Neytendablaðið - 01.09.1967, Page 16
NEYTENDABLAÐIÐ
16
Eins gott að vera viss í sinni sök
Meðlimir danska Heimilisráðsins
krafðir um 7.5 millj. kr. skaða-
bætur vegna umsagnar um app-
elsínusafa.
1935 var sett á stofn Heimilisráð
ríkisins í Danmörku. Meðlimir þess
eru 19, skipaðir af innanríkisráðu-
neytinu að fengnum tillögum ýmissa
samtaka og stofnana að mestu leyti.
Þetta hefur fyrst og fremst verið
„kvennaráð", þar sem kvenfélög
hafa tilnefnt flesta fulltrúana, enda
hefur starfsemin aðallega beinzt að
störfum húsmóðurinnar. Eru nú í
ráðinu 15 konur og 4 karlmenn. Hlut-
verk ráðsins er að efla og standa
vörð um hagsmuni heimilanna þeirra
vegna og þjóðfélagsins í heild. Starf-
semin er að öllu leyti kostuð af rík-
inu, en útgjöldin voru um 12 millj.
ísl. kr. 1966.
Ráðið hefur til umráða eigin rann-
sóknarstofu, en stofnunin er algjör-
lega sjálfstæð sem slík, t.d. í vali á
verkefnum, sem hafa verið mjög fjöl-
breytileg. Heimilistæki, pottar og
pönnur, gólfflísar og gardínur hafa
verið tekin til rannsóknar og niður-
stöður birtar í ódýriun bæklingum,
auk þess sem hvers kyns vandamál
heimilanna hafa verið könnuð og al-
menn ráð gefin. En síðast og ekki
sízt hefur hið danska ráð fjallað um
matvæli hvers konar, gæði þeirra og
næringargildi, og jafnvel gefið út
bæklinga um það, hvað fólk á ýms-
um aldri og þyngd ætti að borða.
Fyrri hluta þessa árs skeði það
svo, að birtar voru niðurstöður
rannsókna á ýmsum tegundum
ávaxtasafa í dósum. Er skemmst frá
því að segja, að salan á gríska app-
elsínusafanum Sunfix féll eftir birt-
inguna úr 12-18 millj. króna niður
í 2 millj. á 8 mánuðum. Niðurstaðan
hafði nefnilega orðið sú, að dómi sér-
fræðinga ráðsins, að safinn væri
þynntur með vatni en auðgaður með
amínósýru. En því hefur gríska fyr-
irtækið Hjunofix stefnt meðlimum
ráðsins persónulega, að ráðið er sjálf-
stæð stofnun og óháð í vali á rann-
sóknarefnum og ákvörðun um birt-
ingu niðurstaða. Ráðið situr þó fast
við sinn keip eftir að hafa látið end-
urtaka rannsóknina og fá einkarann-
sóknastofu til að gera enn aðra.
Neytendasamtökin og
Heimilisráðið.
Frá upphafi hefur verið hið bezta
samstarf milli okkar samtaka og
ráðsins, og höfum við ástæðu til að
vera því þakklátt á margan hátt.
Eigi aðeins höfum við birt margt úr
bæklingum ráðsins íslenzkum neyt-
endum til fróðleiks (m.a. um sjálf-
virkar þvottavélar í síðasta blaði),
heldur hefur ráðið staðið með Neyt-
endasamtökuniun, þegar þau hafa
verið lögsótt á nákvæmlega sama
hátt og þau eru sjálf nú. Og var
það þó danskt þvottaefni, sem um
var að ræða, innflutt hingað. Gátum
við lagt fram gögn frá ráðinu okkur
til stuðnings fyrir Hæstarétti, eftir
að meiri hluti stjórnar Neytenda-
Framh. á bls. 15.