Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.1967, Qupperneq 7

Neytendablaðið - 01.09.1967, Qupperneq 7
NEYTENDABLAÐIÐ 7 En þessi ánægja að kaupa getur oft hlaupið með okkur í gönur. Við njótum kaupgleðinnar á bráðfleygri stund, en höfum svo lítið eða ekkert gagn af því, sem fækkaði þeim seðlum, sem við ella hefðum til frjálsrar ráðstöfunar. Við erum fátækari en ella. Minnumst þess, að við kaupum ekki nema einu sinni fyrir hvem seðil, sem við látum af hendi. Og þótt oftast sé auðvelt að finna afsökun, þá hefur hún ekkert fjárhagslegt gildi. Vissulega er mömium vemleg vorkunn að eiga bágt með að fylgjast með hinum sífelldu verðbreytingum hér á landi. En þó verður það að segjast, að öimur eins vanþekking á verði hhma daglegu lífsnauðsynja og hér er, á sér vart hliðstæðu með neinum menningarþjóðum. Og hvort sem skýringhx er þjóðarstolt eða þá, að víkingablóðið sé farið að þynn- ast með þjóðinni, þá hlýtur sá alltaf að tapa, sem kann ekki við að spyrja um verð, er á móti öllu þrasi og þorir ekki að hiðja um kvittun, hvað þá að fara fram á að fá hana sundurliðaða. Það er ekki einvörð- migu framkvæmd réttarfarsins að kenna, hve réttlausir við neytendur oft erum I reynd, heldur engu síður okkur sjálfum, hegðuu okkar og aðferð sem neytendur. Tilgangur samtaka okkar er að efla hag neyt- enda og treysta aðstöðu okkar sem slíkra, en honum verður ekki náð með því eingöngu að gagnrýna seljendur, heldur engu síður eða öllu fremur að gagnrýna ueytendur_, ekki bara hina heldur okkur sjálf per- sónulega. Það þurfum við ekki að gera hátt, heldur í hljóði. Og með því að skrifa áðurnefnda sögu, ekki einu sinni heldur oftar, en einu sinni er allt fyrst. Tekjur og útgjöld skapa hag okkar. Islendhigar hugsa almennt mun betur um tekjur sínar en útgjöld. Og slíkur er munuriim, að það er eins og það sé allt annað fólk, sem í hlut á, hvort það eru tekjumar eða útgjöldin, sem um er að ræða. Allt önnur framkoma, gjörólík skap- gerð. Nákvænmi, stolt og metnaður breytist í kæruleysi, auðmýkt og bleyðuhátt. Hér er sterklega til orða tekið, og menn nota yfirleitt öimur hugtök yfir eigin viðbrögð. En því er það gert hér, að margt af því, sem Neytendasamtökin vinna að, er unnið fyrir gýg, ef íslenzkir neyt- endur safna ekki liugrekki og þekkingu til að losa sig við vanmáttar- kennd.

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.