Til sjávar - 01.12.1999, Page 14
Niðurstöður útboða
Dags. Heiti útboðs Kostnaðaráætlun Lægsta tilboð % Verktaki m. lægsta tilboð Fj. tilboða
05.10.99 Sauðárkrókur - Dýpkun 13.500.000,- 14.735.000,- 109 Björgun hf. 1
19.10.99 Grenivík - Sjóvöm 5.009.500,- 4.228.000,- 84 Iðufell ehf., Raufarhöfn 5
16.11.99 Eyrarbakki - Sjóvöm 8.651.800,- 5.280.000,- 61 Borgarvirki ehf. 5
Umburðarbréf
Dags. Heiti
Nr. Flokkun
12.11.99 Ásprautun málms á öxla 12/1999 5.1.14.2.
12.11.99 Slógloki í lokuðu vinnslurými á aðalþilfari 13/1999 5.2.3.Ó.
Lög og reglur
Dags. Heiti Nr. S01 nr. Gildistaka
10.09.99 Reglur um öryggisbúnað krana og lyftubúnaðar 609/1999 10.09.99
16.09.99 Auglýsing um gildistöku EES-reglugerða um inn- og útflutning tiltekinna hættulegra efna 619/1999 16.09.99
11.10.99 Reglugerð um sprengiefni 684/1999 11.10.99
15.10.99 Reglur um tilkynningarfrest slysa samkvæmt III. kafla laga nr. 117/1993 um almannatryggingar 709/1999 15.10.99
01.12.99 Reglugerð um eftirlitsreglur hins opinbera 812/1999 01.12.99
Öryggisbúnaður
Tilurð losunar- og sjósetningarbúnaðar
Ljósmyndari: Hjálmar R. Bárðarson
Sigmar Þór Svein-
björnsson siarfsmaöur
Siglingastofnunar hefur
tekið saman stutta grein
sem segir frá tilurð þess að hafin var
smíði á sérstökum losunar- og sjósetn-
ingarbúnaði gúmmíbjörgunarbáta.
r
Iáranna rás hafa mörg skip farist þar
sem enginn maður hefur verið til
frásagnar. Þessi slys, eins og mörg önnur
sjóslys, hafa orðið að vetri til í skamm-
deginu, oft í svartamyrkri, kulda og
slæmu veðri. Sjóslys hafa einnig orðið
þar sem skip fórust mjög snöggt, og fyrir
snarræði einstakra manna um borð, tókst
að ná gúmmíbjörgunarbát af geymslustað
þó skipið væri nánast á hliðinni hálfsokk-
ið, og bjarga þar með hluta eða allri
áhöfninni. Með hliðsjón af þessu er ekki
erfitt að áætla að í þeim tilfellum sem
enginn var til frásagnar hefðu mennirnir
einfaldlega ekki haft tíma til að ná
gúmmíbjörgunarbátnum. Það er erfitt að
setja sig í spor manna sem staddir eru úti
á rúmsjó á sökkvandi skipi í slæmu veðri
í kolsvarta myrkri með skipið á hliðinni
og öll ljós að slokkna. Myrkrið verður
algjört, nema það takist að sjósetja
gúmmíbát, þá er lítið ljós á þaki hans
eina ljósið sem sést í myrkrinu.
Oft gerast þessi
sjóslys þannig að
skipin fara á
hliðina í einni veltu
stoppa þar litla
stund, sökkva
síðan á örskammri
stund eða fara á
hvolf. Sjómenn-
irnir hafa því lítinn
og eflaust stundum
engan tíma til að
nálgast talstöð,
gúmmíbjörgunar-
bátinn eða önnur
björgunartæki um
borð, eins og t.d.
björgunarbúninga,
neyðarflugelda og þess vegna verður
enginn til frásagnar.
Skömmu áður en fyrsti búnaðurinn var
búinn til fórst bátur þar sem atburðarrás
var nákvæmlega eins og hér að ofan er
lýst. Þar sem báturinn var á hliðinni, kom
brot yfir hann og hreif með sér gúmmí-
bátinn sem hafði verið í trékassa uppi á
stýrishúsi, við það hentist gúmmíbáturinn
í sjóinn og sjómennirnir syntu frá hinu
sökkvandi skipi á eftir honum og komust
flestir að óuppblásnum gúmmíbátnum.
Þar sem hann var óuppblásinn var það
næsta verkefni þeirra í ísköldum sjónum,
að reyna að taka í línu hans og blása hann
upp. Það reyndist mikil raun og þegar
loksins tókst að opna flösku bátsins og
blása hann upp, höfðu fjórir úr áhöfn
örmagnast og drukknað við lilið skips-
félaga sinna.
Þessar hrikalegu aðstæður og margar
aðrar sem komið hafa fram í sjóprófum,
voru hafðar í huga þegar verið var að
hanna og prófa fyrsta losunar- og sjósetn-
ingarbúnaðinn.
14