Neytendablaðið - 01.09.1967, Page 10

Neytendablaðið - 01.09.1967, Page 10
10 NEYTENDABLAÐIÐ Erindi á iðnþingi tekið fram í samningi — munnlegum eða skriflegum. Það skal skýrt tekið fram hér, að reynsla Neytendasamtakanna af sam- skiptum þeirra við seljendur — hing- að til fyrst og fremst kaupmenn —, er yfirleitt hin bezta, þótt undantekn- ingar séu að sjálfsögðu ýmsar. Ef seljandinn hafnar allri málamiðlun, en með henni er fundin lausn flestra mála, þá kemur í ljós það réttleysi neytandans í reynd, sem ég nefndi svo áðan. Þá er aðeins ein leið til, það er að leita til dómstólanna, þá seinförnu, dýru og tvísýnu leið, en sá vegarspotti réttlætisins má heita nær ófær allt árið um kring fyrir flestar tegundir neytendamála. Réttur neytandans samkvæmt kaupalögunum er mikill — í orði. En fyrir milligöngu Neytendasamtak- anna og vegna almenns vilja seljenda til sanngirni er hann einnig oft snar- lega á borði, þannig að lögin hafa verið lögð til grundvallar við lausn mála, þótt engir dómstólar kæmu nærri — né heldur málskostnaður. Annað mjög veigamikið atriði varð- andi samskipti Neytendasamtakanna og seljenda er það, hve mörgum þeirra hefur fljótt orðið ljóst, hvaða hag þeir sem seljendur geti haft af milligöngu Neytendasamtakanna. Þau leitast við að ná rétti neytand- ans, en heldur ekkert umfram það. Hafi neytandinn engan rétt eða tak- markaðan, þá fær hann hiklaust að vita það. Það er eðlilegt, að kaup- andi rengi seljanda um það mál, en ekki Neytendasamtökin. Og það gera þeir ekki heldur, þótt óneitanlega séu til nokkrar undantekningar í því efni sem öðrum. Ágreiningsmál þarf að leysa skjótlega. En á ýmsum sviðum getur orðið erfitt að finna viðunandi og örugg- lega sanngjarna lausn, og það á ekki sízt við um ýmis konar þjónustu. En ýmsar leiðir eru til, sem fara má til að fá sem skjótasta lausn á ágrein- ingsmálum kaupanda og seljanda í þessum efnum, ef samkomulagsvilji er fyrir hendi og þá sérstaklega af hendi seljenda, því að það er oftast, sem á hann reynir. Þegar til kast- anna kemur, hefur hann mun sterk- ari aðstöðu í þjóðfélaginu. Hans bláa nei og þóttafulla þvermóðska getur því hæglega valdið því, að kaupand- inn beri meira eða minna tjón að ósekju. Við teljum það siðferðilega skyldu hinna ýmsu samtaka seljanda vöru og þjónustu að sýna jákvæðan vilja til úrbóta í þessum efnum. En hér reynir ekki aðeins á sanngirni, held- ur einnig á framsýni og hagsýni, því að það hlýtur að vera hagsmunamál hverrar stéttar, hverrar iðngreinar t.d., að ágreiningsmál við neytendur eða kaupendur séu sem fæst, og að sem auðveldust leið sé höfð opin til að leysa úr þeim og þá af aðila, sem jafnt kaupendur sem seljendur eiga að geta treyst. Matsnefndir. Hér vil ég benda á eina leið, sem Neytendasamtökin hafa hina beztu reynslu af. Um árabil hefur starfað Matnsnefnd í ágreiningsmálum vegna fatahreinsunar, en í henni eiga sæti Framh. á bls. 13.

x

Neytendablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.