Neytendablaðið - 01.09.1997, Blaðsíða 17
viðskiptavinum ókeypis á-
kveðið rými fyrir heimasíðu,
frá ÍOOK til 5 Mb, eða leigja
það sérstaklega. Eitt Mb dugir
fyrir 20 meðalskjámyndir
með myndum og texta.
Myndir taka hlutfallslega upp
mun meira rými en texti.
Sumir þjónustuaðilar taka
fram að klám, auglýsingar
o.fl. sé bannað á heimasíðum
sem vistaðar eru hjá þeim.
Sumir hirða ekki um að halda
við heimasíðum og uppfæra
þær, svo stundum eru gögnin
úrelt.
Hvað kostar það?
Fyrirtækin sem selja netteng-
ingar bjóða ýmsa pakka með
mismunandi búnaði og þjón-
ustu. Uppsetning Internets-
sambands getur verið flókið
ferli og misdýrt eftir því hvort
notandinn kemur með tölvuna
eða fær starfsmann heim.
Erfitt er að bera beint saman
verðskrár. Ef notkunin er lítil,
eða innan við ein klukkustund
á dag, er e.t.v. hagstæðast að
kaupa tengingu með mínútu-
gjaldi, eins og t.d. hjá Pósti og
síma eða Nýherja. Sé notkun
mikil er um ýmsa möguleika
að ræða og best að bera sam-
an tilboð þjónustuaðilanna.
Sumum finnst viðkunnanlegra
að kaupa fjölskyldupakka og
hafa fleiri en eitt netfang í
tölvunni ef margir skiptast á
um að nota hana. Þá getur
hver einstaklingur haft eigið
svæði fyrir tölvupóst og önn-
ur samskipti.
Gestur G. Gestsson hjá
Margmiðlun bendir á að sam-
anburður eins og fram kemur
í töflu um verð, notendur,
mótöld o.s.frv., sé engan veg-
inn nægur mælikvarði til að
neytendur geti áttað sig á því
við hverja er best að skipta.
Til þess að gefa rétta mynd af
gæðum þjónustunnar þyrfti að
bera hana skipulega saman
með nokkrum hópi notenda.
Reynslan sýnir að síma-
kostnaðurinn hækkar nær ó-
hjákvæmilega hjá flestum
þeim sem tengjast Internetinu,
þótt öll samskipti fari fram á
innanbæjartaxta Pósts og
síma. í könnun bresku neyt-
Ólafur H. Torfason
tók saman.
endasamtakanna nýlega var
meðalnotkun fjölskyldu á net-
inu um 24 klst. á mánuði.
Tveir þriðju hlutar heimilanna
ákváðu að setja hámarkskvóta
á hana til að lækka símareikn-
ingana en samt sem áður
hafði um þriðjungur áhyggjur
af háum reikningum í lok
tímabilsins.
Tölvusambönd fara fram á
innanbæjartaxta Pósts og síma
nema annað sé tilgreint.
Dagtaxti gildir kl. 8-19 mán,-
fös. og þá kostar mínútan 1,11
kr„ en kvöld- og helgartaxti
er 0,55 kr. á mínútu. Klukku-
stundarsamband kostar því
um 67 kr. á dagtaxta en um
33 kr. á kvöldin og um helgar.
Hvernig má
flýta fyrir sér?
Tíminn flýgur þegar fólk
vafrar um vefinn, margt er að
sjá og netið er oft pirrandi
seinvirkt. Það getur tekið afar
mislangan tfma að vinna
sömu verk með sama búnaði.
Munurinn á því að kalla fram
ákveðna mynd getur verið á
bilinu frá nokkrum sekúndum
upp í nokkrar mínútur. Hraði
Heimasíða Norræna
vejþjónsins. Leitað var að
orðinu „neytendur“ ogfun-
dust 157 íslenskar síður með
því.
tengitímans og gagnaflutning-
anna um netið skiptir veru-
legu máli þegar greitt er fyrir
notkunina eftir tímamælingu.
Hraðinn fer eftir álaginu á
heildarkerfið á hverjum tíma,
búnaði þjónustuaðilans og
búnaði notandans. Hjá Intls
(Internet á Islandi) getur fólk
m.a. séð hvenær álagið er
mest í samskiptum við útlönd
með því að fara á veffangið
www.isnet.is. Auðveldast og
ódýrast er trúlega að nota
Intemetið kl. 6-8 á morgnana,
þegar netsamskipti íslendinga
við umheiminn eru að jafnaði
minnst, þau aukast yfir daginn
og fram á kvöld en ná há-
marki um miðnætti. Þegar
Bandaríkjamenn fara á fætur
(síðdegis eftir okkar klukku)
hægist á öllu Intemetinu.
Hraðinn eykst ef sleppt er
þeim möguleika að kalla
myndir fram á skjáinn og að-
eins texti skoðaður. Meiri
bandbreidd og hærri hraði
mótalda auka mjög afköstin.
Með ISDN-tengingu (stafræn-
um gagnaflutningi) er tengi-
tími styttri og hægt að ná um
fjórum sinnum meiri hraða
heldur en með algengustu
gerð mótalda.
Hvert er öryggið?
í viðskiptum á netinu eru
margir ragir við að gefa upp
kreditkortanúmer en í sjálfu
sér er ekki varasamara að gefa
upp númer þar en í síma. Með
eldri gerðum af vöfrum var
öryggið ekki mikið en á þeint
nýjustu, t.d. Netscape
Navigator 3 og Internet Ex-
plorer 3 er ruglunarbúnaður
(trufiari) sem útilokar að
óviðkomandi geti komist inn
á sambandið og notfært sér
upplýsingarnar. í lok ársins er
reiknað með að nýtt ruglunar-
kerfi, SET, verði komið á )
NEYTENDABLAÐIÐ -September 1997
17