Neytendablaðið - 01.09.1997, Side 18
• • • fl
Margmiðlun
markað. Öraggast er að versla
við stór og þekkt fyrirtæki.
Rétt er að prenta út og geyma
mynd af síðunni eins og hún
var þegar viðskiptin voru
gerð. Varist svindl eins og
bréfakeðjur sem lofa
skyndigróða.
Það er njósnað um fólk á
netinu. Sum fyrirtæki vilja fá
netfang notandans áður en
þeir hleypa honum inn á
gagnasíður til að geta notað
það í markaðsherferðum og í
auglýsingaskyni. Eigandi eða
umsjónaraðili heimasíðu get-
ur líka séð upplýsingar um
þann sem opnar hana, þjón-
ustuaðila hans, tölvubúnað og
vafra. Vilji fólk sjá hvers eðl-
is þessar upplýsingar eru má
skoða http://www.anonymiz-
er.com og smella á DON’T
BELIEVE US? Þarna er boð-
ið upp á leiðir til að verða
ósýnilegur, geta vafrað um
netið"án þess að skilja eftir
„spor“. Ekki næst samband
við þennan aðila ef notandinn
er innan við „eldvegg" (secu-
rity firewall), öryggisbúnað
sem einangrar tölvuna.
Vandaðir þjónustuaðilar
erlendis hafa ákveðna stefnu
og aðferðir varðandi einka-
vernd notenda. Einnig má fá
hjálp hjá Electronic Frontier
Foundation á heimasíðunni
http://www.eff.org, en hún
var í ágúst 1997 ein af fjórum
vinsælustu síðum á veraldar-
vefnum. Búist er við að fljót-
lega komi á markað hugbún-
aður til að vernda fólk fyrir
sendingum sem það óskar
ekki eftir. Dregið hefur úr
auglýsingafargani, enda er
það óréttlátt þar eð notandinn
greiðir sjálfur fyrir að opna og
lesa slíkt efni.
Er hægt að
vernda börnin?
Algengt er að notendur opni
óvart efni sem þeim finnst
ósæmilegt, sérstaklega klám.
Um þriðjungur hópsins í
breskri könnun hafði áhyggjur
af þessari hlið netsins og hve
auðvelt var að lenda á slíku
efni. Mörg þjónustufyrirtæki
erlendis hafa í gangi hugbún-
að sem leitar uppi og gerir
kleift að útrýma því efni af
þjónustusvæðinu sem ekki er
talið við hæfi barna (parental
control). Áuk þess er hægt að
sækja sérstakan eftirlitshug-
búnað á netið. Um helmingur
notenda í bresku könnuninni
skoðaði hann og fannst góður.
Mikilvægt er að börnum
sem nota Internetið sé leið-
beint um helstu siði þar og
þeim kenndar nokkrar reglur,
t.d. þessar:
• Gefið aldrei nokkrum á
netinu upp persónulegar upp-
lýsingar eins og símanúmer
ykkar, heimilisfang eða heiti
skóla, nema með leyfi for-
eldra.
• Haldið aðgangsorðum
(password) ykkar leyndum,
líka fyrir vinum.
• Ef ykkur fer að líða illa
eða þið farið að hafa áhyggjur
meðan þið eruð á spjallrás,
segið þá einhverjum fullorðn-
um frá því. Farið aldrei inn í
„einka“-spjall-„herbergi“ (pri-
vate siderooms).
Frekari upplýsingar um
ungmennavernd er m.a. að
finna á bresku heimasíðunni
http://nchafc.org.uk sem er á
vegum NCH Action for
Children. Verði fólk vart við
barnaklám eða annað efni
sem því finnst óæskilegt á
netinu getur það haft samband
við eftirlitsstofnunina IWF
(Intemet Watch Foundation)
sem var sett á fót 1996 til að
stemma stigu við ólöglegu
efni. Netfangið er
eport@intemetwatch.org.uk. í
Yahoo er einn elsti og vin-
sœlasti vejþjónninn
(leitarvél).
Bandaríkjunum er starfandi
stofnunin US Recreational
Software Advisory Council,
sem veitir ráðgjöf um „góðar“
og „öruggar“ heimasíður og
hægt að fræðast um hana á
http://www.rsac.org.
Þar eð smekkur er misjafn
og mikið fínnst af löglegu
efni sem ýmsum þykir ósæm-
andi er oft ekkert hægt að
gera í málunum. Vafasamasta
efnið er oft í sumum Usenet-
fréttahópum (newsgroups). Af
þeim sökum veita ýmsir þjón-
ustuaðilar ekki tengingar við
ákveðna slíka hópa.
Hver er framtíðin?
Pétur Einarsson hjá Hring-
iðunni, sem er einn af fjórum
stærstu þjónustuaðilunum á
þessu sviði, álítur eins og
fleiri að eftir nokkur ár muni
fyrirtæki sem bjóða innhringi-
samband fyrir Internetteng-
ingar ekki vera til í sömu
mynd og nú. Þau muni þróast
yfir í eins konar fjölmiðla,
sem bjóði viðskiptavinum sín-
um auk tengingarinnar ýmiss
konar sérhæfða þjónustu, í stíl
við hin erlendu. Varla munu
mörg íslensk fyrirtæki hafa
bolmagn til þess, en Islenska
útvarpsfélagið er þó komið af
stað í samvinnu við Islandia
og Morgunblaðið er að búa
sig undir að selja innhringi-
samband. Má vænta þess að
viðskiptavinir fái aðgang að
gagnasafni blaðsins og
annarri þjónustu sem er lokuð
öðrum en áskrifendum eða á
hærra verði annars staðar.
Vinsælar heimasíður
í tölvublöðum eru stöðugt upplýsingar
um gagnlegar heimasíður. í könnun
bresku neytendasamtakanna 1997 var
fólk sérstaklega ánægt með þessar:
Uppáhald ungmenna
http://www.thomasthetankengine.com
- (tenglar fyrir krakkasíður)
http://www.trivialpursuit.com (spurn-
ingaleikur)
http://www.nmsi.ac.uk
(Vísindasafnið í London)
http://www.nasa.gov -
(Bandaríska geimferðastofnunin)
Fjölmiðlar
http://www.newscientist.com.
(vísindatímarit)
http://www.nature.com.
(vikublað um náttúruvísindi)
http://www.guardian.co.uk.
(dagblað)
Skemmtanaefni
http://www.imdb.com.
(stærsti gagnabanki heims
um bíómyndir)
http://www.cats.org.uk. - (kettir)
http://www.speeches.com. -
(brúðkaupsræður)
Ýmsar heimasíður
http://www.which.net. -
(Bresku neytendasamtökin)
http://www.bookshop.co.uk. -•
(stærsta bókaverslunin á netinu)
http://www.cheapflights.co.uk. - (ódýr
flugfargjöld)
http://www.odci.gov/cia/index. -
(Bandaríska leyniþjónustan)
18
NEYTENDABLAÐIÐ -September 1997