Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.1967, Qupperneq 3

Neytendablaðið - 01.09.1967, Qupperneq 3
NBYTENDABLAÐIÐ S Stofna ber matsnefndir um iðnaðarvinnu Erindi Sveins Ásgeirssonar á 29. iðnþingi íslendinga Neytendasamtökin voru ekki stofn- uð til höfuðs neinum, og hafa ekki starfað í þeim anda. Þau eru ekki stéttarsamtök eins og til dæmis þau, sem nú halda 29. iðnþing sitt. Neyt- endur eru alhr þjóðfélagsþegnar frá vöggu til grafar. I lögum Neytenda- samtakanna segir: Markmið samtak- anna er: að gæta hagsmuna neyt- enda í þjóðfélaginu. Segja má, að það sé ekkert smáræði, sem þau æth sér. Og það er það reyndar ekki held- ur. En þó er það ekki ofurmannlegt, og það byggist einmitt á því, að allir eiga hagsmuna að gæta sem neytend- ur, enda þótt vandamál neytandans komi misjafnlega niður á mönnum. Það sem hér er um að ræða, snertir aðstöðu manna. Hvort þeir eru í stöðu kaupandans, sem á að borga, eða seljanda, sem á að fá greitt fyrir vöru eða þjónustu eða vinnu. Hags- muna- og kjarabarátta þegnanna í nútíma þjóðfélagi hefur fyrst og fremst verið háð frá sjónarmiði selj- andans í víðtækum skilningi. Enda er mun auðveldara að bindast sam- tökum um sjónarmið þeirra í hinum ýmsu greinum. Og þeir hafa aflað sér forréttinda, sérréttinda og margs konar hagsmunaverndar. Um sjónar- mið neytenda hefur aftur á móti minna verið hirt með þeim afleiðing- um, að í stöðu neytandans hafa menn auðveldlega glatað öllu, sem þeir töldu sig hafa unnið sem selj- endur eða framleiðendur. Sem neytendur hafa menn orðið að standa einir síns Uðs. Aðstaða þeirra hefur oft verið slík, að stapp- ar nær algeru réttleysi í reynd. Það hahar ávallt á neytandann. Aðstaða hans hefur verið svo veik ekki að- eins vegna samtakaleysis heldur engu síður vegna þess, að þær leiðir, sem þjóðfélagið hefur boðið neytend- um til að ná rétti sínum, eru svo erfiðar, seinfarnar, dýrar og tvísýn- ar, að til þess að fara þær þarf yfir- leitt meiri peninga, tíma og kjark en hann yfirleitt hefur samanlagt. Sjónarmið neytenda og Alþingi. Hinum kjömu fulltrúum á Alþingi, sem þó eiga fyrst og fremst að hugsa um þjóðarhag, finnst, sem von er, að þeir séu skuldbundnari hinum ýmsu hagsmunahópum í þjóðfélaginu held- ur en neytendum almennt. Því að hverjir voru það, sem komu þeim á framboðslistann ? Og hvemig voru þeir titlaðir á honum? Það er líka mála sannast, að lítið hefur borið á frumvörpum, hvað þá löggjöf, sem hefðu þann tilgang æðstan og þá hugsjón að baki að efla hagsmuni neytenda almennt og tryggja rétt þeirra og réttarstöðu. Aftur á móti hafa réttindi framleiðenda og sclj- enda vöra og þjónustu verið ramm- lega lögfest á mörgum sviðum. Og að hrófla við þeim réttindum, sem menn hafa einu sinni fengið og verða þeim

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.