönnun, smíði og búnað þilfars-
fiskiskipa. Ari Guðmundsson
reifar hér helstu atríði hennar.
Reglugerðin gildir fyrir ný
fiskiskip sem eru 24 m að
lengd eða lengri en
ákvæði reglugerðarinnar um neyð-
arráðstafanir, fjarskiptabúnað og
siglingatæki gilda einnig fyrir
eldri skip.
Reglugerðin skiptist í tvo
meginhluta, annars vegar stutta
reglugerð með ákvæðum um
gildistöku o.fl. og hins vegar tvo
viðauka. Uppsetning á I. viðauka
er sú sama og á Torremolinos-
alþjóðasamþykktinni um öryggi
fiskiskipa, 1977, eins og henni
hefur verið breytt með Torremo-
linos-bókuninni frá 1993. Auk
þess sem I. viðauki inniheldur öll
ákvæði bókunarinnar er þar einnig
að finna ákvæði tilskipunar
Evrópusambandsins (ESB) nr.
97/70. Sum ákvæði tilskipunar-
innar eru svæðisbundin og í II.
viðauka við reglugerðina er kort
yfír svokallað Norðurhafsvæði. I
I. viðauka eru loks nokkur íslensk
sérákvæði, þ.e. ákvæði sem gilda
einungis fyrir íslensk fiskiskip.
Sérstaklega er fjallað um Torre-
molinos-bókunina og tilskipun
ESB annars staðar í þessu blaði.
Ákvæði reglugerðarinnar
I. viðauki reglugerðarinnar er í
raun meginefni Torremolinos-
alþjóðasamþykktarinnar, eins og
henni hefur verið breytt, þar sem
ákvæðum tilskipunar ESB ásamt
íslenskum sérákvæðum hefur
verið bætt inn á viðeigandi
stöðum. Viðaukinn skiptist í
eftirfarandi kafla:
I Almenn ákvæði, undanþágu-
heimildir, eftirlit, útgáfu
skírteina o.fl.
II Smíði fiskiskipa, vatnsþétt
niðurhólfún, lokunarbúnaður
og ýmis búnaður.
III Stöðugleiki fiskiskipa og
sjóhæfni.
IV Vélbúnaður, rafmagnskerfi
og sjálfvirkni í vélarúmi
(tímabundið ómönnuð
vélarúm).
V Eldvamir, eldskynjun,
slökkvibúnaður og
slökkvistörf.
VI Búnaður til vemdar
áhöíhinni.
VII Björgunarbúnaður og
íyrirkomulag hans.
VIII Neyðarráðstafanir, saman-
söíhun og æfingar ásamt
tilheyrandi þjálfun.
IX Fjarskiptabúnaður. Gerð er
krafa um svokallaðan
GMDSS-búnað.
X Siglingatæki og útsýni frá
stjómpalli.
frh. bls. 6
Fjölbreytt 16 blaðsíðna jólablað
Meginefni Til sjávar að þessu sinni er hin nýja „síðasta" vitavörðinn á íslandi, Óskar Jakob
reglugerð um öryggi fiskiskipa. Itarlega umfjöllun er Sigurðsson. í blaðinu er einnig að fmna helstu fréttir
að fínna á bls. 1 og 6-7. I miðopnu er viðtal við af starfseminni eins og áður.